
Biden leggur lokahönd á tillögur að breytingum á hæstarétti
Joe Biden Bandaríkjaforseti er að leggja lokahönd á tillögur að breytingum á lögum um hæstarétt, sem munu meðal annars fela í takmörk á skipunartíma dómara.
Forsetakosningar í Bandaríkjunum fóru fram 5. nóvember 2024 þar sem Repúblikaninn Donald Trump hafði betur gegn Demókratanum Kamölu Harris.
*Skv. New York Times
Joe Biden Bandaríkjaforseti er að leggja lokahönd á tillögur að breytingum á lögum um hæstarétt, sem munu meðal annars fela í takmörk á skipunartíma dómara.
Íranir hafnar ásökunum bandaríska embættismanna um samsæri til að ráða Trump af dögunum. Ásakanirnar tengjast þó ekki banatilræðinu gegn Trump á kosningafundi í Pennsylvaníu á laugardaginn síðasta. Íranir þvertaka fyrir aðild að því.
Nikki Haley, fyrrverandi keppinautur Donald Trump í forvali Repúblikanaflokksins fyrir foretakosningarnar í Bandaríkjunum, fór fögrum orðum um manninn þegar hún steig á svið á landsþingi flokksins í gær.
Sérfræðingar í utanríkismálum eru uggandi eftir að Donald Trump tilkynnti um val sitt á varaforsetaefni. Valið bendi til þess að einangrunarhyggja muni mögulega ráða för í utanríkispólitík Bandaríkjanna ef Trump nær kjöri.
Öryggisgæsla í kring um Donald Trump var fyrir nokkrum vikum aukin þegar bandarísk yfirvöld komust á snoðir um að yfirvöld í Íran hafi ætlað að ráða Trump af dögum.
Á landsþingi Repúblikanaflokksins í Wisconsinfylki í gær var tilkynnt að J.D. Vance yrði varaforsetaefni Trumps í komandi forsetakosningum í Bandaríkjunum. Vance er ekki ýkja þekktur á heimsvísu en hefur verið þekkt stærð í bandarískum stjórnmálum síðan hann var kjörinn öldungadeildarþingmaður árið 2022, 38 ára að aldri.
Auðjöfurinn Elon Musk hyggst leggja kosningabaráttu Donald Trump til 45 milljónir dala á mánuði en hann hefur þegar gefið umtalsverðar upphæðir til framboðsins.
Stjórnmálafræðiprófessor segir fátt hafa getað verið Donald Trump hagfelldara en atburðarásin á kosningafundi hans á laugardag. Hann sé kominn í dauðafæri í baráttunni um forsetaembættið og hann þurfi að geiga verulega til að klúðra því.
James David Vance, tilvonandi varaforsetaefni Donalds Trump, hefur ekki verið í fylkingu forsetans fyrrverandi um langt skeið, en virðist í dag einn af hans dyggustu stuðningsmönnum. Stjórnmálamenn velta því upp hvort Vance, sem sagði meðframbjóðanda sinn asna og vítaverðan opinberlega fyrir átta árum, sé drifinn af tækifærismennsku.
Donald Trump fyrrverandi Bandaríkjaforseti og forsetaframbjóðandi Repúblikanaflokksins tilkynnti fyrir skömmu að J.D. Vance yrði varaforsetaefni í framboði hans. James David Vance er öldungadeildarþingmaður frá Ohio og er 39 ára gamall
Donald Trump hefur enn ekki greint frá því hvern hann hyggst útnefna sem varaforseta efni sitt en hann er sagður hafa farið fram og til baka, líkt og árið 2016.
„Ég á að vera dauður,“ sagði Donald Trump við New York Post í gær, þegar hann ræddi við miðilinn um banatilræðið sem hann lifði af. Hann sagði upplifunina hafa verið „afar súrrealíska.“
Joe Biden Bandaríkjaforseti ávarpaði bandarísku þjóðina frá Hvíta húsinu í gærkvöldi og hvatti til samstöðu gagnvart sundrung og reiði. Hann sagði of mikinn hita og reiði einkenna pólitíska orðræðu í landinu og hvatti menn til að „kæla hana niður“.
Tveir karlmenn, einn á sextugsaldri og annar á áttræðisaldri, voru fluttir á sjúkrahús alvarlega særðir eftir skotárásina á kosningafundi Donalds Trump í gær, þegar einn lést og árásarmaðurinn var skotinn til bana. Ástand mannanna tveggja er sagt stöðugt.
Formaður utanríkismálanefndar segir skautun í stjórnmálum áhyggjuefni hér á landi sem og í útlöndum. Blammeringar gagnvart íslenskum ráðamönnum fyrir að óska Donald Trump góðs bata í kjölfar skotárásarinnar í gær séu í anda skautunar og hana beri að varast.
Erlendir miðlar greina frá því að sprengjur hafi fundist í bíl Thomasar Crooks, sem og á heimili hans. Bíllinn fannst nálægt svæðinu þar sem kosningafundurinn fór fram í gær.
„Ég hugsa nú til ykkar, mínir kæru Bandaríkjamenn. Við höfum alltaf verið sérstakt bandalag. Núna hriktir í grunnstoðum landsins okkar, en hugrekkið og skynsemin verða að rísa og sameina okkur á ný.“ Þetta eru upphafsorð yfirlýsingar sem Melania Trump gaf frá sér í dag, í kjölfar skotárásarinnar á eiginmann hennar Donald Trump. Þar sagði hún að mikilvægt væri að sýna fólki virðingu og að ástin væri ofar öllu.
Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir utanríkisráðherra hefur bæst í hóp þeirra stjórnmálamanna sem fordæmt hafa árásina á Donald Trump, fyrrverandi forseta Bandaríkjanna, í gær.
Ljósmyndari New York Times, Doug Mills, var að mynda kosningafund Donald Trumps fyrrverandi Bandaríkjaforseta þegar skotárás, sem beindist að Trump, var framin. Mills náði mynd sem virðist sýna byssukúlu fljúga fram hjá Trump.
Silja Bára Ómarsdóttir, prófessor í stjórnmálafræði við Háskóla Íslands og sérfræðingur í bandarískum stjórnmálum, telur líklegt að morðtilræðið gegn Donald Trump í gærkvöldi komi til með að styrkja kosningabaráttu hans, að minnsta kosti til skemmri tíma.
Bandaríska leyniþjónustan er í brennidepli í kjölfar skotárásar sem beindist að Donald Trump fyrrverandi Bandaríkjaforseta í gærkvöldi.
Donald Trump hefur sent frá sér yfirlýsingu í kjölfar skotárásar sem beindist gagnvart honum í kosningafundi í Pennsylvaníu í gær. Hann segir Guð hafa bjargað sér.
Bjarni Benediktsson, forsætisráðherra Íslands, fordæmir skotárás sem beindist gegn Donald Trump fyrrverandi Bandaríkjaforseta, sem var framin í gær.
Skotárás sem beindist að Donald Trump fyrrverandi Bandaríkjaforseta í gærkvöldi var framin á fjölmennum kosningafundi í Pennsylvaníuríki, nánar tiltekið á vinsælum samkomustað við bæinn Butler.
Elon Musk, auðugasti maður heims, hefur farið mikinn á eigin samfélagsmiðli, X, í kjölfar skotárásar sem beindist að Donald Trump fyrrverandi Bandaríkjaforseta í gærkvöldi. Musk lýsir yfir stuðningi við Trump.
Maðurinn sem er grunaður um að hafa skotið að Donald Trump fyrrverandi Bandaríkjaforseta í gær hét Thomas Matthew Crooks og var tvítugur. Leyniþjónusta Bandaríkjanna drap Crooks skömmu eftir að hann hleypti af nokkrum skotum sjálfur.
Donald Trump fyrrverandi Bandaríkjaforseti var fluttur á sjúkrahús í snarhasti eftir að skotum var hleypt af á kosningafundi í Pennsylvaníuríki í kvöld. Þátttakandi á fundinum lét lífið og annar var fluttur á sjúkrahús alvarlega særður. Byssumaðurinn var skotinn til bana af leyniþjónustumönnum eftir árásina.
Joe Biden forseti Bandaríkjanna sýndi að hann hefur góða þekkingu og innsýn í utanríkis- og varnarmál á blaðamannafundinum sem hann hélt í gær. Þetta er mat Friðjóns Friðjónssonar, borgarfulltrúa og áhugamanns um bandarísk stjórnmál, sem var álitsgjafi í kvöldfréttum Stöðvar 2. Ætli Biden sér að vinna kosningarnar þurfi hann hins vegar að standa sig vel í öðrum málum. Hann segir Biden eiga langa sögu af mismælum, en nú sé auðvelt fyrir andstæðinga að nota mismælin gegn honum.
Þrír bættust í hóp þeirra þingmanna Demókrataflokksins sem kalla nú eftir því að Joe Biden Bandaríkjaforseti stígi til hliðar í forsetakosningunum vestanhafs eftir blaðamannafund forsetans í gærkvöldi.
Tveir af hverju þremur Bandaríkjamönnum segir Joe Biden Bandaríkjaforseta eiga að draga sig í hlé í forsetakosningunum vestanhafs. Alls eru 56 prósent Demókrata sama sinnis og sjö af hverjum tíu óháðum.