Fótbolti

Glódís í hefndar­hug getur náð sögu­legum á­fanga í dag

Aron Guðmundsson skrifar
Glódís Perla fagnar marki sínu gegn Freiburg á dögunum sem innsiglaði þýska deildarmeistaratitilinn fyrir Bayern Munchen, titillinn er sá þriðji í röðinni hjá liðinu.
Glódís Perla fagnar marki sínu gegn Freiburg á dögunum sem innsiglaði þýska deildarmeistaratitilinn fyrir Bayern Munchen, titillinn er sá þriðji í röðinni hjá liðinu. Vísir/Getty

Eftir erfiða tíma getur Glódís Perla Viggós­dóttir, fyrir­liði Bayern Munchen, náð sögu­legum árangri með liði sínu í dag takist þeim að tryggja sér tvennuna í Þýska­landi með sigri í bikarúr­slitum.

Glódís Perla inn­siglaði þýska meistara­titilinn með þriðja marki Bayern í sigri á Frei­burg á dögunum, þeim þriðja í röð en ekki gefst tími til að fagna Bayern er sigri í bikarúr­slita­leik gegn Wer­der Bremen í dag frá því að tryggja sér tvennuna í fyrsta sinn í sögu félagsins.

Bikarúr­slita­leikur Bayern Munchen og Wer­der Bremen verður sýndur í beinni út­sendingu á Voda­fone sport rásinni og hefst klukkan tvö í dag.

„Auðvitað er það alltaf frábær til­finning sem fylgir því að ná mark­miðunum sínum. Þessi titill er kannski smá sér­stakur því þetta er þriðji meistara­titillinn okkar í röð. Þetta var bara gríðar­lega skemmti­legt og gaman að ná að klára deildina svona snemma,“ að hafa skorað markið sem inn­siglaði titilinn skipti hana ekki höfuðmáli.

„Ég var aðal­lega bara gríðar­lega ánægð með að ná að hafa verið klár í þennan leik. Ég fékk ein­hverjar mínútur og að geta verið inn á vellinum þegar að flautað var til leiks­loka og að við vorum meistarar var það sem að skipti mig mestu máli. En auðvitað var gaman að skora, alltaf gaman að skora.“

Jafnari deild en áður

Bayern haft tök á þýsku deildinni undan­farin tvö tíma­bil, þær tryggðu titilinn núna þegar að tvær um­ferðir eru eftir af deildinni en sam­keppnin er að verða harðari.

„Ég myndi segja að þetta tíma­bil hafi verið jafnasta tíma­bilið í deildinni síðan að ég kom til félagsins. Þangað til fyrir nokkrum um­ferðum eru í rauninni þrjú, næstum því fjögur, lið að berjast um fyrsta sætið. Það hefur aldrei verið svo­leiðis síðan að ég kom í þýsku deildina. Þetta hefur í raun alltaf verið Bayern Munchen og Wolfs­burg sem hafa verið að keppast um fyrsta sætið. En í ár vorum við með Frankfurt í fyrsta sæti á einum tíma­punkti og sömu­leiðis Bayer Le­verku­sen. Þetta hefur verið hörku barátta og miklu fleiri lið sem gerðu atlögu að því að vinna deildina. Nú eru tvær um­ferðir eftir og það er hörku barátta um Meistara­deildar sæti. Það sýnir að það eru fleiri lið í deildinni sem eru að færast nær og vilja vera í þessari sam­keppni við þessa stóru lið.“

Glódís þekkir það að vinna þýsku deildinaGetty/Uwe Anspach

Í hefndarhug

Þýska meistara­titlinum var að sjálfsögðu fagnað eftir sigurinn á Frei­burg á dögunum en þó með það í huga að enn ætti liðið verk fyrir höndum í bikarnum.

„Auðvitað fögnum við alltaf þegar að við vinnum. Það var ótrú­lega gaman úti á velli með okkar stuðnings­mönnum eftir leik og svo vorum við með fögnuð inn í klefa, skemmtum okkur gríðar­lega vel en auðvitað erum við alltaf með hugann við þá stað­reynd að það er bikarúr­slita­leikur á fimmtu­daginn. Vonandi höfum við enn þá meira að fagna þá.“

Bikarúr­slita­leikurinn í Þýska­landi er risa viðburður. Upp­selt er á úr­slita­leik Bayern Munchen og Wer­der Bremen síðar í dag, um 50 þúsund áhorf­endur mæta á völlinn. Wolfs­burg hefur ein­okað bikar­meistara­titilinn undan­farinn ára­tug en nú verður nýtt nafn ritað á bikarinn. Bayern fór í úr­slita­leikinn á síðasta tíma­bili en Wolfs­burg hafði betur.

Sveindis Jane varð bikarmeistari í fyrra með Wolfsburg. Wolfsburg hafði einokað bikarmeistaratitilinn frá árinu 2015 en nýtt nafn verður ritað á hann í dag.Vísir/Getty

„Það var mjög stórt fyrir okkur að komast í úr­slita­leikinn í fyrra en sá leikur spilaðist alls ekki eins og við ætluðum okkur þannig að við komum aftur í ár í hefndar­hug og viljum vinna titilinn. Að vinna tvöfalt væri auðvitað risastórt. Það hefur aldrei gerst áður hjá félaginu og mig langar rosa­lega að vinna tvöfalt. Þetta er klár­lega risastórt mark­mið sem við erum allar með og erum klárar í að gera allt til að ná því.“

Glódís hefur aldrei orðið þýskur bikar­meistari og úr­slita­leikurinn í fyrra svíður..

„Maður hafði svo mikla trú á því í fyrra að við myndum halda áfram þessum stöðug­leika sem við vorum búnar að ná eftir áramót og því var það smá högg þegar að við mættum í þennan bikarúr­slita­leik og náðum ekki að halda því áfram. Við ætluðum að vinna tvöfalt þá líka en það má ekki gleyma því að bikar er alltaf bikar, það er allt öðru­vísi keppni. Ég held að við séum aðeins betur undir­búnar í ár, vitum hvað við erum að fara út í og ætlum að vera reynslunni ríkari í ár.“

Óútreiknanlegur bikar

Bayern hefur haft tök á Wer­der Bremen í deildinni. Frá nóvember árið 2017 hafa liðin mæst fjórtán sinnum og Bayern hefur unnið alla þá leiki. Þá hefur Wer­der Bremen ekki tekist á skora mark á móti Bayern í síðustu ellefu leikjum liðanna í þýsku deildinni.

„Þetta er allt annað heldur en deildar­leikur, þetta er einn leikur og bæði lið fara inn í hann til að vinna. Ég veit að þær munu mæta gríðar­lega til­búnar í þennan leik. Þær hafa ekkert haft á spilum í deildinni lengi og geri því ráð fyrir því að þær séu búnar að vera undir­búa sig fyrir bikarúr­slitin í margar vikur. Þetta er risastórt fyrir þær að vera komnar í þennan leik og þurfum að vera klárar í al­vöru baráttu. Þær eru mjög líkam­lega sterkt lið, harðar í horn að taka og að ég held með flest spjöld í deildinni á hverju einasta ári. Það er þeirra ein­kenni. Við þurfum að vera klárar í þá baráttu og ná á sama tíma að spila þann fót­bolta sem við viljum spila. Þetta verður hörku úr­slita­leikur. Þrátt fyrir að okkur gangi jafnan vel á móti þessu liði þá er bikarinn allt önnur keppni, allt annað dæmi.“

Glódís Perla var valin íþróttamaður ársins 2024Vísir/Hulda Margrét

Það yrði extra sér­stakt að ná inn fyrstu bikartvennunni hjá kvenna­liði Bayern Munchen sem fyrir­liði liðsins.

„Já ekki spurning. Þetta er risa mark­mið hjá félaginu en einnig mér persónu­lega og öllum leik­mönnum liðsins. Þetta er eitt­hvað sem manni dreymir um að gera. Við höfum risa tækifæri á að gera það núna á fimmtu­daginn og á sama tíma langar okkur öllum að kveðja þjálfarann okkar með tvennunni. Það væri gríðar­lega gaman að enda þessi þrjú ár okkar undir hans stjórn, sem hefur ein­kennst af stöðugum upp­gangi, á tvennunni. Það væri al­gjör draumur.“

Gerði allt til að vera klár

Glódís sem hefur verði að glíma við beinmar í hné, hefur lítið geta spilað undan­farnar vikur. Frá því að hún meiddist hefur hún stefnt á bikarúr­slita­leikinn og er klár í að byrja hann.

„Mér líður bara mjög vel núna. Við höfum stjórn á þessu eins og er. Það var það sem að við vildum ná. Fyrir nokkrum vikum, þegar að við ákváðum að gefa þessu tíma og leyfa þessu að lagast nógu mikið, var ég strax með hugann á því að ná bikarúr­slita­leiknum. Það var leikur sem ég vissi að mig langaði til að spila. Leikur sem ég myndi gera allt sem ég gæti til þess að vera klár í. Eins og staðan er núna hefur það gengið upp. Ég er bara gríðar­lega spennt fyrir þeim leik. Ef að það gengur vel höldum við áfram. 

En þetta er snúin staða. Ég mun örugg­lega þurfa að passa aðeins betur upp á mig næstu vikur en ég hef áður þurft að gera á mínum ferli. En það er bara nýr lær­dómur fyrir mig. Ég ætla ekki að segja að þetta sé búið að vera skemmti­legt, þetta er alls ekki skemmti­legt, en ég hef lært helling. Þetta mun hjálpa mér að vaxa sem manneskja. Maður finnur fyrir öðru­vísi gleði þegar að maður kemur aftur inn á völlinn eftir meiðsli. Staðan núna er góð og ég er gríðar­lega bjartsýn á fram­haldið.“

Bikarúr­slita­leikur Bayern Munchen og Wer­der Bremen verður sýndur í beinni út­sendingu á Voda­fone sport rásinni og hefst klukkan tvö í dag.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×