Neytendur

Gagn­rýna seina­gang olíu­fé­laganna og ýja að sam­ráði

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
ASÍ gagnrýnir að neytendur njóti ekki góðs af styrkingu krónunnar.
ASÍ gagnrýnir að neytendur njóti ekki góðs af styrkingu krónunnar. Vísir/Hanna

ASÍ gagnrýnir harðlega seinagang íslensku olíufélaganna þegar kemur að söluverði á bensíni og ýjar að samráði. Verð félaganna breytist iðullega á sama tíma og þá jafn mikið. Hagfellt samspil heimsmarkaðsverðs olíu og gengis íslensku krónunnar hafi lítil áhrif á verð á bensíni.

Í samantekt sem birt er á vef ASÍ má sjá hvernig heimsmarkaðsverð á olíu hefur lækkað töluvert á árinu á meðan lægsta verð á bensíni hér á landi hefur svo til staðið í stað. 

Þá segir ASÍ að þegar litið sé til lægstu verða innan hvers olíufélags séu glögg merki um samræmda verðlagningu meðal fyrirtækja. Atlantsolía, N1, Orkan og ÓB auglýsi sérstaklega afgreiðslustöðvar, þar sem boðið er upp á lægsta verð innan fyrirtækis. Þar fylgist verðlag og breytingar að.

Olís og Costco skilji sig frá þessari þyrpingu, en þó með öfugum formerkjum. Lægsta verð Olís hafi verið 22 krónum hærra en á afsláttarstöðvunum hjá fyrrnefndum félögum, í byrjun mánaðar. Costco bjóði sem fyrr upp á ódýrasta bensínið (267,7 krónur á lítrann) á sinni einu stöð í Garðabæ en aðeins fyrir viðskiptavini Costco sem greiða árgjald.

„Greiningaraðilar hafa, á síðustu misserum, greint frá róstusömum tímum á heimsmarkaði með olíu. Opec+ ríkin hafa aukið við framleiðslu sína, en átök í Vestur-Asíu og væringar vestanhafs hafa einnig leitt til verðsveiflna. Sem stendur er bensín til afhendingar í New York höfn nú jafn dýrt og í upphafi árs, þegar greitt er með Bandaríkjadollar. Styrking íslensku krónunnar gagnvart dollar veldur því að sami bensínlítri hefur lækkað um tæp 14% í krónum talið, það sem af er ári,“ segir á vef ASÍ.

Frá janúar 2025 til fyrri hluta ágústmánaðar hefur mánaðarmeðaltal lægsta verðs innanlands einungis lækkað um 2,5%, samanborið við 13,7% lækkun heimsmarkaðsverðs í krónum. Styrking krónunnar gengur íslenskum neytendum því úr greipum.

https://infogram.com/throun-heimsmarkadsverds-og-gengis-arid-2025-1hnq41o1mv8yp23





Fleiri fréttir

Sjá meira


×