Erlent

Fyrsta raf­knúna flug­vélin í dönsku innan­lands­flugi

Kristján Már Unnarsson skrifar
Rafmagnsflugvélin tekur á loft frá Sønderborg-flugvelli í gær.
Rafmagnsflugvélin tekur á loft frá Sønderborg-flugvelli í gær. Sønderborg-flugvöllur

Flug lítillar sex sæta rafmagnsflugvélar í gær frá Sønderborg á sunnanverðu Jótlandi til Kaupmannahafnar þykir marka þáttaskil í dönsku flugsögunni. Fullyrt er að þetta teljist fyrsta græna innanlandsflugið í Danmörku á flugvél sem eingöngu er rafknúin.

„Stór dagur fyrir flugnörda. Stór dagur í flugsögunni,“ segir í fyrirsögn á vef danska ríkisútvarpsins DR þar sem sjá má myndskeið af flugtakinu.

Flugvélin, sem nefnist Beta ALIA CX300, er bandarísk og smíðuð í Vermont. Hún er með sæti fyrir einn flugmann og fimm farþega, með 400 kílómetra flugdrægi og flýgur á 280 kílómetra hraða á klukkustund.

Rafmagni hlaðið á flugvélina.Sønderborg-flugvöllur

Flugið í gær telst þó tilraunaflug. Það er liður í lengra reynsluflugi frá París til Stavanger í Noregi þar sem flugvélin mun gangast undir viðamiklar flugprófanir.

Sønderborg-flugvöllur vísar til þess í fréttatilkynningu að í nýársræðu þann 1. janúar 2022 hafi forsætisráðherrann Mette Frederiksen hvatt til þess að eigi síðar en á árinu 2025 yrði boðið upp á grænt kolefnislaust flug á innanlandsleiðum í Danmörku. Það hafi núna verið efnt.

Flugið frá Sønderborg undirbúið.Sønderborg-flugvöllur

„Sønderborg-flugvöllur varð fyrsti flugvöllurinn í Danmörku þar sem 100% rafknúin flugvél fór í reynsluflug á innanlandsleið,“ segir í tilkynningu flugvallarins. Þetta sé mikilvægt skref í átt að grænni flugferðum í Danmörku og Evrópu. Haft er eftir flugvallarstjóranum að það marki upphaf grænna umskipta í flugstarfsemi.

Flugsérfræðingur, sem danska ríkisútvarpið ræðir við, segir þetta fyrstu innsýn í framtíð flugsins á danskri grundu. Þetta sé þó ekki flugvél sem menn muni sjá fljúga til dæmis á áætlunarleiðum til Álaborgar. Þetta sé frumgerð sem þurfi að þróa og breyta í eitthvað meira. Það sé þó frábært að verða vitni að fyrstu smáskrefunum.


Tengdar fréttir

Yfirgefa Svíþjóð til að hraða þróun rafmagnsflugvélar

Sænski flugvélaframleiðandinn Heart Aerospace hefur ákveðið að flytja höfuðstöðvar sínar frá Gautaborg í Svíþjóð til Los Angeles í Kaliforníu. Fyrirtækið segir að með þessu sé ætlunin að efla þróun ES 30-rafmagnsflugvélarinnar og styðja betur við fyrirhugað tilraunaflug.

Þessi Airbus gæti flogið á íslenskri orku til Oslóar

Ráðamenn Airbus hafa ítrekað þá stefnumörkun sína að koma eitthundrað sæta flugvél knúinni mengunarlausu eldsneyti í arðbært farþegaflug á næsta áratug. Þetta kom fram á árlegum fundi forystumanna Airbus á dögunum.

For­setinn fyrstur far­þega í raf­magns­flug­vél

Blað var brotið í íslenskri flugsögu í gær með fyrsta farþegaflugi rafmagnsflugvélar hér á landi. Forseti Íslands og forsætisráðherra voru fyrstu farþegar vélarinnar og segja flugið marka vatnaskil í vegferð Íslands í átt að hreinni orku í loftsamgöngum. 

Flugvél flýgur í fyrsta sinn í sögunni á íslenskri raforku

Fyrsta rafmagnsflugvél Íslendinga hóf sig til flugs í fyrsta sinn á Íslandi nú síðdegis frá flugvellinum á Hellu á Rangárvöllum. Þetta var jafnframt í fyrsta sinn sem flugvél flaug á íslenskri orku en ekki innfluttu jarðefnaeldsneyti.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×