

Golf
Fréttir og úrslit úr heimi golfsins.

Romero vann í New Orleans
Argentínski kylfingurinn Andres Romero vann um helgina sigur í Zurich Classic-mótinu í New Orleans en þetta var fyrsti sigurinn hans á PGA-mótaröðinni.

Erfitt hjá Birgi Leifi
Birgir Leifur Hafþórsson átti ekki góðan lokahring á opna Andalúsíumótinu í golfi sem fram fór á Spáni um helgina. Birgir lék lokahringinn á fimm höggum yfir pari eða 77 höggum og lauk því keppni á níu yfir pari.

Birgir náði sér alls ekki á strik
Birgir Leifur Hafþórsson komst naumlega í gegn um niðurskurðinn á opna Andalúsíumótinu í golfi í gær, en honum gekk skelfilega á þriðja hringnum í dag. Birgir lék á fjórum höggum yfir pari í dag eftir að hafa verið á parinu fyrir keppni dagsins.

Birgir á pari í Andalúsíu
Birgir Leifur Hafþórsson á enn möguleika á að komast áfram á opna Andalúsíumótinu í golfi sem fram fer á Spáni. Birgir lék á höggi undir pari í dag - 71 höggi - en var á höggi yfir pari í gær. Hann er því samtals á pari eftir tvær umferðir og sem stendur nægir það honum til að komast í gegn um niðurskurðinn á mótinu.

Tiger Woods ætlar að hætta áður en neistinn fer
Stjörnugolfarinn Tiger Woods segist ætla að leggja kylfuna á hilluna áður en hann verður útbrunninn golfari. Tiger hefur aldrei verið í betra formi en nú og hafði unnið sjö mót í röð áður en hann hafnaði tveimur höggum á eftir Geoff Ogilvy um síðustu helgi.

Birgir Leifur í 63.- 85. sæti
Birgir Leifur Hafþórsson lék í dag fyrsta hringinn á móti í Andalúsíu á Spáni. Hann lék hringinn á einu höggi yfir pari og er í 63.- 85. sæti á mótinu.

Birgir Leifur með um næstu helgi
Birgir Leifur Hafþórsson verður meðal þátttakenda á golfmóti sem fram fer á Andalúsíu á Spáni um helgina. Birgir hætti keppni vegna hálsmeiðsla eftir aðeins tvær holur á móti í Portúgal um síðustu helgi.

Geoff Ogilvy batt enda á sigurgöngu Tiger Woods
Ástralinn Geoff Ogilvy vann CA-mótið í golfi sem er hluti af heimsmótaröðinni. Ogilvy endaði á 17 höggum undir pari og varð höggi á undan Retief Goosen, Vijay Singh og Jim Furyk.

Lokahringurinn í beinni
Stöð 2 Sport mun hefja beina útsendingu frá CA-mótinu í heimsmótaröðinni í golfi klukkan 12.30 þar sem frestaður lokahringur mótsins verður í beinni útsendingu.

Woods fimm höggum á eftir
Tiger Woods gæti vel tapað sínu fyrsta móti á þessu ári en hann er fimm höggum á eftir Ástralanum Geoff Ogilvy á CA-mótinu sem er hluti af heimsmótaröðinni.

Keppni hafin á Flórída
Keppni á þriðja keppnisdegi CA-mótinu í heimsmótaröðinni í golfi er hafin en sýnt verður beint frá keppninni klukkan 19.00 á Stöð 2 Sporti.

Birgir Leifur hættur: Gríðarleg vonbrigði
Birgir Leifur Hafþórsson þurfti að hætta keppni í Portúgal í dag vegna hálsmeiðsla. „Mjög mikil vonbrigði,“ sagði hann í samtali við Vísi.

Birgir Leifur hefur leik klukkan 13 á morgun
Birgir Leifur Hafþórsson hefur á morgun keppni í Madeira í Portúgal á móti í Evrópumótaröðinni í golfi.

Birgir Leifur: Svolítið ryðgaður
Birgir Leifur Hafþórsson hefur aftur keppni á Evrópumótaröðinni í golfi um helgina eftir tveggja mánaða hlé.

Tiger langefstur á heimslistanum
Nýr heimslisti í golfi var kynntur í morgun. Eins og áður er Tiger Woods með örugga forystu á listanum en hann jók forskot sitt með því að vinna Arnold Palmer-mótið um helgina.

Tiger vann sögulegan sigur með fugli á 72. holu
Tiger Woods vann sitt fimmta mót á PGA-mótaröðinni í golfi í röð með því að setja niður 7,5 metra pútt á átjándu og síðustu holu Arnold Palmer-mótsins í gær.

Woods hrökk í gang
Snillingurinn Tiger Woods hrökk heldur betur í gang á öðrum hringnum á Arnold Palmer mótinu í golfi í gærkvöld. Hann lék hringinn á fjórum höggum undir pari og er nú kominn í efsta sætið ásamt fjórum öðrum kylfingum.

Vijay Singh með tveggja högga forystu
Vijay Singh er með forystu á Arnold Palmer-mótinu í Orlando á Flórída en Tiger Woods er sjö höggum á eftir.

McDowell kominn í forystu í Suður-Kóreu
Norður-Írinn Graeme McDowell er með forystu þegar tveimur fyrstu keppnisdögunum er svo gott sem lokið á Ballantine-meistaramótinu í Suður-Kóreu.

Carolan og Ilonen deila forystunni í Kóreu
Ballantine-meistaramótið í golfi hófst í Suður-Kóreu í dag en mótið er hluti af Evrópumótaröðinni í golfi.

Sean O'Hair rauk upp heimslistann eftir sigur á Flórída
Bandaríkjamaðurinn Sean O‘Hair vann sigur á PODS-meistaramótinu í golfi á Flórída sem lauk í gær. Þetta er í annað sinn á ferli hans sem hann vinnur PGA mót.

Atwal vann í Kuala Lumpur
Indverjinn Arjen Atwal er sigurveri á Malasíu-meistaramótinu í golfi en mótið er hluti af Evrópumótaröðinni.

Keppni frestað á Flórída
Jeff Maggert er með þriggja högga forystu á PODS-meistaramótinu í golfi á Flórída í Bandaríkjunum en keppni var frestað í nótt vegna regns.

Svíinn Hedblom með forystu í Malasíu
Forystumennirnir þrír fóru illa að ráði sínu þegar að þriðji keppnisdagur hófst á Malasíu-meistaramótinu í golfi en mótið er hluti af Evrópumótaröðinni.

Dougherty náði að halda jöfnu
Nick Dougherty náði að halda jöfnu við heimamanninn Danny Chia eftir að keppni hófst aftur á öðrum keppnisdegi Malasíu meistaramótsins í golfi.

Heimamaður fremstur í Malasíu
Heimamaðurinn Danny Chia er með forystu á meistaramóti Malasíu í golfi ásamt Englendingnum Nick Dougherty en hætta þurfti keppni vegna þrumuveðurs.

Bryant með forystu á PODS-mótinu
Bandaríkjamaðurinn Bart Bryant er með forystu á PODS-meistaramótinu í Flórída en fyrsta keppnisdegi lauk snemma í nótt vegna rigningar.

Dougherty lék fyrsta hringinn á tíu undir pari
Englendingurinn Nick Dougherty hefur forystu á meistaramóti Malasíu í golfi en hann lék á tíu höggum undir pari á fyrsta hringnum.

Ernie Els í þriðja sæti heimslistans
Ernie Els frá Suður-Afríku komst upp í þriðja sætið á nýjum heimslista í golfi sem birtur var í dag. Els bar sigur úr býtum á Honda Classic mótinu í Florida og komst þar með uppfyrir Steve Stricker á listanum.

Brown sigraði á Johnnie Walker
Nýsjálendingurinn Mark Brown tryggði sér sigur á Johnnie Walker mótinu á Indlandi með glæsilegum endaspretti. Hann fékk fugl á þremur síðustu holunum á lokahringnum og lauk keppni á 18 höggum undir pari.