Fastir pennar

Fastir pennar

Fréttamynd

Andspyrnuhreyfing

Skáldsagan „Prinsessan af Cleves" eftir Madame Lafayette, sem kom út 1678, er jafnan talin eitt af meistaraverkum franskra bókmennta, og auk þess brautryðjandaverk á sínu sviði; þarna kemur nefnilega fram á sjónarsviðið fyrsta „sálfræðilega skáldsagan" sem rituð var á frönsku, og vafalaust fleiri tungumálum, sem sé skáldsaga þar sem leitast er við að lýsa tilfinningum manna og kafa niður í sálarlífið

Fastir pennar
Fréttamynd

Blóð Busi Davi Dóri

Sama dag og síðustu fjöldamótmæli voru haldin á Austurvelli vegna hins hörmulega efnahagsástands átti ég leið um Langholtsveginn. Á horninu við Holtaveg stóð einmitt Helgi Hóseasson, mótmælandi Íslands, með prikið sitt og spjaldið. Óhagganlegur, friðsamur og svo dásamlega ómótstæðilegur að mig langaði mest að stökkva út úr bílnum og taka mér stöðu þarna hjá honum.

Bakþankar
Fréttamynd

Stórar ákvarðanir

Þörfin á að endurreisa traust Seðlabankans heima og erlendis hefur verið bæði ljós og brýn um hríð. Forystumenn Samfylkingarinnar hafa ítrekað leyst sjálfa sig undan ábyrgð í þeim efnum með yfirlýsingum. Eftir sem áður er stjórnskipuleg ábyrgð þeirra skýr eftir þingræðisreglunni.

Fastir pennar
Fréttamynd

Styttur bæjarins

Allt fram í lok september snerist helsta þrætuefni þjóðarinnar um það hvort reisa ætti styttu af Tómasi Guðmundssyni Reykja­víkurskáldi. Sjálfstæðismaðurinn Kjartan Magnússon,

Bakþankar
Fréttamynd

Ögurstund vestanhafs

Í dag ganga Bandaríkjamenn að kjörborði og velja sér nýjan forseta. Á lokasprettinum hefur Barack Obama haft nokkra forystu í skoðanakönnunum og eru það mikil tíðindi. Lengi hefur verið haft fyrir satt að Bandaríkjamenn væru of forpokaðir til þess að blökkumaður geti orðið forseti.

Fastir pennar
Fréttamynd

Finnska leiðin út úr kreppu

Litlar líkur eru á að einstaklingur muni nema einu sinni á ævinni upplifa slíkar hremmingar í efnahagslífi eins og þær sem nú ríða yfir Ísland. Það er því ákaflega mikilvægt að nýta eftir föngum reynslu annarra af því að bregðast við slíkum aðstæðum. Nú um helgina var leið Finna út úr efnahagskreppu sem þar herjaði upp úr 1990 mjög í umræðunni í tengslum við fund Samfylkingarinnar í gær þar sem meðal annars var rætt um þessa leið sem reyndist Finnum happadrjúg.

Fastir pennar
Fréttamynd

Tuggur tvær

Fyrir utan heilræðið um að við eigum nú að reyna að vera góð við börnin okkar - rétt eins og eitthvað annað hafi staðið til - þá held ég að tvær tuggur ráðamanna séu einna óbærilegastar um þessar mundir.

Fastir pennar
Fréttamynd

„Eigi skal gráta …“

Árið 1467 tóku Englendingar upp á því að drepa Björn Þorleifsson hirðstjóra og brytja niður lík hans í smábita svo að það er ekki eins og við Íslendingar höfum ekki áður fengið að smakka á enskri ofbeldishneigð.

Bakþankar
Fréttamynd

Hugmyndafræðin út úr skápnum

Það er kosningahugur í mörgum þessa dagana. Niðurstöður skoðanakannana kitla suma fulltrúa þeirra flokka sem skora þar hátt og almenningur er líka órólegur.

Fastir pennar
Fréttamynd

Frændur góðir

Ég hef lagt mig fram um að fylgjast ekki of vel með fréttum undanfarið. Það tekur tíma að átta sig á atvinnuleysi og öðrum fylgifiskum efnahagsástandsins. Fréttatíminn er ekki lengur eftirsóknarverður.

Bakþankar
Fréttamynd

Nóg komið

Á fimmtudag hlýddi ég í sjónvarpi á skýrslu forsætisráðherra um efnahagsmál og umræður um hana. Ég var búinn að ákveða að ef ég þyrfti enn eina ferðina að hlusta á sömu gömlu tuggurnar um traustar stoðir þjóðarbúsins og storm hinnar alþjóðlegu fjármálakreppu og annað slíkt, yrði þolinmæði mín á þrotum.

Bakþankar
Fréttamynd

Fólk þarf að eiga sér viðreisnar von

Í þeim aðstæðum sem þjóðin stendur nú frammi fyrir eftir að fjármálakerfi landsins hefur orðið alþjóðlegu fjármálakreppunni að bráð og óvissa ríkir um framtíðarhorfur margra ríður á að huga að því hvernig þjóðfélagið verður reist við á ný. Í þeim efnum er að mörgu að hyggja. Eitt er uppgjör við fortíðina.

Fastir pennar
Fréttamynd

Eftir atvikum

Sem betur fer þurfum við ekki að halda sönsum til að líkaminn sinni grunnskyldum sínum; hjartað heldur áfram að slá og lungun að draga andann jafnvel þótt við missum meðvitund. Þá ríður hins vegar á að skrúfa ekki fyrir súrefnið.

Bakþankar
Fréttamynd

Jafnvægið raskaðist

Margir kasta grímunni í kreppunni. Sjónvarpsstöð Baugsfeðga gerði þriðjudaginn 28. október skoðanakönnun um Davíð Oddsson. Niðurstöður voru kynntar svo, að 90% vildu Davíð burt. Þegar að var gáð, höfðu aðeins 40%, 800 af 2.000, svarað, svo að könnunin var ómarktæk vegna lágs svarhlutfalls. Í raun var niðurstaðan, að 36% (90% af 40%) vildu Davíð burt. Það er minna en búast mátti við eftir látlausar árásir Baugsmiðla á Davíð. Útrásarmenn reyna að kenna Davíð um eigið verk: Þeir stofnuðu til óhóflegra skulda.

Fastir pennar
Fréttamynd

Síðustu forvöð: Bókin

Ég birti fjórða ritgerðasafnið mitt Síðustu forvöð 1995. Þar er endurprentuð ritgerð mín um fjárhagshrun Færeyja frá árinu áður. Kveikjan að ritgerðinni var skínandi góð bók Eðvarðs T. Jónssonar fréttamanns, Hlutskipti Færeyja (1994), þar sem hann lýsir Færeyjum eins og skrípamynd af Íslandi.

Fastir pennar
Fréttamynd

Fréttamat á óvissutímum

Fjölmiðlar eru oft gagnrýndir fyrir að flytja fremur ótíðindi en fréttir af öllu því góða sem gerist í samfélaginu. Þetta er að mörgu leyti rétt því yfirleitt telst það fréttnæmara sem út af ber en hitt sem gengur sinn vanagang, jafnvel þótt eftirtektarvert sé og til eftirbreytni.

Fastir pennar
Fréttamynd

Ég, auðkýfingur

Það er sannarlega ömurlegt að góðærið sé búið. Ég var nefnilega búinn að sjá pottþétta leið til að koma sjálfum mér í hóp 20-30 ríkustu auðkýfinga landsins. Nú verð ég bara að bíða af mér storminn og koma sterkur inn næst. Ég er með pottþétt plan.

Bakþankar
Fréttamynd

Veruleikinn

Ágreiningur hefur verið um peningastefnuna um hríð. Aðalhagfræðingur Seðlabankans sagði fyrir rúmum tveimur árum að ávinningur af sjálfstæðri mynt væri minni en enginn. Bankastjórnin var staðföst í því að halda uppi fölsku gengi og fölskum lífskjörum með því að dæla inn erlendu lánsfé á háum vöxtum.

Fastir pennar
Fréttamynd

Reservoir Dogs

Sannarlega var að óreyndu útilokað að spá þeirri almennu fíkn í tíðindi af efnahagsmálum sem raunin hefur verið. Á meðan flest lék í lyndi svæfði mig að minnsta kosti umfjöllun um verðbréf og vísitölur ætíð á augabragði.

Bakþankar
Fréttamynd

Í spíks gúdd hingliss

Fyrir nokkru bárust út þau tíðindi af hinum umsvifamikla franska utanríkisráðherra Bernard Kouchner, að hann hefði lýst því yfir í viðtali við blaðið „Haaretz", að Íranar myndu aldrei eignast kjarnorkuvopn því áður en til nokkurs slíks kæmi myndu Ísraelsmenn „éta Íran".

Fastir pennar
Fréttamynd

Uppgjörstímabil að hefjast af þunga

Um miðja síðustu viku hófst uppgjörstímabil þriðja ársfjórðungs í Kauphöll Íslands með því að Nýherji skilaði inn ársreikningi sínum, fyrst skráðra fyrirtækja líkt og svo oft áður. Í gær bættist svo Össur í hópinn.

Fastir pennar
Fréttamynd

Atkvæðið er vopn almennings

Bið og óöryggi hefur einkennt líf þjóðarinnar þessar októbervikur. Bið eftir upplýsingum og óöryggi vegna þess að þær berast ekki. Boðað er að hlutir skýrist á morgun eða eftir helgi og fátt eitt gerist. Sagt er að aðrir hlutir komist í lag á morgun eða eftir helgi og í ljós kemur að þeir komast ekki í lag. Þarna nægir að nefna gjaldeyrisviðskiptin og stöðu peningamarkaðssjóða.

Fastir pennar
Fréttamynd

Töffarinn og nördinn

Þetta líf er svo skrykkjótt og ófyrirsjáanlegt að jafnvel gengi krónunnar virðist vera taminn flokksgæðingur í samanburði. En samt sem áður hefði ég átt að hafa séð fyrir hvernig færi fyrir bönkunum. Lífið var nefnilega búið að kenna mér eina lexíu en svo hef ég greinilega fallið þegar spurt var út í hana til prófs.

Bakþankar
Fréttamynd

Fólk framtíðarinnar

Það er margt sem maður sleppir núna og saknar ekki. Fattar allt í einu að maður hefur jafnvel verið að kaupa eitt og annað sem mann langar ekki einu sinni í," sagði vinur minn á sautjánda ári, þegar ég spurði hvernig hann og skólafélagar hans upplifðu ástandið í þjóðfélaginu.

Fastir pennar
Fréttamynd

Nýr dagur

Sólin reis upp í morgun á sínum tíma. Lífið gengur sinn vanagang. Ný vinnuvika er hafin. Við erum litlu nær um stöðu okkar. Eftirsjá og óvissa setja mark sitt á daginn. Bara ef við… En það þýðir lítið að sýta. Kapítalisminn reyndist stórgallað forrit, en vissum við það ekki? Hversu marga lukkuriddara höfum við séð falla sem hreyktu sér hvað hæst? Hversu oft höfum við séð hrungjarna stólpa standa um hríð og hverfa síðan á ruslahaug sögunnar?

Fastir pennar
Fréttamynd

Flatskjár og platskjár

Nokkuð er nú talað um að við þurfum öll að líta í eigin barm. Sagt er að við höfum öll dáð svo mjög útrásarvíkingana að við séum jafnvel á einhvern hátt samsek - ekki síst þau okkar sem varð það á að kaupa sér flatskjássjónvarp sem ævinlega er talað um eins og einhvers konar hástig óráðsíu Íslendinga, gott ef ekki sambærilega dellunni í auðmönnunum.

Fastir pennar
Fréttamynd

Get ég fengið reikninginn?

Ráðvillt ríkisstjórn hefur nú stjáklað fram og aftur í nokkrar vikur eins og kvíga með kálfssótt. Ástæðan er að gullgerðin brást en bullgerð tók við. Gullgerðarmenn eru flúnir úr landi en bullgerðarmennirnir sitja eftir.

Bakþankar
Fréttamynd

Prinsessan á bauninni

Tölvupósturinn sem erlendir vinir mínir hafa sent mér að undanförnu ber það með sér að þeir hafi áhyggjur af mér.

Bakþankar
Fréttamynd

Evrópusambandið er fyrir heimilin

Hvað ef?“ er forskeytið á ýmsum spurningum sem brenna á vörum fólks þessa dagana. Ein sú allra stærsta af því tagi er: Hvað ef Ísland hefði verið komið í Evrópusambandið og gjaldmiðill okkar evra en ekki króna? Hvernig væri staðan þá?

Fastir pennar
Fréttamynd

Íslenskt, já takk!

Akureyri mátti muna sinn fífil fegurri þegar ég var að alast þar upp. Ég er því ekki ein þeirra sem geta kallað fram bragðið af Valash-drykknum víðfræga með því einu að loka augunum og aldrei var ég svo heppin að eiga Duffys-buxur frá Gefjun. Hins vegar rámar mig í að hafa fengið Act-spariskó frá Iðunni tvenn jól í röð og á gelgjunni dró ég fram gamla mokkajakkann hennar mömmu, akureyrska framleiðslu frá gullaldarárum verksmiðjanna, sem var aftur kominn í tísku.

Bakþankar