Kemur í ljós hvort Hussein fái að gefa skýrslu á Íslandi Íslenska ríkið mun fyrir dómþingi í dag greina frá því hvort það hyggist verða við beiðni héraðsdómara um að flytja fatlaðan hælisleitanda aftur til Íslands til að hann geti gefið skýrslu milliliðalaust. Lögmaður mannsins segir mikilvægt að ríkið geri það í ljósi þeirra sérstöku aðstæðna sem uppi eru í málinu. Innlent 8. nóvember 2022 13:04
Telja túlkun endurupptökudóms vafa undirorpna Tveir dósentar í lögfræði telja að sú túlkun endurupptökudóms að hann geti ekki vísað málum sem voru dæmd í Hæstarétti til Landsréttar sé vafa undirorpin. Dómskerfið sé komið í pattstöðu hvað varðar endurupptöku sakamála vegna ólíkrar túlkunar dómstólanna tveggja á lögum. Innlent 8. nóvember 2022 12:09
Meintur banamaður í Ólafsfjarðarmálinu laus úr gæsluvarðhaldi Maður sem grunaður er um að hafa orðið manni að bana á Ólafsfirði í hefur verið látinn laus en gæsluvarðhald yfir honum rann út klukkan 18 í gærkvöldi. Innlent 8. nóvember 2022 06:26
Fallið frá áfrýjun sýknudóms þriggja af fjórum málum Sigur Rósar Fallið hefur verið frá áfrýjun á sýknudómi Héraðsdóms Reykjavíkur vegna þriggja af fjórum skattsvikamálum sem tengdust hljómsveitinni Sigur Rós. Ekki er ljóst hvað verður í máli Jóns Þórs Birgissonar, söngvara sveitarinnar. Innlent 7. nóvember 2022 17:51
Boðar frumvarp til að skera endurupptökudóm úr snörunni Dómsmálaráðherra segir að unnið sé að frumvarpi til þess að skýra lög um endurupptökudóm og leysa ágreining milli hans og Hæstaréttar. Ólík túlkun dómstiganna á lögunum leiddi nýlega til viðsnúnings í hrunmáli og fleiri gætu fylgt í kjölfarið. Innlent 6. nóvember 2022 10:19
Engin laun í leyfi vegna brjóstnámsaðgerðar Landsréttur segir að kynmisræmi teljist ekki sjúkdómur í skilningi laga. Trans manneskja sem fór í brjóstnámsaðgerð eigi því ekki rétt á launum í leyfi í kjölfar aðgerðarinnar. Landsréttur kvað upp dóm sinn í vikunni. Innlent 5. nóvember 2022 22:13
Taldi ákæru í nauðgunarmáli ekki samræmast framburði brotaþola Landsréttardómari vildi vísa frá nauðgunarmáli þar sem hann taldi að ákæra héraðssaksóknara væri ekki í samræmi við framburð brotaþola af atvikum. Fangelsisdómur í málinu var mildaður um sex mánuði. Innlent 5. nóvember 2022 11:06
Tveggja ára dómur fyrir stórfelld brot gegn barnsmóður og árás á samfanga Landsréttur þyngdi fangelsisdóm yfir karlmanni sem var sakfelldur fyrir ítrekuð og stórfelld brot gegn barnsmóður sinni og sérstaklega hættulega líkamsárás á samfanga í gær. Hann var dæmdur í tveggja ára fangelsi en héraðsdómur hafði áður dæmt hann í fimmtán mánaða fangelsi. Innlent 5. nóvember 2022 08:29
Ríkið sýknað á ný af milljónakröfu Sigurðar G. Hæstaréttarlögmaðurinn Sigurður G. Guðjónsson beið á ný í lægri hlut í dómsmáli sem hann höfðaði á hendur íslenska ríkinu vegna úrskurðar ríkisskattstjóra frá 2018 vegna vangoldinna skatta. Sigurður krafðist rúmlega 25 milljóna króna auk dráttarvaxta. Landsréttur staðfesti dóm héraðsdóms að öðru leyti en um málskostnað og féll hann niður á báðum dómstigum. Innlent 4. nóvember 2022 22:19
Myndi misbjóða réttlætiskennd almennings gangi hann laus Landsréttur hefur staðfest úrskurð héraðsdóms um gæsluvarðhald yfir Shpetim Qerimi, sem dæmdur var í 14 ára fangelsi fyrir samkverknað í morði Angjelin Sterkaj á Armando Bequirai. Fyrir liggur að Shpetim hyggist áfrýja dómi Landsréttar til Hæstaréttar. Telur Landsréttur að það myndi misbjóða réttlætiskennd almennings, gangi hann laus meðan beðið er endanlegs dóms í málinu. Innlent 3. nóvember 2022 21:18
Sex sakfelldir fyrir svik úr Ábyrgðasjóði launa Sex íslenskir karlmenn hafa verið sakfelldir fyrir umfangsmikil og nokkuð flókin svik úr Ábyrgðasjóði launa. Sjóðurinn virðist hafa verið blekktur til að halda að mennirnir hafi starfað hjá fyirtækjum sem urðu gjaldþrota. Innlent 3. nóvember 2022 11:11
Endurupptökudómur lætur ekki segjast: Sakborningar í hrunmálum fá vægari dóma Endurupptökudómur hefur fallist á beiðni Ívars Guðjónssonar, fyrrverandi forstöðumanns eigin fjárfestinga Landsbankans, um endurupptöku og vísað málinu til Hæstaréttar. Hæstiréttur hafði áður vísað sambærilegu máli frá réttinum þar sem dómarar töldu málinu ranglega vísað til réttarins. Endurupptökudómur lætur ekki segjast og heldur áfram að vísa málum til réttarins. Dósent við lagadeild HÍ telur þau vinnubrögð ótæk. Innlent 3. nóvember 2022 08:13
„Þetta er alveg gífurlegt óréttlæti hvernig komið er fram við okkur“ Kona sem höfðaði mál geng íslenska ríkinu og Tryggingastofnun vegna skerðingar í almannatryggingakerfinu segir gífurlega óréttlátt hvernig komið er fram við eldri borgara. Hún ásamt félögum sínum í Gráa hernum tapaði máli sínu í Hæstarétti í dag og íhugar nú að leita til Mannréttindadómsstóls Evrópu. Innlent 2. nóvember 2022 17:33
Seldi fyrst, stal svo en afhenti aldrei góssið Rúmlega tvítugur karlmaður var á mánudaginn dæmdur í 45 daga fangelsi fyrir þjófnað, fjársvik og peningaþvætti. Einkaréttarkrafa Íslenskra aðalverktaka var felld niður þar sem enginn á þeirra vegum sótti þing við þingfestingu málsins. Innlent 2. nóvember 2022 16:18
Grái herinn tapaði í Hæstarétti Dómur Héraðsdóms Reykjavíkur í málum Gráa hersins gegn Tryggingastofnun og íslenska ríkinu skulu vera óraskaðir. Þetta er niðurstaða Hæstiréttar sem kvað upp dóm í málunum í dag. Innlent 2. nóvember 2022 14:36
Réðst á starfsmann sem gómaði hann við að stela Rétt rúmlega tvítugur karlmaður var í gær dæmdur í þrjátíu daga skilorðsbundið fangelsi fyrir að hafa ráðist á starfsmann Nettó í Mjódd. Starfsmaðurinn hafði gómað manninn við að stela. Innlent 2. nóvember 2022 11:32
Letti sem kvaðst hafa snúið við blaðinu hér á landi framseldur heim Landsréttur hefur staðfest ákvörðun ríkissaksóknara um að verða við beiðni lettneskra yfirvalda um framsal á lettneskum ríkisborgara sem búsettur hefur verið hér á landi í þrjú ár. Þarlend yfirvöld vilja að maðurinn afpláni fimm ára dóm fyrir að hafa verslað með átján grömm af amfetamíni. Maðurinn kvaðst hafa snúið við blaðinu hér á landi. Innlent 1. nóvember 2022 10:37
Sakaður um tryggingasvik en hafði betur og fær bætur Ökumaður sem tryggingafélagið Vörður sakaði um tryggingasvindl, án árangurs, á rétt á greiðslu bóta úr slysatryggingu sem maðurinn var með hjá félaginu. Ökumaðurinn hafði betur gegn tryggingafélaginu í Landsrétti og í héraðsdómi. Innlent 31. október 2022 11:16
Segir þunga dóma endurspegla breytingu í undirheimum Afbrotafræðingur segir Rauðagerðismálið ólíkt öllu því sem sést hefur áður hér á landi. Í því ljósi sé skiljanlegt að dómur Landsréttar yfir sakborningum hafi verið þyngri en sést hefur áður. Dómur yfir Angjelin Sterkaj, sem skaut Armando Beqirai til bana, var þyngdur í tuttugu ár og sýknu þriggja samverkamanna hans var snúið við og þeir dæmdir til fjórtán ára fangelsisvistar. Innlent 28. október 2022 22:14
„Það er verið að sakfella saklausan mann“ Lögmaður Murats Selivrada, eins þeirra sem voru í dag sakfelld fyrir að hafa í félagi hvert við annað myrt Armando Beqirai, segir niðurstöðu Landsréttar vera mikil vonbrigði. Innlent 28. október 2022 18:16
Angjelin dæmdur í tuttugu ára fangelsi og þremenningarnir sekir um samverknað Angjelin Sterkaj hefur verið dæmdur í tuttugu ára fangelsi fyrir morðið á Armando Beqirai. Landsréttur sneri við sýknu héraðsdóms yfir þremur samverkamönnum hans. Þau eru að mati Landsréttar öll sek um samverknað í morðinu og dæmd í fjórtán ára fangelsi. Innlent 28. október 2022 14:07
Ummæli Huga um Srdan Stojanovic dæmd dauð og ómerk Ummæli Huga Halldórssonar um körfuboltamanninn Srdan Stojanovic voru dæmd dauð og ómerk í Héraðsdómi Reykjaness. Þá þarf Hugi að greiða Srdan 150 þúsund krónur í miskabætur. Körfubolti 28. október 2022 13:15
Fjórir ákærðir í stóra kókaínmálinu Héraðssaksóknari hefur ákært fjóra menn í langstærsta kókaínmáli sem upp hefur komið á Íslandi. Farið verður fram á áframhaldandi gæsluvarðhald yfir mönnunum í dag. Innlent 28. október 2022 12:45
Tókst ekki að sanna meint einelti af hálfu Írisar Vestmannaeyjabær var í gær sýknaður af öllum kröfum fyrrverandi yfirhafnsögumanns Vestmannaeyjahafnar vegna þess að hann var ekki ráðinn í stöðu hafnarstjóra. Hann bar Írisi Róbertsdóttur bæjarstjóra Vestmannaeyjabæjar þungum sökum vegna meints eineltis í hans garð. Vestmannaeyjahöfn var hins vegar dæmd til að greiða manninum bætur vegna ágalla á ráðningarferlinu. Innlent 27. október 2022 20:18
Sýknuð af lyfjaakstri vegna ávísunar fra lækni Kona hefur verið sýknuð af því að aka undir áhrifjum slævandi lyfja. Konan var sýknuð á þeim grundvelli að læknir hafði ávísað lyfinu, hún hafi byggt upp þol gagnvart því og að ósannað væri að konan hafi verið undir áhrifum umræddra lyfja við aksturinn. Innlent 27. október 2022 13:12
Verða að láta duga að horfa á upptökuna hjá lögreglu Landsréttur hefur staðfest niðurstöðu Héraðsdóms Reykjavíkur þess efnis að lögregla þurfi ekki að afhenda manni, sem ákærður er fyrir líkamsárás, og lögmanni hans upptöku úr öryggismyndavél. Þeim stendur hins vegar til boða að skoða upptökurnar hjá lögreglu. Innlent 26. október 2022 12:32
Gripin með mikið magn af OxyContin í leggöngunum Pólsk kona var gripin í Leifsstöð með tæplega fimm hundruð töflur af ávana- og fíknilyfinu OxyContin í leggöngunum í apríl síðastliðnum. Fíkniefnasmyglið fór fram í félagi við annan mann og voru þau bæði dæmd í nokkurra mánaða fangelsi. Innlent 25. október 2022 19:36
Icelandair mátti reka Ólöfu Helgu Félagsdómur telur að Ólöf Helga Adolfsdóttir hafi ekki notið sérstakrar verndar sem trúnaðarmaður þegar Icelandair sagði henni upp störfum í fyrra. Ólöf Helga bauð sig fram til forseta Alþýðusambands Íslands og hefur verið í miðpunkti hatrammra deilna innan Eflingar. Innlent 25. október 2022 16:39
Dyngjan gefst upp og lokar áfangaheimili sínu Áfangaheimili Dyngjunnar, hið eina sinnar tegundar sem tekur á móti og veitir konum athvarf sem koma úr vímuefnameðferð og eiga hvergi höfði sínu að halla, mun að öllu óbreyttu hætta starfsemi um næstu áramót. Innlent 25. október 2022 15:55
Farbann hálfmáttlaust úrræði að mati vararíkissaksóknara Vararíkissaksóknari segir farbann sem úrræði vera hálfmáttlaust ef menn hafa á annað borð í hyggju að flýja land, sérstaklega fyrir sakamenn á Schengen-svæðinu. Fælingarmátturinn felist frekar í því að fólk hafi almennt ekki áhuga á að vera á flótta undan réttvísinni. Innlent 25. október 2022 13:33
Keppast við að tjá sig um skrif Þórðar: Kristrún taki stóra áhættu með að halda honum á lista Innlent
Leynilega upptakan á Edition-hótelinu: „Ef ég á að taka fimmta sætið vil ég verða þinn maður í þessu“ Innlent