Færri komust að en vildu Íslandsmótið í höggleik í golfi hefst á fimmtudaginn og fer mótið fram á Strandarvelli á Hellu að þessu sinni. Axel Bóasson úr Keili og Ólafía Þórunn Kristinsdóttir úr GR hafa titla að verja á mótinu. Golf 25. júlí 2012 06:00
Tvöfaldur Skolli: Hvernig er best að leika Strandarvöll? Íslandsmótið í höggleik í golfi fer fram á Strandarvelli á Hellu. Keppni hefst fimmtudaginn 26. júlí og eru allir bestu kylfingar landsins á meðal keppenda. Logi Bergmann og Þorsteinn Hallgrímsson fóru yfir það hvernig best er að leika Strandarvöll í þættinum Tvöfaldur Skolli sem sýndur er á Stöð 2 sport. Golf 25. júlí 2012 00:00
Biðlisti fyrir Íslandsmótið í höggleik | mikill áhugi hjá kylfingum Mikill áhugi er hjá íslenskum afrekskylfingum á Íslandsmótinu í höggleik í golfi sem hefst á fimmtudaginn á Strandarvelli á Hellu. Biðlisti er í karlaflokknum en 12 kylfingar eru á þeim lista. Alls eru 123 karlar skráðir til leiks og 27 konur. Golf 24. júlí 2012 10:30
Adam Scott segist ekki hafa farið á taugum Ástralski kylfingurinn Adam Scott segir að hann hafi ekki farið á taugum á síðustu holunum á lokakeppnisdegi opna breska meistaramótsins. Scott lék síðustu fjórar holurnar á fjórum höggum yfir pari og Ernie Els frá Suður-Afríku tryggði sér sigurinn á stórmótinu. Golf 23. júlí 2012 13:00
Gísli og Henning tryggðu sér sigur í rigningunni Gísli Sveinbergsson og Henning Darri Þórðarson, báðir úr GK, fögnuðu sigri í unglingaflokkum drengja á Íslandsmótinu í höggleik sem lauk á Kiðjabergsvelli í kvöld. Gísli sigraði í flokki drengja 15-16 ára en Henning í flokki 14 ára og yngri. Golf 22. júlí 2012 22:30
Ernie Els sigraði á Opna breska Suður-Afríkumaðurinn Ernie Els sigraði á Opna breska meistaramótinu í golfi sem lauk á Royal Lytham & St. Annes vellinum í dag. Golf 22. júlí 2012 17:34
Guðrún Brá og Ragnar Már Íslandsmeistarar unglinga í höggleik Guðrún Brá Björgvinsdóttir GK, Ragnhildur Kristinsdóttir GR, Saga Traustadóttir GR og Ragnar Már Garðarsson GKG urðu í dag Íslandsmeistarar í flokkum sínum á Íslandsmótinu í höggleik sem fram fór á Kiðjabergsvelli um helgina. Golf 22. júlí 2012 17:26
Tevez var kylfusveinn fyrir Andres Romero á opna breska Carlos Tevez, leikmaður Manchester City, nýtur þess að vera í fríi frá knattspyrnu og tók uppá því að vera kylfusveinn fyrir landa sinn Andres Romero á Opna breska meistaramótinu í golfi um helgina. Golf 22. júlí 2012 14:30
Ólafía Þórunn og Signý meðal efstu í Silkeborg Ólafía Þórunn Kristinsdóttir GR og Signý Arnórsdóttir GK komust báðar í gegnum niðurskurðinn á Dilac-mótinu en keppt er í Silkeborg í Danmörku. Berglind Björnsdóttir GR náði ekki í gegnum niðurskurðinn. Golf 22. júlí 2012 09:03
Guðrún Brá og Ragnar Már leiða fyrir lokadaginn á Íslandsmóti unglinga Guðrún Brá Björgvinsdóttir úr GK og Ragnar Már Garðarsson úr GKG hafa forystu fyrir lokahringinn á Íslandsmóti unglinga í höggleik en leikið er á Kiðjabergsvelli. Keppendur voru ræstir út snemma í morgun vegna slæmrar veðurspár og náðu flestir keppendur að ljúka leik við sómasamleg veðurskilyrði. Golf 21. júlí 2012 22:15
Góð forysta Adam Scott fyrir lokahringinn Ástralinn Adam Scott hefur fjögurra högga forskot fyrir lokahringinn á opna breska meistaramótinu í golfi. Golf 21. júlí 2012 19:26
Ragnhildur og Nökkvi Íslandsmeistarar Ragnhildur Sigurðardóttir GR og Nökkvi Gunnarsson NK tryggðu sér í dag Íslandsmeistaratitil í meistaraflokkum karla og kvenna á Icelandair 35 ára og eldri sem fram fór í Vestmannaeyjum um helgina. Golf 21. júlí 2012 15:17
Snedeker efstur þegar keppni er hálfnuð | Tiger í góðum málum Bandaríkjamaðurinn Brandt Snedeker er efstur þegar keppni er hálfnuð á opna breska meistaramótinu í golfi. Hann er á 10 höggum undir pari vallar. Ástralinn Adam Scott er annar, einu höggi á eftir, og Bandaríkjamaðurinn Tiger Woods er þriðji á 6 höggum undir pari. Golf 20. júlí 2012 20:32
Mickelson komst ekki í gegnum niðurskurðinn Phil Mickelson komst ekki í gegnum niðurskurðinn á opna breska meistaramótinu í golfi að loknum öðrum keppnisdegi af alls fjórum. Mickelson, sem hefur sigrað á fjórum stórmótum, lék á 78 höggum og alls var hann á 11 höggum yfir pari eftir 36 höggum. Golf 20. júlí 2012 20:00
Guðrún Brá bætti vallarmetið á Kiðjabergsvelli Í dag var leikin fyrsti hringurinn af þremur á Íslandsmóti unglinga en leikið er á Kiðjabergsvelli við frábærar aðstæður. Guðrún Brá Björgvinsdóttir úr GK lék fyrsta hringinn á 69 höggum, eða 2 höggum undir pari vallar. Hallgrímur Júlíusson úr GV er efstur í 17-18 ára flokki pilta en hann lék á einu höggi yfir pari eða 72 höggum. Golf 20. júlí 2012 19:30
Scott leiðir að loknum fyrsta hring | Tiger í ágætum málum Ástralski kylfingurinn Adam Scott hefur eins höggs forskot að loknum fyrsta hring á Opna breska meistaramótinu í golfi sem hófst á Royal Lytham & St Annes golfvellinum í Englandi í dag. Golf 19. júlí 2012 21:00
Stór keppnishelgi í íslenska golfinu | 400 kylfingar taka þátt Þrjú stór mót fara fram á vegum Golfsambands Íslands um helgina og er samanlagður fjöldi keppenda um 400. Íslandsmót unglinga í höggleik fer fram á Kiðjabergsvelli og eru þar 150 kylfingar sem taka þátt í mótinu. Leiknir verða þrír hringir og hefst mótið á morgun og lýkur á sunnudag. Leikið verður á Áskorendamótaröðinni á Svarfhólsvelli á Selfossi og eru þar um 100 kylfingar skráðir til leiks. Golf 19. júlí 2012 13:30
Adam Scott á besta skori dagsins | Tiger líklegur til afreka Adam Scott frá Ástralíu er á besta skori dagsins á opna breska meistaramótinu í golfi sem hófst í morgun á Royal Lytham & St. Annes. Scott lék á 6 höggum undir pari vallar eða 64 höggum. Paul Lawrie frá Skotland er á 5 höggum undir pari eða 65 höggum. Tiger Woods hefur leikið 14 holur þegar þetta er skrifað og er hann á 4 höggum undir pari og Zach Johnson er á -6 en hann hefur leikið 6 holur. Golf 19. júlí 2012 12:45
Clarke á titil að verja en Tiger þykir líklegastur Opna breska meistaramótið í golfi hefst í dag og að þessu sinni fer þetta stórmót fram á Royal Lytham & Annes vellinum á Englandi. Samkvæmt venju fer mótið fram á strandvelli eða "linksvelli" og er þetta í 141. skipti sem mótið fer fram. Golf 19. júlí 2012 08:00
Phil Mickelson á enn eftir að landa sigri á opna breska Bandaríski kylfingurinn Phil Mickelson hefur á undanförnum tveimur áratugum verið í fremstu röð í heiminum en hann á enn eftir að ná þeim áfanga að landa sigri á opna breska meistaramótinu. Mickelson hefur sigrað þrívegis á Mastersmótinu, einu sinni á PGA meistaramótinu auk 40 sigra á PGA mótaröðinni. Golf 18. júlí 2012 10:00
Gullbjörninn hefur enn trú á því að Tiger jafni metið Bandaríski kylfingurinn Jack Nicklaus á met sem margir telja að verði aldrei bætt. Nicklaus sigraði á 18 stórmótum á löngum ferli sínum og hann var 46 ára þegar hann náði þeim 18. á Mastersmótinu árið 1986. Nicklaus segir að samkeppnin sé mun meiri hjá bestu kylfingum heims í dag og það verði erfitt fyrir Tiger Woods að ná að jafna metið, en hann hefur sigrað á 14 stórmótum á ferlinum. Golf 17. júlí 2012 16:30
Woods mættur til Englands | býst við erfiðum aðstæðum Tiger Woods er mættur til Englands þar sem hann undirbýr sig fyrir opna breska meistaramótið sem hefst á fimmtudaginn á Royal Lytham vellinum á Englandi. Bandaríski kylfingurinn, sem hefur sigrað á 14 stórmótum á ferlinum sagði eftir fyrsta æfingahringinn að karginn utan brautar væri gríðarlega erfiður á vellinum og á nokkrum stöðum væri ekki hægt að leika boltanum úr slíkri stöðu. Golf 16. júlí 2012 10:45
Johnson tryggði sér sigur eftir bráðabana Bandaríski kylfingurinn Zach Johnson fagnaði sigri á John Deere meistaramótinu á PGA mótaröðinni í golfi í gær. Johnnson hafði betur gegn landa sínum Troy Matteson í bráðabana en þeir voru báðir 20 höggum undir pari að loknum 72 holum. Golf 16. júlí 2012 09:00
Enginn yfirburðamaður á Íslandi Úlfar Jónsson, landsliðsþjálfari í golfi, segir jákvæða þróun vera í íslenska golfinu. Það sé ekki lengur einn yfirburðamaður á landinu og breiddin sé orðin það mikil að menn þurfi að vera á tánum til þess að fá sæti í landsliðinu. Golf 16. júlí 2012 06:00
Íslenska golflandsliðið fer ekki á EM Íslenska landsliðið í golfi náði ekki að tryggja sér þátttökurétt á EM í golfi en forkeppni mótsins lauk á Hvaleyrarvelli í dag. Golf 14. júlí 2012 16:09
Golflandsliðið í erfiðum málum Íslenska karlalandsliðið í golfi er að missa af lestinni í baráttu um laust sæti á EM á næsta ári. Íslenska liðið er tólf höggum frá sæti í mótinu en annar dagur undankeppninnar fór fram í dag. Golf 13. júlí 2012 16:00
Ísland í 3.-4. sæti að loknum fyrsta hring Íslenska karlalandsliðið í golfi hefur lokið leik á fyrsta degi í undankeppni Evrópumóts áhugamanna sem leikin er á Hvaleyrarvelli í Hafnarfirði. Golf 12. júlí 2012 16:07
Þúsundkallar í vasa Stefáns og Þórðar Atvinnukylfingarnir Stefán Már Stefánsson og Þórður Rafn Gissurarson, báðir úr Golfklúbbi Reykjavíkur, hafa lokið keppni á Bayreuth Open mótinu í Þýskalandi. Mótið er hluti af EPD mótaröðinni. Golf 11. júlí 2012 15:21
Stefán Már og Þórður Rafn í gegnum niðurskurðinn Atvinnukylfingarnir Stefán Már Stefánsson og Þórður Rafn Gissurarson, báðir úr Golfklúbbi Reykjavíkur, komust í gegnum niðurskurðinn á Bayreuth Open mótinu í Þýskalandi en mótið er hluti af EPD mótaröðinni. Golf 10. júlí 2012 22:22
Choi fagnaði sigri á Opna bandaríska Choi Na-yeon vann í kvöld sigur á opna bandaríska meistaramótinu í golfi kvenna sem fór fram í Wisconsin-fylki um helgina. Þetta er hennar fyrsti sigur á stórmóti. Golf 8. júlí 2012 22:48
Leikjahæst frá upphafi: „Loksins núna að hætta að gráta, þannig ekki láta mig byrja aftur“ Körfubolti