Þyrla ræst úr og ríflega hundrað björgunarsveitarmenn: Leita að týndum tólf ára dreng við Ölfusborgir Agnar Már Másson skrifar 29. ágúst 2025 23:30 Á annan hundrað björgunarsveitarmanna eru á vettvangi. Landsbjörg Um 150 björgunarsveitarmenn leita tólf ára pilts sem týndist í Ölfusborgum síðdegis í dag. Drengurinn er erlendur ferðamaður og því ekki kunnugur staðháttum.
Greint var frá því fyrr í kvöld að viðbragðsaðilar leituðu drengs sem týndist í Ölfusborgum eða nágrenni milli Hveragerðis og Selfoss. Leit stendur enn yfir. Að sögn lögreglu sást drengurinn hafi síðast um klukkan 16 í Ölfusborgum. Þegar foreldrar hans hafi haft samband við lögreglu um klukkan 17 hafi þau þegar leitað hans í um einn og hálfan tíma. Á annan hundrað björgunarsveitarmanna eru á vettvangi.Landsbjörg Í tilkynningu frá Landsbjörg segir að björgunarsveitum á Suðurlandi frá Hveragerði að Þjórsá og björgunarsveitum á Höfuðborgarsvæðinu hafi mætt á vettvang. Nú upp úr klukkan 22 hafi björgunarsveitir af Suðurnesjum boðaðar út til aðstoðar við leitina. Drengurinn er með sítt, dökkt hár sem bundið var í hnút, að sögn lögreglu, og klæddist hann svartri hettupeysu, svörtum buxum og skóm með camo mynstri. Lögregla biður þá sem telja sig hafa upplýsingar um drenginn að láta lögreglu vita í síma 112. Björgunarsveitarmenn á vettvangi við Ölfusborgir.Landsbjörg Björgunarsveitarmenn á vettvangi við Ölfusborgir.Landsbjörg Garðar Már Garðarsson, varðstjóri hjá lögreglunni á Suðurlandi sagði fyrr í kvöld að leitarhundar hefðu verið ræstir út. Auk þess hafa lögreglumenn frá höfuðborgarsvæðinu komið til að aðstoða. Bjögunarsveitir leita m.a. með drónum með hitamyndavélum og hefur þyrla Landhelgisgæslunnar jafnframt verið boðuð til leitar úr lofti.
Ölfus Björgunarsveitir Lögreglumál Mest lesið Kvaddi hundinn sem bjargaði lífi hennar uppi í rúmi Innlent Innlit á Litla-Hraun í erlendri heimildarmynd Innlent Mannfallið að nálgast tvær milljónir Erlent Svíar líta til kjarnorkuvopna Erlent Tónninn breytist með yfirmannaskiptum hjá ICE Erlent Þrír eldar á sama tíma á höfuðborgarsvæðinu Innlent Sjóðir að tæmast og uppsagnir í kortunum Innlent Níu ferðamenn á ísnum og heil rúta í viðbót á leiðinni Innlent Þórdís Kolbrún blæs á sögusagnir um vistaskipti Innlent Engar kveðjur fengið frá Kristrúnu Innlent Fleiri fréttir Kvaddi hundinn sem bjargaði lífi hennar uppi í rúmi Þrír eldar á sama tíma á höfuðborgarsvæðinu Innlit á Litla-Hraun í erlendri heimildarmynd Púðurtunnan Vestanhafs, þandar taugar og hörð lending Engar kveðjur fengið frá Kristrúnu Borgarfulltrúi fer ekki aftur fram og hættir í Pírötum Ekki hægt að fullyrða að andlát hafi tengst Covid-19 bólusetningu „Einfaldlega ósammála“ gagnrýni ráðuneytisins Kynna einn frambjóðanda á dag næstu daga Ekki skrýtið að eitthvað bresti vegna álags á framlínustarfsmenn Tveir grunaðir um að rækta hundruð kannabisplantna Verkalýðshreyfingin úti á túni með sitt tal? Mál rússnesku fjölskyldunnar: Króatía sé talið öruggt land Enga ákvörðun tekið um Þórdísi Kolbrúnu Heiða tekur annað sætið í Reykjavík Meiri hveralykt af vatninu vegna viðhalds og viðgerðar Sjóðir að tæmast og uppsagnir í kortunum Heiða hefur ekki heldur svarað uppstillingarnefnd Helga Kristín gengur til liðs við Miðflokkinn Innleiða bílnúmeralesara til að athuga hvar bílar eru skráðir Stefnir í hallarekstur og uppsagnir hjá Stígamótum „Þetta er auðvitað glæsilegt fyrir flokkinn“ Þingfundi ekki frestað vegna handboltans Leitað að fleira fólki á lista Samfylkingarinnar í Reykjavík Þórdís Kolbrún blæs á sögusagnir um vistaskipti Eldur kviknaði í Strætó Starfslokasamningar kostað undirstofnanir fleiri hundruð milljónir Taka á móti fyrstu drengjunum í meðferð í lok febrúar Fannst vanta stemmningu í skólann og skipulögðu handboltamót Foreldrar loki á samskipti barna við ömmu og afa Sjá meira