Celtics selt sem dýrasta félag í sögu Bandaríkjanna Sindri Sverrisson skrifar 20. mars 2025 14:51 Eigandinn Wyc Grousbeck með verðlaunagripinn eftir að Boston Celtics varð NBA-meistari í átjánda sinn í fyrra. Nú hefur hann selt félagið. Getty/AFP Körfuboltafélagið Boston Celtics hefur nú verið selt fyrir 6,1 milljarð Bandaríkjadala, jafnvirði um 814 milljarða íslenskra króna, sem er metupphæð.
Boston Celtics verður þar með dýrasta félag í sögu bandarískra íþrótta og tekur fram úr NFL-félaginu Washington Commanders sem árið 2023 var selt fyrir 6,05 milljarða dollara. Það er Bill Chisholm, stofnandi fjárfestingafyrirtækisins Symphony Technology Group, sem nú eignast Celtics en hann kaupir félagið af Grousbeck-fjölskyldunni. BREAKING: Bill Chisholm, managing partner at Symphony Technology Group, has agreed to purchase the Boston Celtics from the Grousbeck family for a valuation for $6.1 billion, sources tell ESPN. This now is the largest sale for a sports franchise in North America. pic.twitter.com/iPphqSQswe— Shams Charania (@ShamsCharania) March 20, 2025 Grousbeck-fjölskyldan hefur átt Celtics frá árinu 2002 en hún tilkynnti í júní í fyrra að til stæði að selja félagið. Frá því að fjölskyldan eignaðist félagið hafa Celtics verið meðal betri liða NBA-deildarinnar og unnið tvo meistaratitla, þar á meðal í fyrra þegar liðið vann Dallas Mavericks í úrslitum, auk þess að komast í tvö önnur skipti í úrslitaeinvígið. Grousbeck og Steve Pagliuca leiddu hóp sem keypti Celtics árið 2002 fyrir 360 milljónir Bandaríkjadala, eða sautján sinnum lægri upphæð en félagið er selt fyrir núna. Boston Celtics er eitt sögufrægasta íþróttalið Bandaríkjanna með alls átján NBA-meistaratitla.
NBA Mest lesið Dæmdur sekur vegna sex viðbjóðslegra færslna Enski boltinn Þakklátur Klopp fyrir ríginn: „Ég sakna hans“ Enski boltinn Óli Óla: Við getum alveg eins hrokkið upp af á morgun Körfubolti Uppgjör: Grindavík - Keflavík 104-92 | Ekkert stöðvar Grindvíkinga Körfubolti „Orðfærið og dónaskapurinn með ólíkindum“ Handbolti Kristian fiskaði rautt og fékk svo rautt Fótbolti Glódís leiðir Bayern áfram í hárrétta átt Fótbolti Bjarni með tíu og KA áfram í toppbaráttu Handbolti Uppgjörið: Ármann - Tindastóll 77-110 | Tindastóll of stór biti fyrir Ármann Körfubolti Ingibergur hættir sem formaður: „Miklar tilfinningar innra með mér“ Körfubolti Fleiri fréttir Uppgjör: Grindavík - Keflavík 104-92 | Ekkert stöðvar Grindvíkinga Óli Óla: Við getum alveg eins hrokkið upp af á morgun Uppgjörið: Ármann - Tindastóll 77-110 | Tindastóll of stór biti fyrir Ármann Varð sá hávaxnasti í sögunni Tvítug körfuboltakona með tímamótafjárfestingu Ingibergur hættir sem formaður: „Miklar tilfinningar innra með mér“ „Verður kannski mest krefjandi fyrir börnin mín“ „Þarf ekki að láta aðra segja mér hvort að liðið sé nógu gott“ Uppgjörið: Njarðvík - Stjarnan 101-105 | Langþráður sigur Íslandsmeistarana ÍA - Valur 81-83 | Grátlegt tveggja stiga tap á nýjum heimavelli Þór Þ. - ÍR 100 - 98 | Fyrsta sigrinum fagnað í Þorlákshöfn Uppgjörið: Álftanes - KR 108-89 | Stórsigur gegn vængbrotnu liði Banninu aflétt og Bretland mun mæta Íslandi Sá húsið sitt brenna til kaldra kola „Ha, átti ég metið?“ Rebekka Rut nýliði í fyrsta landsliðshóp Salminen Uppgjörið: KR - Grindavík 68-85 | Gestirnir á toppinn Valskonur niðurlægðu Íslandsmeistarana Tryggvi með flest fráköst í Evrópusigri Sjaldgæf 30-20-10 þrenna í Síkinu í gær Sömu félög að spila í tveimur íþróttum í sama húsinu á sama tíma Kristófer Acox kallar sig glæpamann Uppgjörið: Njarðvík - Hamar/Þór 88-61 | Auðsóttur sigur Njarðvíkinga Keflavíkursigur í kaflaskiptum leik Stjarnan með þægilegan sigur á nýliðunum Hverjir eru bestu ungu strákarnir í Bónus-deildinni? Söguleg byrjun OKC á tímabilinu Íslandsmeistararnir mæta bikarmeisturunum Skagamenn senda Kanann heim Tilþrif 5. umferðar: Jukic stal senunni Sjá meira