Erlent

Íranir skjóta á Ísraela

Silja Rún Sigurbjörnsdóttir skrifar
Íranir og Ísraelar hafi skotið á hvor annan síðustu daga.
Íranir og Ísraelar hafi skotið á hvor annan síðustu daga. AP

Ísraelski herinn segir Írana hafa skotið eldflaugum í átt að Ísrael. Árásin kemur í kjölfar fregna um að báðar hliðar hafi samþykkt vopnahlé.

BBC greinir frá klukkan hálf átta að íslenskum tíma að Íranir hafi skotið eldflaugum í átt að Ísrael. Haft er eftir ísraelska hernum að þeir vinni að því að „stöðva ógnina“ og segja íbúum landsins að koma sér í skjól.

Samkvæmt umfjöllun AP eru viðvörunarsírenur í gangi í norðurhluta Ísraels. Heyra mátti í sprengjum þegar loftvarnarkerfi Ísraela hóf að verjast árásinni.

Donald Trump Bandaríkjaforseti tilkynnti í gærkvöldi að vopnahlé milli landanna væri í höfn. Ísraelar samþykktu vopnahléið í morgun en í nótt greindu íranskir miðlar að Íranir hygðust samþykkja vopnahléið ef Ísraelar myndu standa við það.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×