

Fréttir af handbolta og handboltafólki, bæði innanlands sem utan.
Íslenska handboltalandsliðið tapaði með tveimur mörkum á móti Ungverjum í kvöld, 28-30, í öðrum leik sínum á heimsmeistaramótinu í handbolta í Svíþjóð og Póllandi.
Aron Pálmarsson fyrirliði íslenska landsliðsins var svekktur eftir tapið gegn Ungverjum í kvöld. Hann sagði tapaða bolta og dauðafæri hafa verið dýr.
Bjarki Már Elísson var að vonum niðurlútur eftir tveggja marka tap Íslands fyrir Ungverjalandi, 28-30. Íslendingar voru yfir nánast allan leikinn en Ungverjar voru sterkari undir lokin og skoruðu síðustu fim mörk leiksins.
Íslenska karlalandsliðið í handbolta tapaði með tveggja marka mun á móti Ungverjum, 28-30, í öðrum leik sínum á heimsmeistaramótinu í Svíþjóð og Póllandi.
Íslenska karlalandsliðið í handbolta spilaði rassinn all svakalega úr buxunum þegar það tapaði fyrir Ungverjalandi, 28-30, í öðrum leik sínum í D-riðli á HM í handbolta.
Sandra Erlingsdóttir skoraði þrjú mörk fyrir Metzingen sem vann 38-24 sigur á Waiblingen í þýsku úrvalsdeildinni í handknattleik í dag.
Paulo Fidalgo, aðstoðarþjálfari Portúgal, neitaði að svara spurningum Stefáns Árna Pálsssonar, blaðamanns Vísis, um heyrnartólin margfrægu sem hann var með í leiknum gegn Íslandi.
Guðmundur Guðmundsson, þjálfari íslenska karlalandsliðsins í handbolta, breytir ekki sigurliði og ekki sigurhóp.
Portúgal lenti í vandræðum með Suður-Kóreu í riðli Íslendinga á heimsmeistaramótinu í handknattleik í dag. Frakkar unnu hins vegar stórsigur gegn Sádi Arabíu.
Það vakti mikla athygli þegar Ísland mætti Portúgal á HM á þriðjudagskvöldið og aðstoðarþjálfari liðsins Paulo Fidalgo var með heyrnartól í öðru eyrunu.
Það var gríðarleg stemning hjá stuðningsfólki strákanna okkar í Kristianstad en Henry Birgir Gunnarsson var á staðnum í beinni útsendingu á Vísi.
Það er mikil gleði meðal íslensku stuðningsmannanna sem hafa fjölmennt til Svíþjóðar til að hvetja strákana okkar áfram á móti Ungverjum í kvöld.
ÍBV vann 30-28 sigur á Haukum þegar liðin mættust í Olís-deild kvenna í dag. Þá vann KA/Þór þægilegan sigur á HK á heimavelli sínum á Akureyri.
Stjarnan og Valur skildu jöfn, 25-25, þegar liðin áttust við í æsispennandi og kaflaskiptum leik í 12. umferð Olísdeildar kvenna í handbolta í Mýrinni í Garðabænum í dag.
„Þetta er með þeim bestu,“ segir Bjarki Már Elísson um stemninguna í Kristianstad Arena sem var algjörlega mögnuð í fyrsta leik strákanna á HM. Hún verður enn betri í kvöld enda fleiri komnir á svæðið.
Gísli Þorgeir Kristjánsson leikmaður íslenska landsliðsins segir að það geti stundum verið erfitt að vera leikmaður eins og hann.
Félagarnir Henry Birgir Gunnarsson og Stefán Árni Pálsson eru orðnir mjög spenntir fyrir leik kvöldsins gegn Ungverjum.
Handboltamaðurinn Sveinn Jóhannsson er farinn frá Skjern í Danmörku og genginn í raðir Minden í Þýskalandi.
„Ég var gríðarlega ánægður með vörnina hjá liðinu. Þetta var frábær vörn. Svo vörðu Bjöggi og Viktor vel,“ sagði Elvar Örn Jónsson sem var magnaður í vörninni gegn Portúgal.
„Varnarleikurinn hjá okkur var stórkostlegur og markvarslan góð. Sóknarleikurinn var köflóttur, hann byrjaði mjög vel en síðan gerum við of mikið af mistökum í fyrri hálfleik. Það breyttist algjörlega í seinni hálfleiknum. Svo var ég rosalega ánægður að skora tólf mörk úr hraðaupphlaupum í gær,“ segir Guðmundur Guðmundsson fyrir æfingu landsliðsins í handbolta í gær.
Síðari fjórum leikjum dagsins á HM í handbolta er nú lokið. Egyptaland vann níu marka sigur á Króatíu á meðan Danmörk og Noregur unnu örugga sigra. Þetta voru fyrstu leikir liðanna á mótinu.
Íslenska landsliðið í handbolta æfði í Kristianstad Arena í dag. Fyrir æfinguna hélt Guðmundur Guðmundsson landsliðsþjálfari fund í miðjuhringnum og svo var farið beint í fótbolta.
Í nýjasta hlaðvarpsþætti HM Handkastsins var eðlilega farið yfir sigur Íslands á Portúgal. Þrátt fyrir góðan sigur hafa menn nú þegar áhyggjur af spiltíma sumra leikmanna Íslands og veltu fyrir sér af hverju fleiri leikmenn fengu ekki mínútur gegn Portúgal.
Ómar Ingi Magnússon skoraði stórkostlegt mark gegn Portúgal í gær sem verður lengi í minnum haft. Henry Birgir Gunnarsson hitti Ómar í dag og spurði hann út í þetta ótrúlega mark.
Tveir íslenskir þjálfarar voru í eldlínunni þegar fyrstu fjórir leikir dagsins á HM í handbolta fóru fram. Um var að ræða fyrstu leiki liðanna á mótinu.
Annan föstudaginn í röð hefur Hörður kynnt nýjan erlendan leikmann til leiks.
Bjarki Már Elísson átti erfitt með sig á blaðamannafundi í gær er portúgalski landsliðsþjálfarinn reyndi að telja viðstöddum trú um að hann hafi ekki verið að svindla með heyrnartól í eyranu.
„Það er frábært að byrja mótið á þessum tveimur punktum og þessi fjögur mörk sem við náum að vinna leikinn með eru mjög mikilvæg,“ segir Gísli Þorgeir Kristjánsson leikmaður íslenska landsliðsins, á æfingu liðsins í Kristianstad í Svíþjóð í dag.
Það var einstök stemning á leik Íslands og Portúgals í fyrsta leik liðanna á HM í Kristianstad í gærkvöldi. Íslendingarnir eru mættir á mótið með látum, bæði innan og utan vallar.
Besti leikur Ólafs Stefánssonar á ferlinum kom þegar liðið hans var með bakið upp við vegg gegn nær ósigrandi liði á þeirra heimavelli.