Geti haft í för með sér „ónæði, mengun og álag á fráveitu“ Silja Rún Sigurbjörnsdóttir skrifar 17. apríl 2025 14:01 Stór vöruskemma við Álfabakka 2a á að hýsa til að mynda kjötvinnslu og starfsemi Eldum rétt. Vísir/Vilhelm Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur hefur skilað inn umsögn um stóra vöruskemmu við Álfabakka. Þar er greint frá áhyggjum um stöðugan hávaða frá svæðinu, mengun og auknum umferðaþunga.
Umsagnir Heilbrigðiseftilitsins og Reykjavíkurborgar um svokallaða „græna gímaldið“ hafa borist í Skipulagsgátt. Við byggingarreit á Álfabakka 2-4 er búið að byggja stórt grænt hús sem á að hýsa dótturfélög Haga, kjötvinnslu Ferskar kjötvörur og Eldum rétt. Byggingin hefur skapað mikla umræðu en til að mynda hefur Búseti lagt fram stjórnsýslukæru vegna byggingarinnar þar sem farið er fram á framkvæmdir verði stöðvaðar. Íbúar í fjölbýlishúsi í Breiðholti eru einnig ekki ánægðir með húsið, sem er steinsnar frá stofugluggum þeirra. Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur (HER) hefur gert þónokkrar athugasemdir í umsögn sinni um kjötvinnsluna í Álfabakka 2a. Þar á meðal er bent á hávaðakvartanir sem hafa borist eftirlitinu varðandi samskonar kjötvinnslu í Síðumúlanum líkt og eigi að vera í Álfabakkanum. „HER vill byrja á að benda á að ekki er rétt að kjötvinnslan í Síðumúla 34 hafi starfað án vandkvæða í nágrenni við íbúðarbyggð. HER hefur móttekið kvartanir vegna hávaða frá vöruafgreiðslu, losun úrgangsgáma og frá kæliviftum/pressum utan á húsinu,“ segir í umsögninni. Heilbrigðiseftirlitið setur einnig út á að vinnslan sem tekur til starfa í Álfabakka sé skilgreind sem léttur iðnaður. Engin skilgreining sé til á hvað sé léttur iðnaður en þeir telji starfsemina mjög umfangsmikla. Ekki komi fram í tilkynningu um bygginguna hversu umfangsmikil kjötvinnslan verði „Hún getur haft í för með sér ónæði, mengun og álag á fráveitu,“ stendur í umsögninni. Hafa borist hávaðakvartanir Einnig hefur HER borist hávaðakvartanir frá kjötvinnslu Ferskra kjötvara og eru teknar fram áhyggjur um að hljóðveggir sem eigi að koma í veg fyrir hávaða í Álfabakka muni ekki nægja. „Kæliviftur og kælipressur eru algeng ástæða hávaðakvartana enda berst bæði frá þeim stöðugur hávaði en eins og geta komið púlsar í hávaða frá pressum. Gert er ráð fyrir hljóðvegg í kringum þennan búnað hjá fyrirhugaðri kjötvinnslu en hann er staðsettur á þaki úrgangsgeymslu. Heilbrigðiseftirlitið hefur helst áhyggjur af því að þar sem búnaðurinn stendur hátt þá geti hávaðamengun mögulega borist yfir hljóðvegg og verið greinanlegur í umhverfinu,“ stendur í umsögninni. Þá benda HRE einnig á hávaða af völdum meðhöndlunar og flutningi á úrgangi. Oft séu þjónustufyrirtæki á ferðum að næturlagi og því fylgja skellir og hávaði. „Starfsemin verður staðsett í þeim enda byggingarinnar sem stendur fjær íbúðarbyggð en hávaði eins og skellir geta borist langt og verið sérstaklega vel greinanlegir á næturtíma þegar annar hávaði er ekki ríkjandi.“ Gert er ráð fyrir 6-700 ferðum að öllu húsinu sem er mikil aukning á þungaumferð á svæðinu. „Heilbrigðiseftirlitið hefur áhyggjur af því að aukin þungaumferð á svæðinu hafi áhrif á öryggi, sérstaklega gangandi og hjólandi vegfarenda. Álfabakki 2 liggur að íþróttasvæði ÍR og mikill fjöldi barna og unglinga fer um svæðið vegna þessa.“ Auk aukins umferðarþunga og hávaða segir HRE nauðsynlegt að benda á frárennslismál. „Fitugildrur verða vissulega til staðar á frárennsli en þess þarf að gæta að staðsetja þær þannig að ekki geti borist frá þeim ólykt í gegnum útloftun eða við tæmingu.“ Mikil vatnsnoktun fylgi þrifum í stórum matvælafyrirtækjum og kalla þau eftir að fulltrúar Veitna telji hvort að fráveitukerfið á svæðinu geti annast álaginu. Þá þarf að athuga hvort hreinsiefnin skerði ekki hreinsigetu fituskilja sem geti leitt til stíflu og tryggja þarf að sýrustig frárennslis valdi ekki skaða á fráveitulögnum. „Verði skaði á lögnum getur það haft áhrif á nærliggjandi rekstur og íbúðir.“ Byggingin samræmist heimildum Í umsögn Reykjavíkurborgar er farið yfir hvort starfsemi vöruskemmunnar falli undir stefnu um landnotkun í Suður-Mjódd. Þar er heimild fyrir fjölbreyttri verslunar- og þjónustustarfsemi og annarri hreinlegri atvinnustarfsemi. Þrátt fyrir að kjötvinnslan sé umfangsmikil valdi hún óverulegum umhverfisáhrifum og samræmist heimildunum sem liggja fyrir þar sem að í vöruskemmunni verði skrifstofur, verslun og þjónusta. „Í slíkum tilvikum þarf ávallt að gæta vel að hönnun og útfærslu starfseminnar og umhverfisáhrifum vegna mögulegrar nálægðar við íbúðarbyggð,“ segir í umsögn Reykjavíkurborgar undirrituð af skipulagsfulltrúa
Vöruskemma við Álfabakka Reykjavík Skipulag Mest lesið „Martröð sem ég mun bera með mér alla ævi“ Innlent Sturla Böðvarsson er látinn Innlent Fyrsta skref Guðbjargar að taka sér frí Innlent Biðlar til ráðherra og segir upphrópanir ekki hjálpa Innlent Sérsveitaraðgerð á Selfossi Innlent Enn til skoðunar hvort úrskurðurinn verði kærður Innlent Játar að hafa brotið á stúlku í Hafnarfirði Innlent Danir standi á krossgötum Erlent Þóttist vera borgarstarfsmaður og sveik út síma og verkfæri Innlent Fengu ekki réttargæslumann þrátt fyrir grun um ofbeldi á leikskólanum Innlent Fleiri fréttir Loka lauginni vegna veðurs Biðlar til ráðherra og segir upphrópanir ekki hjálpa Funda um Evrópumálin „fjarri kastljósi fjölmiðla“ Ásdís Halla og Erna Kristín skiptast á ráðuneytum Þóttist vera borgarstarfsmaður og sveik út síma og verkfæri Fyrsta skref Guðbjargar að taka sér frí Játar að hafa brotið á stúlku í Hafnarfirði Vonskuveður víða um land og óvissustig í gildi Íslenskum ríkisborgurum fjölgaði fimmtán sinnum meira en erlendum Enn til skoðunar hvort úrskurðurinn verði kærður Bálhvasst á Austfjörðum og óvissustig vegna snjóflóðahættu Maður ársins og slökkviliðið brugðust við vegna álftar sem fraus föst Þrjár vikur í fyrsta gjalddaga og 15% eiga eftir að skrá kílómetrastöðu Fengu ekki réttargæslumann þrátt fyrir grun um ofbeldi á leikskólanum „Martröð sem ég mun bera með mér alla ævi“ Draumur að skipuleggja kvennaverkfall í Þýskalandi Sturla Böðvarsson er látinn Forsjá varla ákveðin útfrá erfðafræðilegum tengslum Þjóðverjar horfi í ríkari mæli að Norður-Atlantshafi Sérsveitaraðgerð á Selfossi Fleiri stelpur týndar en áður Húsnæðismálin „helsti drifkraftur verðbólgu síðasta áratuginn“ „Evrópusambandið hefur haft sömu viðskiptastefnu og Trump“ Sviminn hvarf eftir aðgerðina og hækjan horfin Banaslys í Rangárþingi Útkoman mikill skellur eftir að vonarneisti kviknaði Bein útsending: Ráðherraskipti á ríkisráðsfundi Fyrsta ár Náttúruverndarstofnunar gekk glimrandi vel Inga vill skóla með aðgreiningu Átti í útistöðum við Frú Ragnheiði Sjá meira