Þjónustaði netþrjóta og hefur nú aðgang að opinberum kerfum Hólmfríður Gísladóttir skrifar 26. mars 2025 12:41 Musk hefur mjög gaman af Coristine, ef marka má pósta hans á X. Getty/Samuel Corum Fyrirtæki í eigu Edward „Big Balls“ Coristine virðist hafa veitt tölvuþrjótum tækniaðstoð fyrir um það bil tveimur árum. Coristine er nú einn starfsmanna DOGE og skráður sem „ráðgjafi“ á starfsmannaskrá utanríkisráðuneytisins og netöryggisstofnuninni CISA.
Frá þessu greinir Reuters en Coristine hefur áður fangað athygli fjölmiðla, ekki síst fyrir skrautlegt viðurnefni sitt og aldur. Hann er aðeins 19 ára gamall. Árið 2022, á meðan hann var enn í skóla, ran Coristine fyrirtækið DiamondCDN en CDN stendur fyrir „content delivery network“. BIG BALLS 🤣🤣🤣 https://t.co/dn4x0DDA9d— Elon Musk (@elonmusk) February 9, 2025 Meðal notenda DiamondCDN var hópurinn EGodly, sem hefur stært sig af því á samfélagsmiðlum að hafa stolið símanúmerum, brotist inn í tölvupóst löggæsluyfirvalda í Suður-Ameríku og Austur-Evrópu og að hafa stundað rafmyntaþjófnað. Þá dreifði hópurinn persónuupplýsingum starfsmanns Alríkislögreglunnar (FBI) sem vann að rannsókn sem beindist að því sem er kallað „swatting“, það er þegar hringt er í neyðarnúmer til að tilkynna um skálduð neyðartilfelli, í þeim tilgangi að fá vopnaða lögreglu á staðinn. Yfirvöld hafa ekki svarað spurningum Reuters um tengsl Coristine við EGodly en Nitin Natarajan, sem var aðstoðarforstjóri CISA í stjórnartíð Joe Biden, segir áhyggjuefni að einstaklingur sem hafi þjónustað EGodly fyrir aðeins tveimur árum hafi nú umfangsmikinn aðgang að opinberum kerfum.
Bandaríkin Donald Trump Elon Musk Mest lesið Bauð manni að gista, batt hann við stól og lét hann drekka úr skál á gólfinu Innlent Sundlaugargestur handtekinn Innlent Jarðskjálfti við Langjökul: „Þetta er sá stærsti síðan árið 2007“ Innlent Ekkert sem bendi til þess að um sé að ræða óvinveitt geimskip Innlent Blaðaviðtal við Matthías lagt fram í gögnum málsins Innlent „Það bjó enginn í húsinu“ Innlent „Pútín fékk það út úr þessum fundi sem hann vildi“ Innlent Hinn grunaði var leiðbeinandi barna í tæplega tvö ár Innlent Taldi upp nýlendur sem ætti að endurheimta Erlent Kærður fyrir að taka myndband af vettvangi slyss Innlent Fleiri fréttir Ísraelsmenn handteknir fyrir að mótmæla stríðinu Evrópuleiðtogar fylkja liði í Hvíta húsið Trump sagður hlynntur afsali lands Taldi upp nýlendur sem ætti að endurheimta Fundurinn sigur fyrir Pútín: Rauður dregill í stað fangabekkjar í Haag Selenskí mun funda með Trump Fundi forsetanna lokið: Ekkert samkomulag um vopnahlé Umfangsmikil gagnárás Úkraínumanna Forsetarnir tveir funda Sextug kona lést í lestarslysi í Danmörku Maður látinn eftir skotárás við mosku í Örebro Obama blæs Demókrötum byr í brjóst Mætti í sovétbol til fundarins í Alaska Komu sér ekki saman um aðgerðir gegn plastmengun Ráðist á Palestínumenn á Vesturbakkanum Gervigreindin býr til tvö ný sýklalyf gegn ónæmum bakteríum Segir 75 prósent líkur á árangursríkum fundi í kvöld Fyrsta mannfall Rússa í umsátri í Malí Hringdi í norskan ráðherra til að ræða friðarverðlaun Nóbels Buffalo-morðinginn kvartar yfir skorti á þeldökku fólki „Gervigreindargeðrof“ hrellir sálfræðinga Samþykkti landtökubyggð til að fyrirbyggja palestínskt ríki Grindavík fær nafna í smástirnabeltinu Borgarstjóri Anchorage segir allt til reiðu fyrir leiðtogafund Nýr talnaspekingur Trump við þinghúsið þegar ráðist var á það Hækkun sjávarmáls ógnar styttum Páskaeyju Starmer og Selenskí funda í dag Trump tilkynnti um næstu heiðursfélaga Kennedy-miðstöðvarinnar Melania Trump hótar lögsókn á hendur Hunter Biden Vilja afvopna einangraða og veikburða Hezbollah-liða Sjá meira