Afsökunarbeiðni til Ólafar ekki í kortunum Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 8. apríl 2025 11:48 Ólöf óskaði eftir fundi með Kristrúnu Frostadóttur varðandi Ásthildi Lóu Þórsdóttur og sagði Ásthildi Lóu frjálst að sitja fundinn. Vísir/Vilhelm Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra ætlar ekki að tjá sig frekar um „tengdamömmumálið“. Ólöf Björnsdóttir, fyrrverandi tengdamamma barnsföður fyrrverandi barnamálaráðherra, hefur krafist afsökunarbeiðni frá Kristrúnu vegna meints trúnaðarbrests forsætisráðuneytisins. Ráðuneytið hefur ítrekað hafnað ásökuninni um trúnaðarbrest.
Ólöf birti skoðunargrein á Vísi í gær undir titlinum Sannleikurinn í tengdamömmumálinu og gaf máli, sem hingað til hefur verið kennt við afsögn barnamálaráðherra, nýtt heiti. Ólöf er fyrrverandi tengdamóður Eiríks Ásmundssonar sem eignaðist barn með Ásthildi Lóu Þórsdóttur árið 1989. Þá var Eiríkur sextán ára en Ásthildur Lóa 23 ára. Ásthildur Lóa sagði af sér embætti mennta- og barnamálaráðherra í aðdraganda þess að fjallað var um samband hennar við Eirík í fjölmiðlum á dögunum. Ólöf hefur sagt að henni hafi verið misboðið að Ásthildur Lóa væri barnamálaráðherra og ítrekaði þá skoðun sína í skoðunargreininni að Ásthildur Lóa hefði tálmað Eirík í umgengni við son þeirra. Einn angi málsins er sá að Ólöf er mjög ósátt við viðbrögð forsætisráðuneytisins í málinu. Hún vill meina að trúnaður hafi verið brotinn í meðferð ráðuneytisins. Forsætisráðherra hefur hafnað því. „Ég vil lýsa stórkostlegri furðu á vinnubrögð forsætisráðuneytisins, sem varpa líka ljósi á öryggisbresti þar innanhúss. Það liggur fyrir að ég hringdi í forsætisráðuneytið. Það gerði ég í þeim tilgangi að óska eftir upplýsingum um hvort farið væri með erindi sem þangað berast í gegnum tölvupóst sem trúnaðarmál. Svarið var já. Ég vildi að það væri algjörlega öruggt og spurði aftur, því ég vildi ekki að þessar upplýsingar færu um borg og bý. Aftur staðfesti starfsmaðurinn það. Símtalið var fjögurra mínútna langt - hvað annað átti ég að ræða í þessar fjórar mínútur við starfsmann í símsvörun?“ sagði Ólöf í grein sinni í gær. Aldrei spurð út í símtalið „Forsætisráðherra sendi fjölmiðlum síðan yfirlýsingu þar sem því er hafnað að trúnaði hafi verið lofað. Ráðherra kaus þó að taka ekki fram að símtöl til ráðuneytisins væru ekki hljóðrituð, líkt og ég komst síðar að. Ráðherrann spurði mig aldrei út í þetta símtal, heldur aðeins starfsmann Umbra, sem sinnir símsvörun fyrir stjórnsýslu landsins. Sannleikurinn hentaði ráðherranum ekki í þessu máli. Það má líka setja stórt spurningamerki við að eðlileg öryggisráðstöfun líkt og hljóðritun símtala sé ekki til staðar hjá ráðuneytum landsins.“ Þá segir Ólöf að Ólafur Kjaran Árnason, aðstoðarmaður Kristrúnar, hafi afhent Ásthildi Lóu upplýsingar um erindi hennar og umkvörtun auk persónuupplýsinga. „Um það er ekki deilt. Enda liggur fyrir að barnamálaráðherra bæði þráhringdi í mig og mætti heim til mín að kvöldlagi, óboðin.“ Persónuupplýsingarnar sem um ræðir eru auk nafns Ólafar heimilisfang hennar og símanúmer sem fylgdu fyrsta tölvupósti Ólafar. Á þeim tíma hafði Ólöf ekki upplýst um tilefni þess að hún vildi funda með Kristrúnu vegna Ásthildar Lóu. Þá tók Ólöf fram í tölvupóstinum að Ásthildi Lóu væri frjálst að sitja fundinn. Forsætisráðherra hefur sagt Ásthildi Lóu hafa brugðist óeðlilega við hvernig hún nálgaðist Ólöfu. „Ekkert af þessu hefði gerst ef forsætisráðherra hefði ekki brugðist í þessu máli,“ sagði Ólöf og kallaði eftir afsökunarbeiðni frá Kristrúnu. Ítrekað svarað og hætt að tjá sig um málið Kristrún var spurð að loknum ríkisstjórnarfundi í morgun hvort stæði til að biðja Ólöfu afsökunar. „Nú hefur forsætisráðuneytið birt ítarlega tímalínu um alla vinkla þessa máls og ég svarað ítrekað fyrir það. Ég hef ekki í hyggju að tjá mig frekar um þetta mál,“ sagði Kristrún. Í tímalínu málsins kom fram að Umbra - þjónustumiðstöð Stjórnarráðsins hefði fengið símtal þann 11. mars sem varð í fjórar mínútur. Óskað hafi verið eftir samtali við forsætisráðherra. „Efnisatriði málsins hafi ekki verið rædd og trúnaði ekki heitið.Símtalið var ekki áframsent á starfsmenn forsætisráðuneytis en samkvæmt venju var innhringjanda leiðbeint um að hafa samband við ráðuneytið með tölvupósti á netfangið for@for.is til að bera upp erindið og óska eftir viðtali.“ Þá áréttaði ráðuneytið að stjórnvöldum væri ekki heimilt að heita trúnaði um upplýsingar sem þeim bærust, enda gilti sú meginregla að upplýsingar og gögn sem stjórnvöldum berist skuli vera aðgengileg nema þær takmarkanir á upplýsingarétti sem mælt er fyrir um í upplýsingalögum eða sérlögum eigi við. Þremur mínútum eftir að samtalinu lauk, klukkan 12:13, sendi Ólöf póst beint á forsætisráðuneytið. Þar greindi Ólöf frá því að málið varðaði Ásthildi Lóu Þórsdóttur. Pósturinn hljóðaði svo: „Góðan daginn, ég bið um stuttan fund með Kristrúnu Frostadóttur en það varðar Ásthildi Lóu Þórsdóttur, það er í góðu lagi að hún sitji líka fundinn, ef Kristrún vill það. Liggur á.“ SMS með skjáskoti Í tímalínuskjali ráðuneytisins kemur fram að erindið hafi verið tekið fyrir sama dag, 11. mars, á reglulegum fundi forsætisráðherra klukkan 13:00 með aðstoðarmönnum og ritara ráðherra þar sem fjallað er um ýmis innsend erindi og beiðnir sem ráðherra berast. „Á þeim fundi var ákveðið að kanna hvort mennta- og barnamálaráðherra þekkti til sendanda eða mögulegs fundarefnis áður en afstaða yrði tekin til fundarbeiðninnar,“ segir í skjali ráðuneytisins. Strax í kjölfarið hafi aðstoðarmaður Kristrúnar Frostadóttur, forsætisráðherra, sent aðstoðarmanni Ásthildar Lóu Þórsdóttur, mennta- og barnamálaráðherra, textaskilaboð. Þar hafi aðstoðarmaðurinn spurst fyrir um hvort ráðherra þekkti til sendanda eða mögulegs fundarefnis. Með skilaboðunum hafi fylgt skjáskot af fundarbeiðninni 11. mars þar sem sendandi gaf upp nafn, símanúmer og heimilisfang. Engin kvörtun borist Persónuvernd Fréttastofa sendi Persónuvernd fyrirspurn varðandi samskipti forsætisráðuneytisins við Ólöfu og hvort eitthvað sé við þau að athuga. Í skriflegu svari Helgu Þórisdóttur, forstjóra Persónuverndar, segir hún málið ekki hafa verið tekið til skoðunar. „Berist Persónuvernd kvörtun vegna þess, þá verður metið hvort umkvörtunarefnið heyri undir valdsvið stofnunarinnar,“ segir Helga.
Barnamálaráðherra segir af sér Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Samfylkingin Flokkur fólksins Mest lesið Virðist ekki vera hægt á Íslandi Innlent Hiti geti mest náð átján stigum Veður Hyggst kæra dyraverði Auto til lögreglu Innlent Ný könnun Maskínu: „Væri alveg ný staða í íslenskum stjórnmálum“ Innlent „Ótrúlega sorglegt að pabbi sé búinn að vera svona lengi í þessari stöðu“ Innlent Gaf fingurinn á Miklubraut Innlent Stytting framhjá Blönduósi ekki á samgönguáætlun Innlent „Ég hef aldrei upplifað annan eins harm“ Innlent Breiddi út faðminn fyrir rasista: „Þið þurfið ekki að biðjast afsökunar á að vera hvít lengur“ Erlent „Bandaríkin eiga ekki að taka yfir Grænland“ Erlent Fleiri fréttir Virðist ekki vera hægt á Íslandi Stytting framhjá Blönduósi ekki á samgönguáætlun Vestmannaeyingar fá að eiga Vestmannaeyjar Hyggst kæra dyraverði Auto til lögreglu „Ótrúlega sorglegt að pabbi sé búinn að vera svona lengi í þessari stöðu“ Höfðu samband við dönsku herstjórnina á Grænlandi Ný könnun Maskínu: „Væri alveg ný staða í íslenskum stjórnmálum“ Glæný Maskínukönnun og jólaóveður Ársæll hringdi beint í utanríkisráðherra eftir fundinn Ósannað að fimmtán ára stúlka hafi stungið sextán ára pilt tvisvar Sameina Farice, Öryggisfjarskipti og hluta Neyðarlínunnar Gaf fingurinn á Miklubraut Birtir drög að lögum um lagareldi: Hyggst leggja niður Fiskeldissjóð Hundrað og fjörutíu milljarða bótakrafa á Samherja sé súrrealísk Skemmdir í kirkjugörðum vegna aksturs utan vegar Ólýsanlegur harmur fyrir fjölskylduna og söfnun hleypt af stokkunum „Ég hef aldrei upplifað annan eins harm“ Vill leiða lista Sjálfstæðismanna í Reykjanesbæ „Þetta hefur verið þungur tími“ Naut aðstoðar samskiptasérfræðinga vegna veiðigjaldamálsins Hrindir af stað söfnun fyrir móður stúlkunnar sem lést í Suður-Afríku Varð vitni að ótrúlegum norðurljósum: „Mér fannst þetta magnað“ Færir nýársboðið fram á þrettándann Fjórir fluttir á sjúkrahús eftir bílveltu á Suðurlandi Leggur aftur til hverfislögreglustöð í Breiðholti Nú má heita Love, Tóní, Ranimosk og Draumur Kvartar til umboðsmanns og vonar að Vegagerðin sjái að sér Ætlar ekki að beita sér í máli starfsmanns Útlendingastofnunar „Ég vil ekki nokkurn tímann sjá neitt svona aftur“ Gyðingar á Íslandi upplifa aukinn ótta Sjá meira
Breiddi út faðminn fyrir rasista: „Þið þurfið ekki að biðjast afsökunar á að vera hvít lengur“ Erlent
Breiddi út faðminn fyrir rasista: „Þið þurfið ekki að biðjast afsökunar á að vera hvít lengur“ Erlent