

Handbolti
Fréttir af handbolta og handboltafólki, bæði innanlands sem utan.

Umfjöllun og viðtöl: ÍBV - FH 30-33 | Hafnfirðingar sóttu stigin tvö
Þjálfarar beggja liða töluðu um fyrir leik að búast mætti við hörku viðureign þegar ÍBV tók á móti FH í Vestmannaeyjum í dag. Fyrir leikinn höfðu bæði lið unnið sinn síðasta leik en Eyjamenn voru í 6.sæti deildarinnar fyrir leikinn með 11 stig á meðan Hafnfirðingar sátu í 2. sæti með 14 stig.

Segir Hansen ekki tapa fjárhagslega á skiptunum heim til Danmerkur
Troels Troelsen, íþróttahagfræðingur, segir að Mikkel Hansen muni ekki fá verr greitt í Danmörku en hann gerir í Frakklandi. Þetta segir hann í löngu viðtali við BT um skiptin frá PSG til Álaborgar.

Telur að Álaborg gæti horft til Bjarka í stjörnulið Mikkel Hansen
Joachim Boldsen, spekingur dönsku stöðvarinnar TV3, er viss um að það séu fleiri leikmenn á leiðinni til Álaborgar en fyrir helgi var tilkynnt að Mikkel Hansen skiptir til félagsins sumarið 2022.

Álaborg hafði betur gegn GOG í toppslagnum
Álaborg vann góðan útisigur á GOG í dönsku úrvalsdeildinni í handbolta er topplið deildarinnar mættust, lokatölur 32-35. Óðinn Þór Ríkharðsson og félagar eru á sigurbraut.

„Greinilega mikill tilfinninga rússíbani þessi frumraun hans í Olís deildinni“
Farið var yfir dramatískan sigur Gróttu á Fram í Olís deild karla í Seinni bylgjunni í gær. Þjálfari Gróttu mætti í skrautlegt viðtal að leik loknum, fóru Henry Birgir Gunnarsson og sérfræðingar þáttarins yfir það.

Sjáðu vítið sem Sveinn Aron kastaði frá sér
Ótrúlegt atvik átti sér stað í upphafi leiks Hauka og Selfyssinga í Olís deild karla í gærkvöld. Gestirnir fengu víti sem Sveinn Aron Sveinsson tók, eða ætlaði sér að taka.

Langt því frá hættir eftir komu Hansen: Nýtt stjörnulið í líkingu við AG?
Álaborg tilkynnti í gær að Mikkel Hansen muni spila með liðinu frá sumrinu 2022. Skiptin vöktu mikla athygli enda Hansen einn albesti leikmaður heims að snúa aftur heim.

Umfjöllun og viðtöl: Haukar - Selfoss 25-20 | Haukar á toppinn
Haukar unnu góðan sigur og komu sér aftur upp í 1. sæti eftir sigur á Selfoss í Olís-deild karla í handbolta á Ásvöllum í kvöld. Lokatölur, 25-20.

„Þessi leikur í dag hefði skilað sigri á móti Fram“
Halldór Jóhann Sigfússon, þjálfari Selfoss í handbolta, var allt annað en sáttur með frammistöðu sinna manna sem sótti Hauka heim á Ásvelli í kvöld. Selfoss töpuðu með fimm mörkum, 25-20.

Sjáðu sigurmark Elvars á lokasekúndunum
Skjern vann 30-29 sigur á TMS Ringsted í dönsku úrvalsdeildinni í handbolta. Elvar Örn Jónsson skoraði sigurmark Skjern.

Bjarki Már heldur tryggð við Lemgo
Bjarki Már Elísson, landsliðsmaður í handbolta, hefur framlengt samning sinn við þýska úrvalsdeildarliðið Lemgo. Nýi samningurinn gildir til loka júní 2022.

Sjáðu lokakaflann ótrúlega í leik KA og Vals
Lokakaflinn í leik KA og Vals í Olís-deild karla í gær verður lengi í minnum hafður. KA-menn voru fjórum mörkum undir þegar tvær og hálf mínúta var eftir en náðu samt jafntefli, 27-27.

Þróttur rýmir fyrir þjóðarleikvangi en fær stórt fótboltasvæði og íþróttahús
Knattspyrnufélagið Þróttur og Reykjavíkurborg hafa komist að samkomulagi um það hvernig uppbyggingu aðstöðu fyrir félagið í Laugardal verður háttað. Þróttarar fá samkvæmt því meðal annars tvo nýja gervigrasvelli og nýtt íþróttahús en gefa eftir svæði sem hugmyndir hafa verið uppi um að nýta fyrir þjóðarhöll- og leikvang.

Einu sigrar Selfyssinga á Haukum í þrjú ár hafa verið í lokaúrslitunum
Haukarnir hafa getað treyst á það að fá tvö stig út úr leikjum sínum á móti Selfyssingum undanfarnar tvær leiktíðir í karlahandboltanum.

Kári spilaði í vörninni og var með hæstu einkunnina hjá HB Statz
Handboltamaðurinn Kári Kristján Kristjánsson er ekki beint þekktur fyrir það sem hann gerir í vörn sinna liða en það fer kannski að breytast.

Dagskráin í dag: Stórleikur að Ásvöllum, lærisveinar Wayne Rooney og Hrunamenn í heimsókn á Selfossi
Það er nóg um að vera á Stöð 2 Sport á þessum fína febrúar föstudegi. Alls eru átta beinar útsendingar á dagskrá í dag.

Umfjöllun og viðtöl: Grótta - Fram 30-27 | Grótta nálgast Fram eftir mikinn viðsnúning
Grótta lenti 15-10 undir gegn Fram en vann að lokum 30-27 sigur þegar liðin mættust í Olís-deild karla í handbolta á Seltjarnarnesi í kvöld.

„Óaðfinnanlegt svar“ eftir áfallið fyrir norðan
„Sjitt, þetta er svo mikill léttir,“ segir Arnar Daði Arnarsson, þjálfari Gróttu, og röddin er við það að bresta. Það er engum vafa undirorpið hve mikla þýðingu það hefur fyrir hann og hans menn að hafa unnið Fram í kvöld.

Umfjöllun og viðtöl: KA - Valur 27-27 | Ótrúleg endurkoma skilaði KA-mönnum stigi
KA og Valur skildu jöfn eftir æsilegar lokamínútur í KA-heimilinu á Akureyri í kvöld.

Kristinn Björgúlfsson: Ófyrirgefanlegt hvernig við mætum til leiks í kvöld
FH vann ÍR í ansi óspennandi leik. FH komst strax fjórum mörkum yfir og litu aldrei um öxl eftir það og lönduðu sigri 34 - 29.

Umfjöllun og viðtöl: FH - ÍR 34-29 | Heimamenn lögðu botnliðið og fóru tímabundið á toppinn
FH-ingar unnu botnlið ÍR með fimm marka mun er liðin mættust í Kaplakrika í Olís deild karla í kvöld. Lokatölur leiksins 34-29 og ÍR því sem fyrr án stiga á botni deildarinnar.

Gunnar: Eiginlega orðlaus hvað þetta var dapurt
Gunnar Magnússon, þjálfari Aftureldingar, sagði að sínir menn hefðu leikið sinn versta leik á tímabilinu gegn ÍBV í kvöld. Eyjamenn unnu fimm marka sigur, 29-34.

Ólafur Bjarki: Byggjum ofan á þennan sigur
Ólafur Bjarki Ragnarsson átti góðan leik með Stjörnunni í kvöld en hann skoraði átta mörk í sjö marka sigri á Þór í Íþróttahöllinni á Akureyri, lokatölur 27-20 Garðbæingum í vil.

Umfjöllun og viðtöl: Afturelding - ÍBV 29-34 | Enn einn sigur Eyjamanna í Mosfellsbænum
ÍBV gerði góða ferð í Mosfellsbæinn og vann Aftureldingu, 29-34, í fyrsta leik 10. umferðar Olís-deildar karla. Eyjamenn hafa ekki tapað á Varmá síðan í lok september 2014.

Viggó öflugur í tapi Stuttgart og Melsungen með góðan sigur
Íslendingalið Stuttgart mátti þola tíu marka tap í þýsku úrvalsdeildinni í kvöld. Lærisveinar Guðmundar Guðmundssonar í Melsungen unnu þriggja marka sigur á Leipzig.

Umfjöllun og viðtöl: Þór - Stjarnan 20-27 | Öruggt hjá Stjörnunni á Akureyri
Stjarnan vann gríðar mikilvægan sigur á Akureyri í kvöld er liðið heimsótti Þór í Olís deild karla í kvöld, lokatölur 20-27.

Öruggt hjá Íslendingaliðunum í Meistaradeildinni
Íslendingalið Álaborgar og Vive Kielce unnu örugga sigra í Meistaradeild Evrópu í handbolta í kvöld.

Ljónin ósigruð í Evrópu
Rhein-Neckar Löwen hefur ekki enn tapað leik í Evrópudeildinni í handbolta. Liðið vann Trimo Trebnje frá Slóveníu í kvöld, lokatölur 31-28.

Tekur Svíinn hárprúði við Íslendingaliði Kristianstad?
Sænska goðsögnin Staffan Olsson hefur verið orðaður við stjórastöðu sænska handknattleiksliðsins IFK Kristianstad. Íslendingarnir Ólafur Andrés Guðmundsson og Teitur Örn Einarsson leika með liðinu.

Eyjamenn hafa ekki tapað leik í Mosfellsbænum í 2336 daga
ÍBV liðið heimsækir Aftureldingu í Olís deild karla í handbolta í kvöld en Eyjamenn hafa geta treyst á það að undanfarin ár að ná í stig að Varmá.