Lífið

Vörur sem flug­freyjur kaupa í Banda­ríkjunum

Svava Marín Óskarsdóttir skrifar
Lífið á Vísi heyrði í nokkrum flugfreyjum sem deildu því hvaða vörur þeim þykja nær ómissandi að kaupa þegar þær fara vestur um haf.
Lífið á Vísi heyrði í nokkrum flugfreyjum sem deildu því hvaða vörur þeim þykja nær ómissandi að kaupa þegar þær fara vestur um haf. Getty

Flugfreyjur hafa í gegnum tíðina verið þekktar fyrir að eiga vörur sem veita lausnir við ýmsum daglegum vandamálum. Hvort sem um ræðir hágæða þvottaefni, vinsælar snyrtivörur eða eftirsótta heimilisilmi, hafa þær haft auga fyrir því besta á markaðnum.

Áður en netverslanir og fjölbreyttara vöruúrval gerðu slíkan varning aðgengilegri hér á landi voru þessar vörur sérstaklega eftirsóttar. Þrátt fyrir aukið framboð og hnattvæðingu lifir enn ímyndin um að finna hið fullkomna góss. Það er eitthvað ómótstæðilegt við að ganga um stórborgir og heimsækja verslanir á borð við Target, Sephora og bandarísk apótek– fylla innkaupakörfuna og gleðihormónabirgðirnar í senn.

Lífið á Vísi heyrði í nokkrum flugfreyjum sem deildu því hvaða vörur þeim þykja nær ómissandi að kaupa þegar þær fara vestur um haf.


Snyrtivörur 

Vörur meðal annars frá merkjum á borð við Charlotte Tilbury, Laneigh lip mask, Supergoop glow Screen, Rare beauty, Drunk Elephant, Refy, Gisou, Westman Atelier, Necessaire, Summer fridays og BYOMA, svo dæmi séu tekin.

Úr „drögganum“

First aid krem Neosporin, tannhvíttunarstrimlar, Dayquil og Nightquil, Colgate einnota tannburstar, Clear Eyes Redness Relief, Tums.

Fyrir heimilið 

Völuspa kerti, sápur frá Bath and Body Works, strausprey frá Downy, Dawn- uppþvottalögur í spreyformi,, þvottaefni frá Tide pods og blettaeyðir frá Miss Mouth's, er meðal þess sem flugfreyjur kaupa fyrir heimilið.

Aðrar vörur sem flugfreyjur segjast gjarnan kaupa þegar tækifæri gefst, til dæmis fyrir jól, afmæli og aðra sérstaka daga, eru leikföng, nammi, raftæki, gjafapappír og lífrænar matvörur – meðal annars í Trader Joe's og Whole Foods. Úrvalið og verðið á slíkum matvörum eru á allt öðrum standard en hér á landi.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.