

Handbolti
Fréttir af handbolta og handboltafólki, bæði innanlands sem utan.

Ósammála Alfreð: „Auðvitað er þetta bakslag“
Alfreð Gíslason og lærisveinar hans í þýska landsliðinu eru úr leik á HM í handbolta, eftir tap gegn Portúgal í framlengdum spennutrylli í gær. Fyrrverandi landsliðsmenn Þýskalands eru algjörlega ósammála Alfreð um hvað þýði að hafa fallið úr leik í 8-liða úrslitum.

Oggi snýr aftur heim
Þorgils Jón Svölu Baldursson, línu- og varnarmaður, mun leika á ný með Val það sem eftir lifir leiktíðar í handboltanum hér á landi.

Bryðja töflur og spila á öðrum fæti fyrir Dag
„Það eru allir meiddir,“ segir Denis Spoljaric, aðstoðarmaður Dags Sigurðssonar hjá króatíska landsliðinu. Menn ætla þó að harka af sér í kvöld, gegn Frökkum í undanúrslitum á HM, og stórstjarnan sem Dagur var vændur um að hafa rifist við hefur nú bæst í hópinn.

Segja sigurmark Portúgals ólöglegt: „Stór dómaramistök“
Sérfræðingar TV 2 í Danmörku segja að sigurmark Portúgals gegn Þýskalandi í átta liða úrslitum heimsmeistaramótsins í handbolta karla hafi verið ólöglegt.

Súrustu töpin í sögu strákanna okkar
Af nokkrum súrum og svekkjandi töpum strákanna okkar á stórmótum er eitt tap sem stendur upp úr. Vísir skoðaði þessi grátlegustu töp íslenska karlalandsliðsins í sögu HM, EM og ÓL.

Þórir ætlar að hlusta á hjartað en ekki strax
Norðmenn eru mjög spenntir fyrir því að komast að því hvað taki við hjá gullþjálfaranum sínum en Selfyssingurinn er alveg rólegur.

Lærisveinar Alfreðs úr leik eftir framlengdan leik
Portúgal lagði Þýskaland – lærisveina Alfreðs Gíslasonar - með eins marks mun eftir framlengdan leik í 8-liða úrslitum heimsmeistaramóts karla í handbolta, lokatölur 31-30.

Anton tekur við kvennaliði Vals
Anton Rúnarsson mun taka við þjálfun Íslandsmeistara Vals í Olís-deild kvenna að yfirstandandi tímabili loknu. Hann tekur við liðinu er núverandi þjálfari Ágúst Jóhannsson mun taka við karlaliði félagsins.

Danir flugu inn í undanúrslitin
Danmörk, ríkjandi heimsmeistari karla í handbolta, lenti ekki í teljandi vandræðum gegn Brasilíu þegar þjóðirnar mættust í 8-liða úrslitum. Danir hafa unnið hvern stórsigurinn til þessa á mótinu og það sama var upp á teningnum í kvöld.

Geta íþróttir bjargað mannslífum?
Þann 9. og 10. apríl fara fram hér á landi tveir landsliðsleikir Íslands og Ísraels í handbolta. Þegar þetta er skrifað er fátt sem bendir til þess að íslensku landsliðskonurnar íhugi að sniðganga leikinn til að mótmæla yfirstandandi þjóðarmorði Ísraels á Palestínufólki.

Dagur fyrstur Íslendinga til að fara með karlalið í undanúrslit á HM
Dagur Sigurðsson varð í gær fyrsti íslenski handboltaþjálfarinn til að koma karlalandsliði í undanúrslitaleik á heimsmeistaramóti.

Hágrét af sorg þegar hann tók við viðurkenningunni
Besti maður vallarins sýndi miklar tilfinningar eftir leik í átta liða úrslitum heimsmeistaramóts karla í handbolta í gær.

Ósáttur bæjarstjóri gaf öllum frí til að styðja sveina Dags
Darko Milinovic, bæjarstjóra Gospic í Króatíu, var ekki skemmt yfir þeirri ákvörðun alþjóða handknattleikssambandsins, IHF, að gefa Króötum ekki seinni leik kvöldsins á HM í handbolta í gær, þrátt fyrir að þeir væru gestgjafar. Hann ákvað að gefa bæjarbúum frí til að mæta á leikinn.

Báðu Dag að sýna tilfinningar: „Ég er glaður“
Eftir tíu mánuði í starfi er Dagur Sigurðsson kominn með Króatíu í undanúrslit á HM í handbolta og því öruggt að liðið mun spila um verðlaun á mótinu. Króatíski miðillinn 24 Sata segir Dag hafa sýnt á sér nýja hlið eftir ótrúlegan sigur á Ungverjum í kvöld.

Sigurmark frá miðju og Dagur mætir Frökkum
Dramatíkin var alls ráðandi í 8-liða úrslitunum á HM karla í handbolta í kvöld. Frakkar eru komnir í undanúrslit eftir sigurmark gegn Egyptum frá miðju á síðustu sekúndu, og þeir mæta Króötunum hans Dags Sigurðssonar.

Sturluð endurkoma og Dagur í undanúrslit
Króatar unnu Ungverjaland 31-30 með marki á síðustu sekúndu, eftir ótrúlega endurkomu, í 8-liða úrslitum á HM í handbolta í kvöld. Þar með er ljóst að Króatarnir hans Dags Sigurðssonar spila um verðlaun á mótinu.

Strákarnir hans Arons kvöddu með sigri
Bareinska karlalandsliðið í handbolta, sem Aron Kristjánsson stýrir, vann Alsír, 26-29, í lokaleik sínum á HM. Barein endaði í 29. sæti á mótinu.

Segir að Viktor Gísli sé einn af þremur bestu markvörðum heims
Einar Jónsson, þjálfari karlaliðs Fram og einn sérfræðinga Besta sætisins um HM í handbolta, telur að Viktor Gísli Hallgrímsson sé einn af þremur bestu markvörðum í heimi.

„Við getum bara verið fúlir“
Íslenska landsliðið í handbolta hafnaði í níunda sæti á heimsmeistaramótinu. Átta stig í milliriðli dugðu liðinu ekki til þess að komast í átta liða úrslitin. Fyrrverandi landsliðsmaður segir liðið þó vera á réttri leið.

Aðeins tvær þjóðir spiluðu hægar en Ísland á HM
Íslenska karlalandsliðið í handbolta sat eftir í milliriðlum á heimsmeistaramótinu þrátt fyrir fimm sigra í sex leikjum. Nú leita margir skýringa og tölfræðin gefur vissulega ákveðna mynd. Það er þó sérstaklega einn tölfræðilisti sem er meira sláandi en hinir.

Fyrsta liðið sem situr eftir með átta stig
Ísland er eina liðið sem hefur setið eftir þrátt fyrir að hafa fengið átta stig í milliriðli eftir að núverandi fyrirkomulag var tekið upp á HM í handbolta karla.

Endaði með fjörutíu prósent markvörslu á HM
Aðeins þrír markverðir á heimsmeistaramótinu í handbolta karla eru með betri hlutfallsmarkvörslu en Viktor Gísli Hallgrímsson. Hann varði fjörutíu prósent þeirra skota sem hann fékk á sig á HM.

Hefur verulegar áhyggjur af Hauki: „Þetta er eins og Fóstbræðraskets“
Haukur Þrastarson olli þeim Ásgeiri Erni Hallgrímssyni og Einari Jónssyni miklum vonbrigðum með frammistöðu sinni gegn Argentínu í lokaleik Íslands á HM í gær.

Viktor Gísli besti maður Íslands á HM
Það kemur líklega fáum á óvart hver var efstur í einkunnagjöf Vísis á heimsmeistaramótinu í handbolta. Enginn lék betur hjá strákunum okkar á HM í ár en markvörðurinn Viktor Gísli Hallgrímsson.

HM í dag: Ferðalok og síðasti sundspretturinn
Strákarnir okkar hafa lokið leik á HM og það þýðir bara eitt. Síðasti þátturinn af HM í dag fer í loftið í dag.

Vill sjá breytingar á landsliðinu: „Aðeins að poppa þetta upp“
Íslenska handboltalandsliðið hefur lokið keppni á heimsmeistaramótinu í handbolta en liðið komst ekki í átta liða úrslit. Það er ár í næsta stórmót en hvernig lítur dæmið út fyrir framhaldið?

HSÍ planaði heimför fyrir Argentínuleikinn: „Finnst það frekar taktlaust“
Það lítur út fyrir að Handknattleiksamaband Íslands hafi verið búið að gefa upp vonina um sæti í átta liða úrslitum fyrir lokaumferðina í gær. Besta sætið fór yfir viðtal við Gísla Þorgeir Kristjánsson eftir leikinn þar sem fram kom að sambandið var farið að plana heimför fyrir leikinn.

Myndasyrpa frá súrsæta sigrinum á Argentínu
Ísland lagði Argentínu fyrr í dag í síðasta leik sínum í milliriðli HM karla í handbolta. Vel var mætt á leikinn þrátt fyrir vonbrigðin gegn Króatíu í síðasta leik.

Skýrsla Henrys: Endurtekið efni enn eitt árið
Ísland er úr leik á HM. Markmiðið að komast í átta liða úrslit náðist ekki. Enn eitt stórmótið ná strákarnir okkar ekki að komast áfram í hóp þeirra bestu. Þeir spóla sem fyrr í sama farinu og komast ekki upp úr leðjunni.

Uppgjörið: Króatía - Slóvenía 29-26 | Dagur stýrði Króötum til sigurs og sendi strákana okkar heim
Ísland er úr leik á heimsmeistaramótinu í handbolta og er þar með fyrsta liðið frá upphafi sem kemst ekki áfram úr milliriðli með átta stig. Það varð ljóst eftir 29-26 sigur Króatíu gegn Slóveníu í kvöld. Króatar enda því í efsta sæti milliriðilsins og mæta Ungverjalandi í átta liða úrslitum. Egyptaland endar í öðru sæti og mætir Frakklandi næst.