

Handbolti
Fréttir af handbolta og handboltafólki, bæði innanlands sem utan.

Ómar Ingi og Ýmir Örn frábærir en Viktor Gísli tapaði í Makedóníu
Þrjú Íslendingalið til viðbótar voru í eldlínunni í Evrópudeildinni í handbolta í kvöld. Magdeburg vann Montpellier frá Frakklandi 32-30 Rhein-Neckar Löwen vann 37-30 sigur á Tatabánya en GOG beið lægri hlut gegn Eurofram Pelister, 32-31.

Öruggt hjá ÍBV gegn HK
ÍBV vann sex marka sigur á HK í eina leik dagsins í Olís deild kvenna í kvöld. Lokatölur 24-18 Eyjakonum í vil.

Teitur Örn frábær í dramatískum sigri Kristianstad
Kristianstad frá Svíþjóð vann gríðar mikilvægan sigur á útivelli gegn Dinamo Búkarest í Evrópudeildinni í handbolta í kvöld, lokatölur 29-28 sænska liðinu í vil. Teitur Örn Einarsson for mikinn í liði gestanna.

Daníel og Rúnar með stórleik í sigri Ribe-Esbjerg
Íslendingalið Ribe-Esbjerg vann sjö marka útisigur á Fredericia í dönsku úrvalsdeildinni í handbolta í kvöld, lokatölur 30-37.

Segir Valsmenn í djúpum andlegum dal
Sérfræðingar Seinni bylgjunnar segja Valsmenn ekki eiga sér neinar málsbætur eftir tapið slæma gegn Stjörnunni í gær, í Olís-deild karla í handbolta. Valur hefur nú tapað gegn Fram, Selfossi og Stjörnunni eftir að keppni hófst að nýju undir lok janúar, en unnið Þór Akureyri og Gróttu.

Með sex sinnum fleiri mörk en næsti markvörður
Sóknarleikur FH-inga byrjar hjá markverðinum Phil Döhler en hann hefur komið að langflestum mörkum af markvörðum Olís deildar karla í handbolta.

Varði jafn mörg skot og markverðir FH til samans
Ísak Rafnsson átti góðan leik í vörn FH í jafnteflinu við Hauka, 29-29, í Olís-deild karla í gær. Hann varði jafn mörg skot í leiknum og markverðir FH til samans.

Patrekur með gott tak á Snorra Steini
Patrekur Jóhannesson stýrði Stjörnunni til sannfærandi sigurs á móti Val í Olís deild karla í handbolta í gær og hélt þar með í þá hefð sína að fagna sigri á móti Snorra Steini Guðjónssyni.

Rauk beint á sjúkraflutninganámskeið eftir að hafa varið 23 skot gegn Val
Sara Sif Helgadóttir var að öðrum ólöstuðum besti leikmaður vallarins þegar Fram sigraði Val, 30-22, í stórleik 9. umferðar Olís-deildar kvenna á laugardaginn. Hún varði 23 skot, eða 51 prósent þeirra skota sem hún fékk á sig.

„Eins mikill ruðningur og þeir verða“
Sérfræðingar Seinni bylgjunnar voru sammála um að sigurmark KA gegn ÍBV í Olís-deild karla í gær hafi verið ólöglegt.

Björgvin Páll: Langar bara enn meira að kveðja með titli
Björgvin Páll Gústavsson, markvörður Hauka, var ekki ánægður með frammistöðu síns liðs í leiknum gegn FH í kvöld sem endaði með jafntefli.

Sigursteinn: Það tekur tíma að venjast þessari klukku
„Ég verð að viðurkenna að ég er frekar svekktur að fá bara eitt stig,“ sagði Sigursteinn Arndal þjálfari FH eftir jafnteflið gegn Haukum í Olís-deildinni í handknattleik í kvöld.

Umfjöllun og viðtöl: FH - Haukar 29-29 | Spennutryllir í Krikanum
FH og Haukar gerðu 29-29 jafntefli í rosalegum Hafnarfjarðarslag í Kaplakrika í kvöld.

Umfjöllun og viðtöl: Valur - Stjarnan 27-35 | Stjörnumenn rústuðu Valsmönnum
Stjörnumenn gerðu góða ferð á Hlíðarenda og rúlluðu yfir Valsmenn, 27-35, í 9. umferð Olís-deildar karla í kvöld.

Snorri Steinn: Ömurleg frammistaða og okkur ekki til sóma
Snorri Steinn Guðjónsson, þjálfari Vals, var þungur á brún eftir tapið stóra fyrir Stjörnunni í kvöld, 27-35.

Dramatískur sigur KA í Eyjum
KA gerði sér lítið fyrir og sótti tvö stig til Eyja er þeir unnu 29-28 sigur á heimamönnum í Olís-deild karla í kvöld.

Alexander frá næstu vikurnar vegna meiðsla
Alexander Petersson meiddist á æfingu með Flensburg og verður frá keppni næstu vikurnar.

Gunnar Steinn hættir hjá Ribe-Esbjerg og fer til Þýskalands
Íslenski handboltamaðurinn Gunnar Steinn Jónsson hefur spilað sinn síðasta leik fyrir danska félagið Ribe-Esbjerg HH en félagið staðfestir brottför hans á heimasíðu sinni.

Mörkin sem hafa ráðið úrslitum í leikjum Hauka og FH undanfarin ár
Haukar og FH bjóða nær alltaf upp á mikla spennuleiki þegar þau mætast. Það þýðir jafnfram dramatískar lokasekúndur.

Haukarnir hafa ekki unnið nágranna sína í FH í fimmtíu mánuði
Það eru meira en fjögur ár liðin síðan að Hafnarfjörður var málaður rauður í Olís deild karla í handbolta. Haukarnir fá tækifæri til að breyta því í kvöld.

Aron: Þessi leikur hefur sitt eigið lögmál
Aron Kristjánsson þjálfari Hauka ætlar að mála bæinn rauðan á í kvöld þegar Haukaliðið heimsækir nágranna sína í FH í Hafnarfjarðaslag í Kaplakrika.

Síðasta sambærilega dæmið frá 2007 og þá stóðu úrslitin
Kæra handknattleiksdeildar Stjörnunnar á úrslitum í leik gegn KA/Þór í Olís-deild kvenna á laugardaginn er komin inn á borð dómstóls HSÍ. KA/Þór vann leikinn, 26-27, en mistök á ritaraborði urðu til þess að eitt marka liðsins var oftalið. Síðasta sambærilega dæmið um að úrslit hafi verið kærð vegna rangrar skráningar marka er frá 2007.

Gerði helling fyrir Dag að enda fyrir ofan Ísland á HM
Dagur Sigurðsson er ánægður með árangur Japans á HM 2021 í Egyptalandi og segir að það hafi verið sætt að enda fyrir ofan Ísland á mótinu.

Dagskráin í dag - Handboltaveisla á Stöð 2 Sport
Seinni bylgja karla og kvenna auk tvíhöfða í Olís-deild karla er meðal dagskrárefnis á sportstöðvum Stöðvar 2 í dag.

HSÍ mun ekki aðhafast í máli Britney Cots
Handknattleikssamband Íslands, HSÍ, mun ekki aðhafast frekar í máli Britney Cots, leikmanns FH í Olís-deild kvenna.

Umfjöllun og viðtöl: ÍR - Afturelding 22-27 | ÍR-ingar héngu í Mosfellingum í 50 mínútur
ÍR-ingar eru enn stigalausir í Olís-deild karla eftir fimm marka tap gegn Aftureldingu í kvöld.

Þrándur Gíslason Roth: Ég þarf að árétta eða rétta nokkrar alhæfingar
Þrándur Gíslason Roth, leikmaður Aftureldingar, var ánægður eftir sigur á ÍR í kvöld. Jafn leikur fram á 50. mínútu en þá gáfu Afturelding í og unnu leikinn, 22-27.

Umfjöllun og viðtöl: Fram - Selfoss 27-25 | Framarar slökktu í Selfyssingum
Fram varð fyrsta liðið til að leggja Selfoss að velli í Olís-deild karla á þessu ári í kvöld.

Sebastian: Það sem við ætluðum að gera á móti Haukum virkar líka á Selfoss
Sebastian Alexandersson og hans lærisveinar í Fram unnu stórkostlegan sigur á heitu liði Selfoss. Leikurinn var jafn frá fyrstu mínútu til þeirra síðustu og var það krafturinn og viljinn í Fram liðinu sem landaði stigunum tveimur að lokum.

Sigvaldi með tvö mörk í sigri Kielce
Sigvaldi Björn Guðjónsson var á sínum stað í liði Kielce í pólska handboltanum í dag.