Keflavíkurkonur í lokaúrslitin í fimmtánda sinn - unnu KR 70-62 Keflavík tryggði sér sæti í lokaúrslitum um Íslandsmeistaratitilinn með átta stiga sigri á KR-konum, 70-62, í DHL-höllinni í kvöld. Þetta er í fimmtánda sinn sem Keflavíkurkonur spila til úrslita um titilinn en janframt í fyrsta sinn síðan 2007 sem KR-liðið fer ekki alla leið í úrslit. Keflavík vann tvo síðustu leiki einvígisins og þar með einvígið 3-1. Keflavík mætir Hamar eða Njarðvík í lokaúrslitunum en þau spila oddaleik í Hveragerði á þriðjudagskvöldið. Körfubolti 27. mars 2011 21:00
Njarðvíkurkonur tryggðu sér oddaleik á móti deildarmeisturunum Kvennalið Njarðvíkur heldur sigurgöngu sinni áfram í Ljónagryfjunni í dag en liðið tryggði sér oddaleik um sæti í lokaúrslitum með níu stiga sigri á Hamar, 79-70. í úrslitakeppni Iceland Express deild kvenna. Körfubolti 26. mars 2011 16:30
Hrafn: Eigum eftir að vinna hér í Keflavík „Við komum alveg hræðilega til leiks hér í kvöld,“ sagði Hrafn Kristjánsson, þjálfari KR, eftir ósigurinn í kvöld. KR tapaði fyrir Keflavík, 76-64, í þriðja leiknum um laust sæti í úrslitarimmu Iceland-Express deild kvenna. Keflavík leiðir því einvígið 2-1. Körfubolti 25. mars 2011 21:46
Jón Halldór: Sýndum frábæran karakter "Það er alveg gríðarlega mikilvægt fyrir okkur að hafa náð að landa þessum sigri,“ sagði Jón Halldór Eðvaldsson, þjálfari Keflavík, eftir sigurinn í kvöld. Keflavík leiðir nú einvígið, 2-1, í undanúrslitum Iceland-Express deild kvenna eftir að hafa unnið góðan sigur gegn KR, 76-64, í kvöld. Körfubolti 25. mars 2011 21:38
Umfjöllun: Frábær byrjun skilaði Keflavík sigri gegn KR Keflavík vann virkilega mikilvægan sigur, 76-64, gegn KR í undanúrslitum Iceland-Express deild kvenna í kvöld og leiða því einvígið 2-1. Keflvíkingar byrjuðu leikinn frábærlega og náðu mest 21 stigs forskoti í fyrri hálfleik. KR-stúlkur neituðu aftur á móti að gefast upp og minnkuðu muninn niður í tvö stig í síðari hálfleik, en lengra komust þær ekki og heimastúlkur fóru því með sigur af hólmi. Körfubolti 25. mars 2011 20:57
Nýr Kani með Keflavík í kvöld Keflvíkingar hafa fengið nýjan bandarískan leikmann fyrir leik liðanna gegn KR í undanúrslitarimmu liðanna í Iceland Express-deild kvenna. Það er karfan.is sem greinir frá þessu. Körfubolti 25. mars 2011 17:34
Adamshick ristarbrotin og ekki meira með Keflavík Kvennalið Keflavíkur í körfubolta hefur orðið fyrir miklu áfall því bandaríski leikmaðurinn Jacquline Adamshick, sem hefur farið á kostum í vetur, er ristarbrotin og verður ekkert með meira með liðinu í úrslitakeppninni. Karfan.is segir frá þessu. Körfubolti 25. mars 2011 14:00
Sverrir: Vorum ekki tilbúin „Liðið var greinilega ekki tilbúið," sagði Sverrir Sverrisson, þjálfari Njarðvíkur eftir 83-47 tap gegn Hamar í kvöld. Körfubolti 24. mars 2011 21:24
Ólöf: Komnar með bakið upp við vegg „Við erum svo sannarlega komnar með bakið upp við vegg eftir hræðilega frammistöðu hér í kvöld," sagði Ólöf Helga Pálsdóttir, leikmaður Njarðvíkur eftir 83-47 tap gegn Hamar í Hveragerði. Körfubolti 24. mars 2011 21:22
Fanney: Þýðir ekkert að dvelja við þetta „Þetta var allt annar leikur en í síðasta leik og við erum mjög ánægðar með það," sagði Fanney Lind Guðmundsdóttir, leikmaður Hamars eftir 83-47 sigur gegn Njarðvík í kvöld. Körfubolti 24. mars 2011 21:21
Yngvi kom báðum Valsliðunum upp á innan við 24 tímum Valsmenn eru komnir upp í úrvalsdeild karla og úrvalsdeild kvenna í körfuboltanum eftir að bæði lið félagsins unnu úrslitaeinvígi sín á síðustu tveimur dögum. Yngvi Gunnlaugsson er þjálfari beggja liðanna og kom því báðum Valsliðunum upp á innan við 24 tímum. Körfubolti 24. mars 2011 11:30
Dýrmætur sigur KR án Köru - myndir KR jafnaði í gær metin í undanúrslitarimmu liðsins gegn Keflavík í úrslitakeppni Iceland Express-deild kvenna. KR vann þá ellefu stiga sigur, 75-64. Handbolti 23. mars 2011 08:30
Pálína: Vorum ekki að spila saman „Við vorum ekki að spila saman og þú vinnur ekki leiki ef það er ekki til staðar,“ sagði Pálína Gunnlaugsdóttir, leikmaður Keflavíkur eftir tap liðsins gegn KR í kvöld í DHL-höllinni, 75-64. Körfubolti 22. mars 2011 21:59
Umfjöllun: Vængbrotið KR-lið jafnaði metin Staðan í rimmu KR og Keflavíkur í undanúrslitum í úrslitakeppni Iceland Express deildar kvenna er jöfn, 1-1, eftir að KR hafði í kvöld sigur, 75-64, í öðrum leik liðanna. Leikurinn var jafn og spennandi en staðan í hálfleik var 37-38 fyrir Keflavík. Körfubolti 22. mars 2011 20:58
KR ekki bæði Kana- og Körulaust í kvöld - Melissa Jeltema mætt Kvennalið KR verður ekki bæði Kana- og Körulaust í kvöld því liðið hefur fundið sér leikmann til að leysa af Chazny Paige Morris sem reif liðþófa í fyrsta leik KR og Keflavíkur í undanúrslitum Iceland Express deildar kvenna. Körfubolti 22. mars 2011 14:45
Yfirlýsing frá KR: KR er sannfært um sakleysi Margrétar Köru KR-ingar hafa sent frá sér yfirlýsingu í tilefni af umfjöllun fjölmiðla um leikbann Margrétar Köru Sturludóttur og það að hún hafi verið kærð til lögreglu fyrir líkamsárás. Málið má rekja til þess að Margrét Kara sló til Haukakonunnar Maríu Lindar Sigurðardóttur í deildarleik Hauka og KR fyrir tæpum tveimur vikum. Körfubolti 22. mars 2011 11:30
Ólöf: Duga eða drepast í Hveragerði "Ég er mjög stolt af okkur, þetta var frábær heimasigur," sagði Ólöf Helga Pálsdóttir, leikmaður Njarðvíkur eftir 86-78 sigur á deildarmeisturum Hamars í kvöld. Körfubolti 21. mars 2011 21:29
Fanney: Njarðvík er með hörku lið "Þetta var engan veginn það sem við lögðum upp með, við förum í alla leiki til að vinna þá og það gekk ekki í dag enda spiluðum við illa," sagði Fanney Lind Guðmundsdóttir, leikmaður Hamars eftir 86-78 tap gegn Njarðvík. Körfubolti 21. mars 2011 21:27
Umfjöllun: Njarðvík jafnaði metin Njarðvík jafnaði í kvöld metin í einvígi sínu gegn deildarmeisturum Hamars í undanúrslitum úrslitakeppni Iceland Express-deildar kvenna. Körfubolti 21. mars 2011 20:46
Chazny Morris með rifinn liðþófa - ekki meira með KR í úrslitakeppninni KR-konur urðu fyrir öðru áfalli í gær þegar ljóst var að bandaríski leikmaðurinn Chazny Paige Morris er með rifinn liðþófa og verður ekki meira með í úrslitakeppninni. Körfubolti 21. mars 2011 17:00
Körulaust KR-lið tapaði - Hamar lagði Njarðvík Úrslitakeppni Iceland Express-deildar kvenna hófst í dag með tveimur leikjum. Hamar lagði þá Njarðvík á meðan Keflavík lagði KR í spennuleik. Körfubolti 19. mars 2011 17:52
Birna kemst aftur í skóna og verður með Keflavík á morgun Birna Valgarðsdóttir, fyrirliði kvennaliðs Keflavíkur, verður með liðinu í fyrsta leik undanúrslitaeinvígsins á móti KR á morgun. Birna hafði misst af síðustu þremur leikjum Keflavíkur eftir að hún meiddist í bikarúrslitaleiknum á móti KR. Körfubolti 18. mars 2011 17:15
Hrafn: Kara er mesta keppnismanneskja sem ég hef þjálfað Hrafn Kristjánsson, þjálfari KR, var í viðtali hjá Guðjóni Guðmundssyni, íþróttafréttamanni á Stöð 2 þar sem þeir ræddu leikbann leikmanns hans Margrétar Köru Sturludóttur. Margrét Kara var dæmd í tveggja leikja bann fyrir að slá til Haukastelpunnar Maríu Lindar Sigurðardóttur í leik Hauka og KR fyrir rúmri viku. Körfubolti 17. mars 2011 19:15
Margrét Kara: Þetta gerðist í einhverju bræðikasti í hita leiksins Margrét Kara Sturludóttir, leikmaður KR, var í viðtali hjá Guðjóni Guðmundssyni, íþróttafréttamanni á Stöð 2 þar sem þau ræddu leikbann Margrétar Köru en hún var dæmd í tveggja leikja bann fyrir að slá til Haukastelpunnar Maríu Lindar Sigurðardóttur í leik Hauka og KR fyrir rúmri viku. Körfubolti 17. mars 2011 18:45
María Lind kærir Margréti Köru til lögreglunnar Lögreglan í Hafnarfirði hefur staðfest að leikmaður Hauka hafi lagt inn kæru vegna líkamsárásar sem átti sér stað í leik Hauka og KR. Handbolti 17. mars 2011 15:07
Adamschick best í seinni hluta Iceland Express-deildar kvenna Nú rétt áðan var tilkynnt val á bestu leikmönnum í seinni hluta Iceland Express-deildar kvenna. Körfubolti 17. mars 2011 14:15
Margrét Kara missir af tveimur leikjum við Keflavík KR-ingurinn Margrét Kara Sturludóttir var í dag dæmd í tveggja leikja banna af Aga- og úrskurðanefnd KKÍ fyrir atvik sem gerðist í leik Hauka og KR í lokaumferð Iceland Express deild kvenna. Körfubolti 15. mars 2011 15:20
KR sló út Snæfell - rafmagnið fór af húsinu í lokin KR-konur tryggðu sér sér sæti í undanúrslitum í Iceland Express deild kvenna í körfubolta eftir átta stiga sigur á Snæfelli, 84-76, í Stykkishólmi í kvöld. KR mætir Keflavík í undanúrslitunum en liðin hafa mæst í öllum keppnum á tímabilinu og hefur Keflavík haft betur í öllum leikjunum. Leikurinn í Hólminum í kvöld tafðist nokkuð undir lokin eftir að rafmagnið fór af húsinu en Stykkishólmur var rafmagnslaus um tíma í kvöld. Körfubolti 14. mars 2011 21:10
Sigurganga Njarðvíkurkvenna heldur áfram - slógu út Hauka Njarðvík tryggði sér sæti í undanúrslitum í Iceland Express deild kvenna í körfubolta eftir 28 stiga sigur á Haukum, 83-55, í kvöld í öðrum leik liðanna í fyrstu umferð úrslitakeppninnar. Njarðvík vann einvígið 2-0 og er í undanúrslitum í fyrsta sinn síðan 2003. Njarðvík mætir deildarmeisturum Hamars í undanúrslitunum. Körfubolti 14. mars 2011 20:46
KR komið í 1-0 KR tók í dag forystu í einvígi sínu gegn Snæfelli í fyrstu umferð úrslitakeppni Iceland Express-deildar kvenna í dag. Körfubolti 12. mars 2011 19:05