Ísafjarðarbær í Bestu deild Sigríður Júlía Brynleifsdóttir og Gylfi Ólafsson skrifa 15. maí 2025 21:30 Ársreikningur Ísafjarðarbæjar fyrir árið 2024, sem samþykktur var í bæjarstjórn 15. maí, er sá besti í áraraðir. Metnaðarfull markmið hafa öll náðst með bravúr Í upphafi kjörtímabilsins setti bæjarstjórn sér skýr og metnaðarfull markmið um að taka til í rekstrinum, borga niður skuldir og endurskipuleggja í rekstrinum en halda áfram fjárfestingum. Skemmst er frá því að segja að í fyrra náðust nær öll markmið. Veltufé frá rekstri, skuldahlutfall, skuldaviðmið, þriggja ára rekstrarafgangur, handbært fé og allt annað er yfir markmiðum og sum mjög hressilega. Rekstrarafgangur A- og B-hluta var um 1.174 m.kr. en ef A-hlutinn er tekinn sér var afgangurinn 487 m.kr. Fyrir hvert mannsbarn í sveitarfélaginu er þetta um 300 þ.kr. afgangur. Þau tvö markmið sem ekki náðust eru smávægileg. Hjúkrunarheimilið Eyri kostar bæinn enn meira en tekjur og Byggðasafn Vestfjarða fær meðgjöf til að standa undir safnhluta rekstrarins en sýningarhald í Neðstakaupstað skilar vissulega tekjum á móti. Skuldaniðurgreiðslur og skattalækkanir Skuldahlutfall lækkar. Fyrir A-hluta var hlutfallið um áramótin síðustu 109% en stefnir í að fara undir 100% í lok þessa árs. Þegar B-hlutinn er tekinn með er hlutfallið hærra, sem skýrist að stærstu leyti af skuldum af hjúkrunarheimilinu Eyri og Fasteignum Ísafjarðarbæjar. Það á að taka á þessu. Við erum langt komin með að selja Eyri og Fasteignir Ísafjarðarbæjar, sem hafa lengi verið of umfangsmiklar í rekstri á íbúðarhúsnæði, seldu eignir fyrir 174 m.kr. í fyrra. Áfram eru félagsleg sjónarmið hátt á lofti til að tryggja aðgengi að húsnæði fyrir þá sem mest þurfa á að halda. Á sama tíma hafa skattar verið lækkaðir. Í öruggum skrefum hefur álagningarhlutfall fasteignagjalda verið lækkað, og er nú komið í 0,5% í ár. Einnig var gjaldskrá fyrir vatn og fráveitu endurskoðuð í réttlætisátt og heildargjöld lækkuð. Markmiðssetningin hjálpar til við að sýna festu þegar vel gengur. Það má ekki slaka á. Skuldir þurfa helst að lækka enn frekar svo hægt sé að taka áföllum eins og gerðist á covid-árunum. Lægri skuldir lækka afborganir af lánum, en fjármagnsgjöld voru um 100 þúsund á hvern íbúa í fyrra. Höfnin skilar miklu Afgangurinn af rekstri hafna Ísafjarðarbæjar var 474 m.kr. Það eru 125 þúsund á hvert mannsbarn í sveitarfélaginu. Vissulega eru hafnirnar í B-hluta, sem þýðir að afgangurinn nýtist ekki til að niðurgreiða skólastarf eða önnur kjarnaverkefni sveitarfélagsins. Það er hinsvegar alveg ljóst að sterk höfn styður samfélagið mikið, getur staðið undir fjárfestingum og endurspeglar þann ábata sem móttaka skemmtiferðaskipa hefur fyrir bæjarfélagið. Styrktarsjóður hafnanna hefur einnig stækkað og styður með myndarlegum hætti við Aldrei fór ég suður og fjöldamörg önnur samfélagsverkefni. Hvernig gerðist þetta? Afgangur af rekstri og lækkun skuldahlutfalls endurspegla ábyrga fjármálastjórn og samstillt átak starfsfólks og bæjarstjórnar. Á síðasta ári var framkvæmt og fjárfest fyrir tæpan milljarð. Umfangsmestu fjárfestingarnar voru gatnagerð, hafnarframkvæmdir, umbætur í fráveitu og vatnsveitu og í snjóflóðavörnum á Flateyri. Þá hafa verið gerðar breytingar á rekstri málefna fatlaðra og ýmsum öðrum velferðarmálum, sem hafa orðið til mikils sparnaðar með sömu eða betri þjónustu. En styrk fjármálastjórn er ein og sér ekki ástæða góðs árangurs. Aðstæður í ytra umhverfi eru okkur hagfelld. Fasteignaverð hækkar, það er gott gengi í rekstri fyrirtækja og aukin umsvif í ferðaþjónustu. Það er efnahagsævintýri hér fyrir vestan. Markmið og lykiltölur úr ársreikningum síðustu ára. Allar fjárhæðir eru í milljónum króna. Uppbygging heldur áfram Rekstur sveitarfélags snýr að stærstum hluta að því að uppfylla lagalegar skyldur eins og að reka skóla, sinna gatnakerfinu og—haltu í hattinn—halda húsum myglulausum. Þar erum við í innviðaskuld. Við höfum verið að stíga stór skref í fráveitumálum, fyrst í minni byggðakjörnunum og einnig nú í Skutulsfirði. Þá fara fram endurbætur á skólahúsnæði jafnt og þétt. Bygging slökkvistöðvar er stórt verkefni sem er að hefjast. Einnig er gatnagerð á Suðurtanga og vinna við ný deiliskipulög í gangi. Það er nauðsynlegt að sýna áfram aðgæslu í rekstri sveitarfélagsins en við horfum bjartsýn fram á veginn með metnað fyrir þjónustu og uppbyggingu. Ísafjarðarbær í Bestu deild Ársreikningurinn er aðgengilegur á vef bæjarins, en við vekjum sérstaka athygli á ársskýrslu sem fylgir, en þar er umfangsmiklum rekstri bæjarins lýst á aðgengilegan hátt. Í fyrra lauk stórum áföngum í uppbyggingu fótboltamannvirkja á Torfnesi og var nýr völlur vígður á vormánuðum. Mikið af þeirri uppbyggingu var unnið í sjálfboðavinnu og með stuðningi atvinnulífsins, en kjölfestan í framkvæmdunum var peningur úr sjóðum bæjarins. Karlalið Vestra sýndi að það var ekki til einskis: þeir héldu sér uppi í Bestu deildinni og eru nú í toppbaráttu annað árið sitt í deildinni. Ársreikningur Ísafjarðarbæjar kemur sveitarfélaginu líka í Bestu deildina. Sigríður Júlía Brynleifsdóttir er bæjarstjóri Ísafjarðarbæjar Gylfi Ólafsson er formaður bæjarráðs Viltu birta grein á Vísi? Sendu okkur póst. Senda grein Gylfi Ólafsson Ísafjarðarbær Mest lesið Bættar samgöngur og betra samfélag í Hafnarfirði Valdimar Víðisson Skoðun Fúsk við mannvirkjagerð þarf ekki að viðgangast Helga Sigrún Harðardóttir Skoðun Glæpur eða gjörningur? Sigfús Aðalsteinsson,Baldur Borgþórsson Skoðun Reykjalundur á tímamótum Sveinn Guðmundsson Skoðun Áhyggjur af breytingum á eftirliti með mannvirkjagerð og faggilding Ágúst Jónsson Skoðun Snjall notandi, snjallari gervigreind Agnar Burgess Skoðun Ráð gegn óhugsandi áhættu Hafsteinn Hauksson,Reynir Smári Atlason Skoðun Um stöðu íslenskukennslu á Íslandi Kjartan Jónsson Skoðun Takk! Borghildur Fjóla Kristjánsdóttir Skoðun Fimm ára afmæli Batahúss Agnar Bragason Skoðun Skoðun Skoðun Hvers vegna? Ingólfur Sverrisson skrifar Skoðun Fúsk við mannvirkjagerð þarf ekki að viðgangast Helga Sigrún Harðardóttir skrifar Skoðun Reykjalundur á tímamótum Sveinn Guðmundsson skrifar Skoðun Bættar samgöngur og betra samfélag í Hafnarfirði Valdimar Víðisson skrifar Skoðun Áhyggjur af breytingum á eftirliti með mannvirkjagerð og faggilding Ágúst Jónsson skrifar Skoðun Snjall notandi, snjallari gervigreind Agnar Burgess skrifar Skoðun Ráð gegn óhugsandi áhættu Hafsteinn Hauksson,Reynir Smári Atlason skrifar Skoðun Forysta í sjálfbærni á bakslagstímum: Sterk gildi eru enn mikilvægari en áður Dr. Andreas Rasche skrifar Skoðun Fimm ára afmæli Batahúss Agnar Bragason skrifar Skoðun Takk! Borghildur Fjóla Kristjánsdóttir skrifar Skoðun Íslandsklukkan: Markleysa frá upphafi Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Um stöðu íslenskukennslu á Íslandi Kjartan Jónsson skrifar Skoðun Gasa: Löng og torfarin leið til endurreisnar Philippe Lazzarini skrifar Skoðun Pops áttu p? Benedikt S. Benediktsson skrifar Skoðun Ríkisstjórnin hækkar leigu stúdenta Arent Orri J. Claessen,Viktor Pétur Finnsson skrifar Skoðun Annar í feðradegi…og ég leyfi mér að dreyma Ólafur Grétar Gunnarsson skrifar Skoðun Orkuskiptin heima og að heiman Eiríkur Hjálmarsson skrifar Skoðun Fyrir hvað stöndum við? Brynja Hallgrímsdóttir skrifar Skoðun COP30, Ísland, lífsskilyrði og loftslagsvá Kamma Thordarson skrifar Skoðun Dýrkeypt vinavæðing á vakt lögreglustjórans Ólafur Hauksson skrifar Skoðun Svöng Eflingarbörn Guðmundur Ingi Þóroddsson skrifar Skoðun Úr myrkri í von – Saga Grindvíkinga Bryndís Gunnlaugsdóttir skrifar Skoðun Þak yfir höfuðið er mannréttindi ekki forréttindi Kristján Þórður Snæbjarnarson skrifar Skoðun Glæpur eða gjörningur? Sigfús Aðalsteinsson,Baldur Borgþórsson skrifar Skoðun Við erum að vinna fyrir þig Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Börn í biðröð hjá Sýslumanni Helga Vala Helgadóttir skrifar Skoðun Sofandaháttur Íslands í nýrri iðnbyltingu Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Byggjum fyrir síðustu kaupendur Friðjón R. Friðjónsson skrifar Skoðun Það sem við segjum er það sem við erum Guðný Björk Pálmadóttir skrifar Skoðun Óásættanleg bið, fordómar og aðrar hindranir í kerfinu Helga F. Edwardsdóttir skrifar Sjá meira
Skoðun Forysta í sjálfbærni á bakslagstímum: Sterk gildi eru enn mikilvægari en áður Dr. Andreas Rasche skrifar