Tíska og hönnun

Drottningar landsins kjörnuðu sig með Ernu Berg­mann

Dóra Júlía Agnarsdóttir skrifar
Swimslow drottningin Erna Bergmann var að opna glæsilegt rými í hjarta Reykjavíkur.
Swimslow drottningin Erna Bergmann var að opna glæsilegt rými í hjarta Reykjavíkur. Saga Sig

Á sumarsólstöðum opnaði hönnuðurinn Erna Bergmann dyrnar að Swimslow-rými í Aðalstræti 9. Swimslow hefur síðustu ár hannað sundföt, vellíðunarvörur og viðburði en stækkar nú heiminn og opnar hönnunarstúdíó og upplifunarrými í hjarta Reykjavíkur.

Rýmið er griðastaður fyrir nútímakonur sem þrá ró, fegurð og tengingu. Hér færðu tækifæri til að hægja á, næra líkama, anda og hlaða þig, segir Erna Bergmann um rýmið en opnunin gekk gríðarlega vel þar sem fjöldinn allur af ofurskvísum landsins komu saman í heilsteypt partý. 

Opnunin hófst á nærandi morgunstund leiddri af Ernu – með öndun, mjúku jóga, andlitsnuddi og djúpri nidra-slökun. Gestir nutu ljúffengra veitinga og fóru heim með veglegan gjafapoka endurnærðir.

Hjá Swimslow verða sömuleiðis vandlega valin vörumerki og upplifunarviðburðir auk meðferðarherbergis með nálastungum, tónheilun og nuddmeðferðum. Reglulegir jógaviðburðir sem og pilatesnámskeið eru einnig hluti af dagskránni.

Hér má sjá myndir frá opnuninni: 

Eva Katrín Baldursdóttir eigandi Andrá var í zen gír.Saga Sig
Erna Bergmann leiddi nærandi morgunstund.Saga Sig
Erna Bergmann.Saga Sig
Sigrún Eva fyrirsæta, Kolbrún Anna Vignisdóttir förðunarfræðingur, Elísabet Blöndal ljósmyndari og Andrea fatahönnuður kjörnuðu sig.Saga Sig
Gott að teygja vel og nudda sig!Saga Sig
Elísabet Alma Svendsen eigandi Listvals var ótrúlega fersk.Saga Sig
Erna Bergmann glæsileg í hvítum íþróttafatnaði.Saga Sig
Elísabet Blöndal og Gerða InShape þjálfari blörraðar og hressar! Elísabet Gunnars í bakgrunni.Saga Sig
Sigrún Eva fyrirsæta og Ása Ninna fjölmiðlakona glæsilegar með græna djúsa.Saga Sig
Íris Dögg ljósmyndari brosti breitt eftir góða slökun.Saga Sig
Rýmið er glæsilegt.Saga Sig
Skvísur í jarðtengingu.Saga Sig
Zen stund.
Dagný Berglind eigandi RVK Ritual og Elísabet Blöndal ljósmyndari.Saga Sig
Íris Dögg í góðum gír.Saga Sig
Glugginn vel merktur og sundbolirnir taka sig vel út. Saga Sig
Gerða og Íris.Saga Sig
Gleði!Saga Sig
Erna Bergmann var í skýjunum með mjúku opnunina.Saga Sig
Andrea í gleðinni!Saga Sig





Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.