Innherji

Þarf „tölu­vert og viðverandi að­hald“ til að minnka inn­lendan verðbólguþrýsting

Hörður Ægisson skrifar
Þegar peningastefnunefnd Seðlabanka Íslands lækkaði meginvextina úr 7,75 í 7,5 prósent á fundi sínum í síðasta mánuði þá var jafnframt tekið fram að ekki væru aðstæður til að slaka á raunvaxtaaðhaldinu sem hefur verið um fjögur prósent núna í meira en eitt ár.

Eigi að takast að vinna bug á þrálátum innlendum verðbólguþrýstingi þá er líklegt að það muni þurfa „töluvert og viðverandi aðhald“ í kringum fjögurra prósenta raunvaxtastig, að mati tveggja ytri nefndarmanna í peningastefnunefnd Seðlabankans. Ekki verður svigrúm til að ráðast í frekari lækkun stýrivaxta á næstunni ef nýjasta verðbólguspá Seðlabankans gengur eftir, en hún gerir ráð fyrir að verðbólgan sveiflist nálægt núverandi gildi fram í byrjun næsta árs.

Fleiri fréttir

Sjá meira

×