Gaui Þórðar um Arnar: „Ekki eins og margir, kaþólskari en páfinn“
Guðjón Þórðarson, einn sigursælasti þjálfari íslenskrar fótboltasögu, fer fögrum orðum um sveitunga sinn Arnar Gunnlaugsson, þjálfarann titlaóða sem á dögunum jafnaði met Guðjóns. Arnar sé ekki eins og margir, kaþólskari en páfinn þegar kemur að boltanum og afar vel til þess búinn að taka skrefið út í heim í þjálfun.