

Hollywood
Fréttir af fræga fólkinu úti í hinum stóra heimi.

„Takk fyrir að standa með mér í gegnum þetta allt“
Leikkonan Christina Applegate hefur hlotið stjörnu á hinni frægu götu Hollywood Walk og Fame. Á síðasta ári greindist hún með MS sjúkdóminn og minntist á hann í tilfinningaþrunginni ræðu við athöfnina.

Beyoncé og Björk á lista Grammy verðlaunanna
Tilnefningar til Grammy verðlaunanna hafa verið tilkynntar. Beyoncé hlaut flestar tilnefningar fyrir plötuna sína Renaissance, alls níu. Hin íslenska Björk Guðmundsdóttir hlaut einnig tilnefningu fyrir plötuna sína Fossora.

Jay Leno með þriðja stigs bruna eftir vinnu við gufuknúinn fornbíl
Jay Leno er mikill bílaáhugamaður og safnar bílum. Hann var að vinna við 115 ára gamlan gufuknúin bíl á laugardag og brenndist illa í andliti eftir að eldur kviknaði í bílskúr hans.

Pete Davidson og Emily Ratajkowski eru að hittast
Grínistinn Pete Davidson og fyrirsætan Emily Ratajkowski eru að njóta þess að kynnast og eyða tíma saman samkvæmt heimildum Us Weekly.

Ellefta barnið komið í heiminn og það tólfta á leiðinni
Barnamaskínan Nick Cannon er orðinn ellefu barna faðir. Hann eignaðist dótturina Zeppelin Cannon á þeim flotta degi 11.11. með plötusnúðinum Abby De La Rosa. Zeppelin er þá fjórða barnið sem Cannon eignast á þessu ári en það fimmta er væntanlegt í desember.

Vinur Jay Leno gæti hafa bjargað lífi hans um helgina
Bandaríski þáttastjórnandinn og grínistinn Jay Leno slasaðist alvarlega í bruna um helgina. Hann er með þriðja stigs brunasár á andliti en snör viðbrögð vinar hans sáu til þess að ekki fór verr.

Pabbi Jennifer Aniston er fallinn frá
Leikkonan Jennifer Aniston hefur greint frá því að faðir hennar, leikarinn John Aniston er fallinn frá. Þetta tilkynnti hún á samfélagsmiðlinum Instagram.

Lést á flugvellinum þar sem hann dvaldi í átján ár
Mehran Karimi Nasseri, Íraninn sem dvaldi á Charles De Gaulle flugvellinum í París í átján ár er látinn. Hann lést á flugvellinum eftir að hafa snúið aftur þangað fyrir skömmu. Saga Nasseris varð kveikjan að kvikmyndinni vinsælu The Terminal með Tom Hanks í aðalhlutverki.

Rihanna var nálægt því að hafna Super Bowl
Tónlistarkonan Rihanna er mætt á Íslenska listann á FM957 eftir langa fjarveru en hún gaf út sitt fyrsta lag í sex ár í lok október. Lagið heitir „Lift Me Up“ og var samið fyrir kvikmyndina „Black Panther: Wakanda Forever“.

Skautahöllin í bandarískum búningi fyrir True Detective
Tökur á sjónvarpsþáttaröðinni True Detective eru komnar á fullt hér á landi. HBO, framleiðandi þáttanna, hefur birt mynd úr Skautahöllinni í Reykjavík, þar sem sjá má hana í bandarískum búningi.

Vildi óska þess að einhver hefði sagt henni að láta frysta eggin sín
„Þetta var virkilega erfitt,“ segir hin ástsæla leikkona Jennifer Aniston, sem greinir frá því í forsíðuviðtali við tímaritið Allure að hún hafi glímt við ófrjósemi. Er það í fyrsta sinn sem Aniston opnar sig um þessa erfiðleika.

David Beckham náði goðsagnakenndu Spice Girls augnabliki á filmu
Myndskeið sem fótboltamaðurinn David Beckham birti á Instagram í gær hefur vakið mikla athygli. Á myndskeiðinu má sjá hinar goðsagnakenndu Kryddpíur samankomnar í góðum gír að taka Spice Girls smellinn vinsæla Say You'll Be There.

Penn lánar Selenskí Óskarsverðlaunin
Leikarinn og leikstjórinn Sean Penn er staddur í Úkraínu, þar sem hann fundaði meðal annars með Vólódímír Selenskí Úkraínuforseta og lánaði honum annan af tveimur Óskarsverðlaungripum sínum. Bað hann Selenskí að skila styttunni til Malibu þegar Úkraínumenn hefðu haft sigur af Rússum.

Stjörnurnar syrgja Aaron: „Ó hvað ég elskaði þig heitt á okkar unglingsárum“
„Ég er svo miður mín yfir því hvað lífið var þér erfitt og að þú hafir þurft að glíma við það fyrir framan allan heiminn,“ skrifar leikkonan Hilary Duff um fyrrverandi kærasta sinn Aaron Carter. Aaron fannst látinn á heimili sínu á laugardaginn.

Leslie Phillips er látinn
Breski leikarinn Leslie Phillips er látinn, 98 ára að aldri. Hann var þekktastur fyrir hlutverk sitt í Carry On-kvikmyndunum og fyrir að ljá flokkunarhattinum í Harry Potter-kvikmyndunum rödd sína.

Þetta er kynþokkafyllsti maður í heimi
Leikarinn Chris Evans er kynþokkafyllsti núlifandi karlmaður heims, samkvæmt bandaríska tímaritinu People. Tímaritið veitir þennan áhugaverða titil á hverju ári og tekur Evans við keflinu af leikaranum Paul Rudd.

Rebel Wilson eignaðist barn með hjálp staðgöngumóður
Leikkonan Rebel Wilson hefur eignast sitt fyrsta barn, dóttur að nafni Royce Lillian, með hjálp staðgöngumóður.

Netverjar missa sig yfir óþekkjanlegum Zac Efron
Leikarinn og sjarmatröllið Zac Efron er nánast óþekkjanlegur í nýju hlutverki sem hann fer með þessa dagana. Á nýlegum myndum af Efron má sjá hann vöðvastæltari en nokkru sinni fyrr, með klippingu sem minnir helst á Prins Valíant.

Jimmy Kimmel verður kynnir á Óskarnum
Þáttastjórnandinn Jimmy Kimmel verður kynnir á Óskarsverðlaununum þann 12. mars á næsta ári. Þetta er í þriðja sinn sem hann fær hlutverkið en hann hélt einnig utan um hátíðina árin 2017 og 2018.

Aaron Carter látinn 34 ára
Söngvarinn Aaron Carter er látinn 34 aðeins ára gamall. Fjölmiðlar ytra greina frá því að hann hafi látist í baðkarinu heima hjá sér. Ekki er grunur um saknæma háttsemi.

Biðja fólk um að hætta að skilja eftir sokka fyrir Dobby
Aðdáendur Harry Potter myndanna hafa vinsamlegast verið beðnir um að hætta að skilja eftir sokka við gröf húsálfsins Dobby af umhverfisfulltrúum í Whales.

Súperman hefði getað verið glitrandi vampíra
Súperman leikarinn Henry Cavill var fyrsta val rithöfundarins Stephanie Meyer sem hinn fullkomni Edward Cullen. Þessu greindi hún frá í bloggfærslu árið 2007 þegar hún seldi réttinn á Twilight bókunum, sem hún skrifaði.

Var með Ariönu Grande á milli brjóstanna í hópkynlífssenu á Ítalíu
„Ég er svona einn af þessum leikurum sem er athyglissjúkur intróvert,“ segir Ólafur Darri Ólafsson. Ólafur var gestur Gústa B í Veislunni á FM957 þar sem hann ræddi meðal annars um vináttu hans og Ben Stillers, fyrstu kynnin við Jennifer Aniston og hópkynlífssenu sem hann lék í með Owen Wilson og tónlistarkonunni Ariönu Grande.

ET selst til hæstbjóðanda
Upprunalega líkanið af geimverunni E.T. sem notað var við tökur á kvikmynd Steven Spielberg E.T. The Extra-Terrestrial fer á uppboð í desember. Talið er að líkanið muni seljast á um það bil þrjár milljónir dollara, rúmar 430 milljónir íslenskra króna.

Heidi Klum mætti sem ormur
Fyrirsætan Heidi Klum er þekkt fyrir það að klæðast stórkostlegum búningum á hrekkjavöku sem eru í raun listaverk. Í ár hélt hún í hefðina og mætti klædd sem ormur og lá á gólfinu í viðtölunum sem hún fór í.

Takeoff skotinn til bana
Bandaríski rapparinn Takeoff var skotinn til bana í Houston í Texas í dag. Fjöldi fólks hefur vottað rapparanum virðingu sína á samfélagsmiðlum í dag.

Taylor Swift skráir sig í sögubækurnar
Lög söngkonunnar Taylor Swift skipa öll tíu efstu sæti Billboard listans í Bandaríkjunum. Hún er fyrsti tónlistarmaðurinn í 64 ára sögu listans sem nær þessum árangri.

Kónguló, kisa og Pamela Anderson: Búningar Kardashian fjölskyldunnar í gegnum árin
Kardashian fjölskyldan fer alla leið í því sem þau taka sér fyrir hendur og hrekkjavakan er engin undantekning á því. Hér er búið að taka saman nokkra af þeim búningum sem systurnar hafa klæðst í gegnum árin.

Cavill kveður Geralt af Riviu
Leikarinn Henry Cavill hefur sagt skilið við hlutvek sitt í Netflix þáttunum „The Witcher“ og kemur Liam Hemsworth í hans stað.

Taylor Swift boðar tónleikaferðalag í bráð
Söngkonan Taylor Swift boðar tónleikaferðalag í náinni framtíð í viðtali Graham Norton. Hún gaf nýlega út plötuna Midnight sem sló öll met á Spotify og varð mest spilaða platan á einum degi. Myndband við eitt laganna á plötunni hefur þó verið umdeilt og talið ýta undir fitufordóma.