
Ólafur áfrýjar dómnum til Landsréttar
Greint var frá því í dag að Ólafur hefði verið dæmdur í tveggja mánaða skilorðsbundið fangelsi fyrir ofbeldi í garð barnsmóður sinnar, m.a. fyrir að taka hana hálstaki, umræddan dag.
Fréttir af málum sem rata fyrir dómstóla.
Greint var frá því í dag að Ólafur hefði verið dæmdur í tveggja mánaða skilorðsbundið fangelsi fyrir ofbeldi í garð barnsmóður sinnar, m.a. fyrir að taka hana hálstaki, umræddan dag.
Ólafur William Hand, upplýsingafulltrúi og forstöðumaður markaðsmála á alþjóðasviði Eimskips, hefur verið dæmdur í tveggja mánaða skilorðsbundið fangelsi fyrir ofbeldi í garð barnsmóður sinnar að viðstöddu barni þeirra í júlí 2016.
Karlmaður hefur verið úrskurðaður í gæsluvarðhald grunaður um fjölda brota. Er hann grunaður um að hafa borið eld að dvalarstað sínum sem og að hafa ráðist á og meinað starfsmanni Landspítalans útgöngu úr viðtalsherbergi áður en hann dró upp ellefu sentimetra langan kjöthníf. Starfsfólk spítalans þurfti að yfirbuga og afvopna manninn.
Ákærum og dómum í heimilisofbeldismálum fjölgar og lögregla þarf sjaldnar að hafa ítrekuð afskipti af sama heimilinu eftir að verklagi var breytt fyrir fjórum árum. Tölur benda til að útköllum fjölgi um hátíðir. Aukin umræða hefur valdið viðhorfsbreytingu og nágrannar líta síður í hina áttina.
Meðferðarheimili fyrir börn sem glíma við hegðunar- og vímuefnavanda verður reist í Garðabæ. Forstjóri Barnaverndarstofu segir þörf fyrir meðferðarheimili á höfuðborgarsvæðinu til að geta boðið börnum upp á langtíma meðferð í sínu nærumhverfi.
Héraðsdómur Reykjavíkur viðurkenndi í dag bótaskyldu Embættis biskups Íslands og íslensku þjóðkirkjunnar vegna máls Páls Ágústs Ólafssonar.
Íslenska ríkið hefur verið dæmt til að greiða fyrrverandi starfsmanni Kvennaskólans í Reykjavík tíu milljónir vegna uppsagnar starfsmannsins árið 2016, sem hafði starfað í tólf ár við skólann sem umsjónarmaður húsakynna skólans.
Seljendur sauðfjárjarðar í Dalasýslu voru í Héraðsdómi Reykjavíkur í gær dæmdir til að greiða kaupendum 375 þúsund krónur vegna heyrúllna sem ekki voru á jörðinni við afhendingu hennar.
Landsréttur staðfesti í dag dóm Héraðsdóms Reykjavíkur þess efnis að Félag múslima á Íslandi sé skylt að greiða Haraldi Helgasyni rúmar 2,6 milljónir vegna vinnu Haralds sem trúnaðarmann sí samkeppni um hönnun mosku í Reykjavík.
Af þeim tíu dómum sem kveðnir hafa verið upp vegna peningaþvættis undanfarinn áratug og eru aðgengilegir á vef héraðsdómstólanna var krafist upptöku fjár í sjö málum. Ekki var krafist upptöku fjár í máli Júlíusar Vífils Ingvarssonar því frumbrot hans sem var skattalagabrot var löngu fyrnt og vildi saksóknari gæta meðalhófs en málið á sér engin fordæmi hér á landi.
Þorsteinn Már Baldvinsson, forstjóri Samherja, segir að það séu sér vonbrigði að bankaráð Seðlabankans hafi farið fram á frest til að svara erindi forsætisráðherra vegna hins svokallaða Samherjamáls.
Júlíus Vífill Ingvarsson, fyrrverandi borgarfulltrúi, hefur verið dæmdur í tíu mánaða skilorðsbundið fangelsi fyrir peningaþvætti.
Bára Halldórsdóttir, konan sem tók upp samræður þingmannanna sex á barnum Klaustri á dögunum, mun mæta til þinghalds í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag vegna mögulegs einkamáls á hendur henni vegna málsins. Fjöldi manns hyggst mæta fyrir utan héraðsdóm í dag til að sýna henni stuðning.
Landsréttur hefur mildað dóm Héraðsdóm Reykjavíkur yfir manni sem braut kynferðislega gegn dóttur sinni úr tólf mánaða fangelsi í níu mánaða fangelsi en þar af eru sex mánuðir skilorðsbundnir til þriggja ára.
Landsréttur mun fjalla um mál Guðmundar Spartakusar gegn Atla Má Gylfasyni á nýju ári.
Héraðssaksóknari hefur höfðað mál á hendur karlmanni fyrir brot gegn blygðunarsemi og stórfelldar ærumeiðingar gegn fyrrverandi kærustu sinni árið 2016.
Héraðsdómur Reykjavíkur hefur dæmt 18 ára karlmann í 18 mánaða fangelsi fyrir nauðgun með því að hafa í maí 2017 haft samræði við ólögráða stúlku án hennar samþykkis með því að beita hana ofbeldi og ólögmætri nauðung.
Þýskur karlmaður sem tók skútuna INOOK ófrjálsri hendi í Ísafjarðarhöfn laugardagskvöldið 13. október hlaut þriggja mánaða skilorðsbundinn dóm í Héraðsdómi Vestfjarða í dag.
Héraðsdómur Reykjaness hafnaði öllum málatilbúnaði félagsins.
Hemn Rasul Hamd, ríkisborgari með óþekktan dvalarstað, hefur verið dæmdur í tveggja og hálfs árs fangelsi fyrir að nauðga konu á salerni á veitingastaðnum Hressó í Austurstrætí í febrúar fyrir tæpum þremur árum.
Dyravörður á Shooters lamaðist fyrir neðan háls eftir árásina.
Ungi hælisleitandinn sem varð fyrir alvarlegri líkamsárás á Litla-Hrauni fyrr á árinu kemur til landsins til að gefa skýrslu við aðalmeðferð málsins.
Karlmaður var í Héraðsdómi Reykjavíkur fyrir tveimur vikum dæmdur til að sæta viðeigandi meðferð á geðdeild.
Konan var dæmd í tólf mánaða skilorðsbundið fangelsi fyrir árásina í héraði í mars.
Framkvæmdastjóri útgerðarfyrirtækisins Hugins segist bíða viðbragða frá íslenska ríkinu vegna hæstaréttardóms um bótaskyldu ríkisins vegna úthlutunar á makrílkvóta.
Maðurinn sem ákærður er fyrir að hafa stolið skútunni Inook í Ísafjarðarhöfn í október sagðist fyrir dómi að hann hefði ætlað að nota skútuna til að komast frá Ísafirði til Reykjavíkur.
Endurskoðunarfyrirtæki mat samanlagðan hagnaðarmissi útgerðanna tveggja um 2,6 milljarða króna.
Maðurinn er talinn hafa stefnt lífi og heilsu þá þriggja ára gamals sonar síns í ófyrirleitna og alvarlega hættu með háttsemi sinni. Hann er einnig ákærður fyrir að hafa rifbeinsbrotið lögreglumann sem sinnti útkallinu.
Sigurður Ragnar Kristinsson var í Héraðsdómi Reykjaness í dag dæmdur í 20 mánaða skilorðsbundið fangelsi fyrir meiriháttar skattalagabrot í rekstri verkatakafyrirtækisins SS verks ehf.