Innlent

Bassi Maraj sak­felldur fyrir líkams­á­rás

Silja Rún Sigurbjörnsdóttir skrifar
Bassi Maraj var í raunveruleikaþáttunum Æði auk þess sem hann gefur út tónlist.
Bassi Maraj var í raunveruleikaþáttunum Æði auk þess sem hann gefur út tónlist. Vísir/Vilhelm

Raunveruleikastjarnan Bassi Maraj hefur verið sakfelldur fyrir líkamasáras á leigubílstjóra. Atvikið átti sér stað fyrir rúmum tveimur árum.

Greint var frá í lok maí að Bassi, réttu nafni Sigurjón Baltasar Vilhjálmsson, hefði verið ákærður fyrir að ráðast á leigubíljstóra fyrir utan heimilið sitt 11. febrúar árið 2023. 

DV greinir frá að Bassi hafi verið sakfelldur fyrir líkamsárás og dæmdur í 30 daga skilorðsbundið fangelsi auk þess sem hann þurfti að greiða bílstjóranum 150 þúsund krónur í miskabætur. Þá greiddi hann rúmlega 167 þúsund krónur í málkostnað.

Samkvæmt heimildum fréttastofu sótti leigubílstjórinn Bassa og tvö aðra seint að kvöldi til í miðbæ Reykjavíkur. Einn farþegi fór út í Skeifunni án þess að borga að sögn bílstjórans en svo var förinni heitið í Bryggjuhverfið að heimili Bassa. Hann krafðist greiðslu upp á fjórtán þúsund krónur fyrir aksturinn.

Bassi neitaði að greiða og yfirgaf bílinn samkvæmt bílstjóranum en í yfirheyrslu lögreglu segist Bassi hafa ætlað að ná í vin sinn til að borga. Bílstjórinn elti Bassa og tók af honum símann en stjarnan brást illa við því. Í ákærunni segir að hann hafi bitið í hnakka og öxl bílstjórans, kýlt hann í ennið, tekið kverkataki og vafið greiðslupokasnúru um háls hans.

Samkvæmt dóminum hlaut brotaþoli mar, bitför og aðra yfirborðsáverka vegna árásarinnar. Hann hafi óttast um líf sitt. Þá segir að Bassi hafi verið í miklu uppnámi þar sem að bílstjórinn hafi tekið af honum símann og ætlað að akka burt með hann. 

„Allt hans líf sé í símanum, en hann noti ekkiöryggisnúmer til að komast inn í símann og því væri auðvelt fyrir aðra að komast í viðkvæm gögn ákærða. Síminn hafi verið nýlegur og kostað yfir 300 þúsund krónur,“ segir í dómnum.

Dómurinn hafi talið að þar sem að átökin snerust um símann hafi Bassi ekki ætlað sér að meiða bílstjórann heldur einungis endurheimta símann. Bassi var því, líkt og áður kom fram, sakfelldur fyri rlíkamsárás en sýknaður af því að hafa kýlt brotaþola og hert að hálsi hans.

Að auki fundust 0,08 grömm af amfetamíni í poka í vasa Bassa. Hann sagðist ekki kannast við efnin sem lögregla fór með til eyðingar. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×