Markamaskínan Tokic og margfaldur Íslandsmeistari í 5. deildina Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar 15. maí 2025 17:46 Skiptin staðfest. Stokkseyri Framherjinn Hrvoje Tokic hefur ákveðið að rífa fram takkaskóna og spila með Stokkseyri í 5. deild karla hér á landi. Þá mun Martin Bjarni Guðmundsson, margfaldur Íslandsmeistari í fimleikum, einnig spila með liðinu.
Tokic þekkja flest þau sem fylgjast vel með knattspyrnu hér á landi en hann kom fyrst hingað til lands árið 2015 og raðaði inn mörkum fyrir Víking Ólafsvík í 1. deildinni. Hann var stór ástæða þess að Ólafsvíkingar fóru upp í deild þeirra bestu ári síðar og færði sig svo yfir til Breiðabliks ári síðar. Alls hefur hann leikið 174 leiki hér á landi og skorað í þeim 136. Þar af eru 42 leikir og 14 mörk í A-deild eða Bestu deildinni. Sumarið 2023 lék Tokic með Ægi og Árborg í Lengju- og 4. deild. Þessi bráðum 35 ára framherji spilaði ekkert á síðustu leiktíð en hefur nú ákveðið að sópa rykið af takkaskónum og leika með Stokkseyri í sumar. Ásamt því að kynna Tokic til leiks var opinberað að Martin Bjarni, margfaldur Íslandsmeistari í fimleikum, hefði jafnframt skrifað undir hjá félaginu. Martin Bjarni er Selfyssingur og því stutt að fara. Stokkseyri hefur leik í B-riðli 5. deildar þann 19. maí þegar liðið sækir RB heim á Reykjanesi. Önnur lið í riðlinum eru BF 108, KFR, Spyrnir, SR, Úlfarnir og Þorlákur.
Fótbolti Íslenski boltinn Mest lesið Donald Trump að fá friðarverðlaun frá FIFA? Fótbolti „Rokk og ról“ hjá Frey í villta vestrinu Fótbolti Sjáðu atvikið: Hágrátandi Hakimi frá í nokkrar vikur Fótbolti Víðir vann „diplómatískan sigur“ á þýska handknattleikssambandinu Handbolti Spilaði meira en síðustu tvo mánuði til samans Enski boltinn Óstöðvandi Osimhen, magurt hjá Mourinho og Bilbao brenndir Fótbolti „Leyfðum þremur leikmönnum að ganga frá okkur“ Sport Dagskráin í dag: Blikar mæta Shakhtar Sport Böl Börsunga í Belgíu Fótbolti Magdeburg skoraði 45 en lærisveinar Guðjóns Vals úr leik Handbolti Fleiri fréttir Davíð Smári tekur við Njarðvík Jeffs tekur við Breiðabliki Leiðir Breiðabliks og Damir skilja „Við viljum koma Haukum á fótboltakortið“ Fram líka fljótt að finna nýja ást „Í ástarsorg er gott að finna sér nýja ást sem fyrst“ Fanndís hefur ekkert heyrt frá Val og íhugar að hætta „Það verður hundleiðinlegt að spila við Val“ Hermann tekinn við Val Fóru nýja leið í ár og auglýstu eftir þjálfara: Tommy Nielsen ráðinn Pablo og Óskar Örn inn í þjálfarateymi Hauka FH-ingar kveðja Kjartan Henry Tölur úr Bestu: Bjartur Bjarmi fór í flestar tæklingar af öllum Gísli semur við Skagamenn Óskar Smári tekur við Stjörnunni Bretinn ráðinn tæknilegur ráðgjafi hjá Val Fram þvertekur fyrir metnaðarleysi og leitar að nýjum þjálfurum Tölur úr Bestu: Hallgrímur Mar bjó til langflest færi „Mjög sáttur með samninginn“ „Hefði séð eftir því alla ævi“ Magnús Már í viðræðum við HK Uppgjörið: Ísland - Norður-Írland 3-0 | Áfram hluti af elítunni Tölur úr Bestu 2025: Klúðraði langflestum dauðafærum í sumar FH bíður með að tilkynna nýjan þjálfara Óskar Hrafn fer ekki fet Birnir frá Akureyri í Garðabæ Hættir með Fram Heimir kynntur til leiks í Árbænum Túfa rekinn frá Val Leyndarmáli ljóstrað upp þegar Heimir og Björn kvöddu Sjá meira