

Dómsmál
Fréttir af málum sem rata fyrir dómstóla.

Skilorðsbundin fangelsisvist fyrir fjárdrátt úr starfsmannafélagi
Konan játaði sekt við aðalmeðferð málsins en hún var dæmd til að greiða starfsmannafélagi VHE á Austurlandi skaðabætur upp á 6,6 milljónir króna.

Fimm og hálfs árs fangelsi fyrir tilraun til manndráps
Héraðsdómur Reykjavíkur dæmdi í dag Anton Örn Guðnason í fimm og hálfs árs fangelsi fyrir tilraun til manndráps og líkamsárás í október í fyrra er hann stakk mann í kviðinn með hnífi.

Í farbanni á meðan mál hans er til meðferðar hjá dómstólum
Í greinargerð lögreglustjóra sem vísað er til í úrskurði héraðsdóms kemur fram að maðurinn hafi komið til landsins með flugi frá Kaupmannahöfn. Tveimur dögum síðar var hann svo handtekinn grunaður um að hafa aðstoðað fjögurra manna fjölskyldu, hjón með tvö börn, við að koma ólöglega til landsins.

Ákærður fyrir kynferðisbrot gegn tveimur piltum
Landsréttur hefur staðfest að maður sem grunaður eru um að hafa brotið kynferðislega gegn tveimur piltum frá árinu 2015 og til byrjunar þessa árs og að brjóta gegn nálgunarbanni varðandi báða piltana skuli sæta gæsluvarðhaldi til 16. febrúar.

Fær sautján milljónir frá ríkinu eftir margra ára baráttu
Ástríður Pálsdóttir hefur frá árinu 2011 barist við ríkið vegna læknamistaka sem leiddu til dauða eiginmanns hennar.

3,5 árs fangelsi fyrir að brjóta gegn fimm ára dóttur
Dóttirin taldi sig hafa gert sömu mistök og pabbi sinn með því að snerta kynfæri hans.

Bein útsending: Jakob Möller fjallar um vald ráðherra við skipun dómara
Bein útsending frá hádegisfundi lagadeildar HR þar sem fjallað verður um sjálfstæði dómstóla og vald ráðherra til að skipa dómara.

Áfram í gæsluvarðhaldi grunaður um innflutning á verulegu magni fíkniefna
Annar mannanna sem hnepptir voru í tveggja vikna gæsluvarðhald fyrr í mánuðinum grunaðir um innflutning á verulegu magni fíkniefna var í dag úrskurðaður í áframhaldandi fjögurra vikna gæsluvarðhald á grundvelli almannahagsmuna.

Ákærður fyrir nauðgun og kynferðisbrot gegn barni
Málið var þingfest í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag

Fimm ára fangelsi: Játaði að hafa pressað MDMA í töflur en ekki væri um fíkniefnaframleiðslu að ræða
Gunnar Már Óttarsson flutti fíkniefnin til landsins í hvítum leðursófa.

Segir „frölludóm“ Hæstaréttar mikil vonbrigði
"Þessi tollur hefur áratugum saman verið rökstuddur sem verndartollur, en er núna allt í einu fjáröflunartollur.“

Markaðsmisnotkun í Glitni: Orðalag bankamanna beri ekki að skilja of bókstaflega
Ákveðin orðanotkun myndaðist í daglegum samskiptum starfsmanna Glitnis sem beri ekki alltaf að taka bókstaflega. Þetta er meðal þess sem kom fram í aðalmeðferð í markaðsmistnokunarmáli Glitnis í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag.

Niðurfelling LÖKE-málsins staðfest
Bogi Nilsson, settur ríkissaksóknari, hefur staðfest ákvörðun setts héraðssaksóknara um að fella niður hið svokallaða LÖKE-mál gegn Öldu Hrannar Jóhannsdóttur.

Sífellt fleiri leita réttar síns vegna flugfélaganna
Fulltrúi Samgöngustofu segir að mál þeirra borði hafi tvöfaldast á milli ára. Aukning í flugum spilar þar stóran þátt en einnig aukin meðvitund neytenda.

Hagtak krefst 174 milljóna vegna borhola í sjó neðan Klepps
Vertakafyrirtækið Hagtak hefur stefnt Faxaflóahöfnum til greiðslu 173,6 milljóna króna.

Meira en helmingur sér lögmennsku ekki sem framtíðarstarf
Níutíu prósent fulltrúa í lögmannastétt á Íslandi finna fyrir streitu í starfi og yfir helmingur þeirra sér ekki fyrir sér að starfa sem lögmaður í framtíðinni. Þetta sýna niðurstöður skýrslu starfshóps um starfsvettvang lögmanna en meginástæðan er að stór hópur telur sig ekki hafa tök á því að samræma fjölskyldulíf og vinnu svo vel sé.

Gert að greiða skaðabætur eftir keðjuverkandi áhrif óveðurs
Héraðsdómur Reykjavíkur hefur dæmt flugfélagið WOW air til þess að greiða tveimur farþegum tæplega 48 þúsund krónur hvorum um sig auk vaxta vegna tafa á flugferð frá London til Keflavíkur í lok árs 2016.

Tveggja og hálfs árs fangelsi fyrir nauðgun á Írskum dögum á Akranesi
Héraðsdómur Vesturlands hefur dæmt þrítugan karlmann í tveggja og hálfs árs fangelsi fyrir nauðgun.

Telur framgöngu dómsmálaráðherra hafa grafið undan trausti á nýtt dómstig
Helgi Hrafn, þingmaður Pírata og Sigríður Andersen dómsmálaráðherra tókust á um Landsréttarmálið.

Titlarnir teknir af lögmönnum
Lögmenn eru ekki lengur titlaðir sem héraðsdóms- eða hæstaréttarlögmenn í nýjum lögum um lögmenn, sem tóku gildi samhliða stofnun nýs millidómstigs, Landsréttar, þrátt fyrir að þeir hafi málflutningsréttindi þess efnis. Titlarnir hrl. og hdl. hafa þannig verið felldir úr gildi.

Átján mánaða dómur fyrir nauðgun sem leiddi til sjálfsvigstilraunar
Var manninum gefið að sök að hafa í herbergi í partýi haft önnur kynferðismök en samræði við skólasystur sína með því að notfæra sér að hún gat ekki spornað við verknaðinum sökum svefndrunga og ölvunar

Stakk lögreglumann með sprautunál og braust grímuklædd inn í gám
Kona á þrítugsaldri var undir lok síðasta árs í Héraðsdómi Norðurlands eystra dæmd í fimmtán mánaða fangelsi fyrir tvær líkamsárásir, fíkniefnabrot og tilraun til þjófnaðar. Hún var sýknuð af ákæru um þriðju árásina.

Banaslysið í Jökulsárlóni: Hættulegar starfsaðstæður virtar skipstjóranum til mildunar refsingar
Skipstjóranum sem dæmdur var í tveggja mánaða fangelsi fyrir manndráp af gáleysi í Héraðsdómi Austurlands í gær voru búnar hættulegar starfsaðstæður hjá ferðaþjónustufyrirtækinu sem hann starfaði hjá

Áverkar á konunni sambærilegir við beitingu kyrkingartaks með miklu afli
Karlmaður sem sakaður er um tilraun til manndráps er talinn hafa framvísað fölsuðum skilríkjum við komu til Íslands árið 2012.

Hundruð milljóna í ríkissjóð frá skipulagðri brotastarfsemi
Fjármunir sem gerðir eru upptækir renna beint í ríkissjóð. Ríkið hagnaðist um tæplega hundrað milljónir króna á síðustu tveimur árum og búast má við að upphæðin verði mun hærri í ár, eftir að lögregla haldlagði hátt í 200 milljónir króna á dögunum. Þá segist lögreglan ætla að spýta í lófana í þessum málefnum.

Banaslysið í Jökulsárlóni: Skipstjórinn dæmdur í tveggja mánaða fangelsi
Karlmaður á þrítugsaldri hefur verið dæmdur í skilorðsbundið fangelsi. Hann bakkaði hjólabát á kanadíska ferðakonu við Jökulsárlón sumarið 2015.

Deilan um vinnubúðir álversins fer fyrir dóm
Alcoa Fjarðaál hefur stefnt Stracta Konstruktion sem keypti gömlu vinnubúðirnar á Reyðarfirði árið 2012. Ætla að gagnstefna álverinu og krefjast 128 milljóna auk virðisaukaskatts. Fjarðaál setti vegartálma en er ekki búið að selja.

Íhugar málsókn vegna skipan héraðsdómara
Átta héraðsdómarar voru skipaðir í gær. Tímahrak og einstrengingsleg afstaða dómnefndar þýddi að settur dómsmálaráðherra féllst á tillögur matsnefndar um hæfi dómara.

Lagði hendur á barnsmóður sína
Karlmaður var í Héraðsdómi Suðurlands dæmdur í þrjátíu daga skilorðsbundið fangelsi fyrir að ganga í skrokk á barnsmóður sinni á tjaldstæði á Suðurlandi.

Óupplýstur þjófnaður úr hirslu lögreglu
Enginn þarf að svara til saka fyrir það hvers vegna haldlagðir munir úr húsleitum tengdum rassíunni á kampavínsklúbbinn Strawberries hurfu úr hirslum lögreglu. Rannsóknir skiluðu ekki árangri.