Innlent

Leggja til að veiðigjaldið verði inn­leitt í skrefum

Silja Rún Sigurbjörnsdóttir skrifar
Sigurjón Þórðarson er þingmaður Flokks fólksins og formaður atvinnuveganefndar alþingis.
Sigurjón Þórðarson er þingmaður Flokks fólksins og formaður atvinnuveganefndar alþingis. Vísir/Anton brink

Þriðja umræðan um frumvarp atvinnuvegaráðherra hefst í dag eftir að 71. grein þingskapalaga var beitt í gær til að ljúka annarri umræðu. Frumvarpið fór fyrir atvinnuveganefnd í gær sem leggur til að veiðigjöldin verði innleidd í skrefum.

Eftir viðburðaríkan dag á þinginu fór veiðigjaldafrumvarpið fyrir atvinnuveganefnd sem boðaði fulltrúa Byggðastofnunar og Samtökum sjávarútvegssveitarfélaga á fundinn. Að honum loknum var lögð fram breytingartillaga, samþykkt af meirihluta nefndarinnar, þar sem lagt er til að frumvarpið verður innleitt í skrefum.

Rökstuðningur tillögunnar er sá að fulltrúar hagsmunaaðilanna sem sátu fundin höfðu miklar áhyggjur af áhrifum veiðigjaldanna og sé verið að reyna koma til móts við þá með breytingunni.

Hér má lesa nánar um vendingar gærdagsins: 

Einnig er lagt til að Byggðastofnun skuli meta áhrif veiðigjaldsins á sjávarútvegssveitarfélögin. Skila eigi skýrslu fyrir árslok 2027. Í greinagerð tillögunnar segir að meirihluti atvinnuveganefndar telji það mikilvægt að slík áhrif verið metin út frá byggðasjónarmiðum.

María Rut Kristinsdóttir, þingmaður Viðreisnar, situr í nefndinni en hún tjáði sig um fundinn í Facebook færslu í gærkvöld, líkt og RÚV greindi fyrst frá. Þar lýsir hún fundinum sem góðum og segir fulltrúa hagsmunaðila hafa greint skýrt og vel frá sinni hlið.

„Þetta eru skref sem tekin eru vegna þess að málefnaleg rök hafa verið lögð fram af hálfu þessara aðila. Þannig höfum við unnið málið frá upphafi,“ skrifar María Rut.

María segir einnig að minnihlutinn hafi ítrekað hafnað breytingartillögunum sem samþykktar voru af meirihlutanum.

Þingfundur hófst klukkan tíu í dag þar sem þriðja umræða um frumvarpið hefst. Að loknum þingfundi í gær hefur málið verið rætt í rúmar 160 klukkustundir.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×