

Íslenski boltinn
Fréttir, beinar lýsingar, úrslit og myndbönd úr efstu deildum í fótbolta á Íslandi.

Tökumaðurinn maður leiksins í Keflavík: „Hann var með alla klútana sína“
Tökumaður Stöðvar 2 Sports á leik Keflavíkur og Breiðabliks fékk sérstakt hrós frá Guðmundi Benediktssyni og félögum í Stúkunni í gær.

Stórleikur í Laugardalnum í Mjólkurbikarnum
Þróttur tekur á móti Breiðabliki í stórleik átta liða úrslita Mjólkurbikars kvenna í fótbolta.

Sjáðu Tryggva Hrafn halda lífi í titilbaráttu Bestu deildarinnar
Valsmenn urðu í gær fyrstir til að vinna Víkinga í Bestu deildinni í sumar og komu í veg fyrir að Fossvogsliðið stingi hreinlega af i deildinni.

„Lögðum upp með að halda hreinu“
Keflavík gerði markalaust jafntefli við Breiðablik í Bestu-deild karla í knattspyrnu fyrr í kvöld. Liðið hefur nú haldið marki sínu hreinu tvo leiki í röð og tekist að klífa upp úr botnsæti deildarinnar.

Arnar Grétarsson: Við setjum þetta aftur upp í mót
Arnari Grétarssyni, þjálfara Vals, var létt í leikslok eftir sigur síns liðs gegn Víkingum. Valsmenn átt erfiða leiki undanfarið og tókst nú að vera fyrsta liðið til þess að stoppa sigurgöngu Víkinga.

Myndband: Klæmint með klúður sem gleymist seint
Klæmint Olsen brenndi af því sem má fullyrða að sé færi aldarinnar þegar Breiðablik gerði markalaust jafntefli við Keflavík í 9. umferð Bestu deildar karla. Færið má sjá neðar í fréttinni.

Umfjöllun: Víkingur - Valur 2-3 | Sigurganga Víkinga á enda
Valur batt enda á sigurgöngu Víkings í Bestu deild karla í knattspyrnu í kvöld. Fyrir leikinn höfðu Víkingar unnið níu leiki í röð á meðan Valur var í basli eftir að falla úr leik í Mjólkurbikarnum gegn Lengjudeildarliði Njarðvíkur og gera jafntefli við Keflavík. Það var ekki að sjá í kvöld þar sem Valur kom, sá og sigraði í Víkinni.

Umfjöllun og viðtöl: Keflavík - Breiðablik 0-0 | Markalaust í bleytunni suður með sjó
Íslandsmeistarar Breiðabliks gerðu sér ferð suður með sjó til Keflavíkur í kvöld. Leiknum lauk með markalausu jafntefli. Keflavík hefur nú haldið marki sínu hreinu tvo leiki í röð og tekst að rísa af botninum, en þeir fara upp fyrir ÍBV á markatölu.

Umfjöllun og viðtöl: KA - Fram 4-2 | Heimamenn sigldu sigrinum heim undir lok leiks
KA sigraði Fram 4-2 í 9. umferð Bestu deildar karla á Greifavellinum á Akureyri í dag. KA menn höfðu fyrir leikinn tapað þremur leikjum í röð án þess að skora mark og sigurinn því virkilega kærkominn. KA lyftir sér upp fyrir HK í 5. sæti í töflunni en hefur þó spilað leik meira. Fram áfram í 9. sæti deildarinnar.

Jakob Snær: Vonandi byrjunin á því sem við ætlum að sýna í sumar
Jakob Snær Árnason, leikmaður KA, kom inn á sem varamaður í 4-2 sigri gegn Fram á Greifavellinum á Akureyri í dag. Staðan var 2-2 á 85. mínútu en þá skoraði Jakob þegar boltinn fór af honum og í markið eftir skot frá Þorra Mar Þórissyni. Hann innsiglaði svo sigur KA með marki í uppbótartíma eftir skyndisókn.

FH áfram í bikarnum: Dregið í átta liða úrslit á morgun
FH er komið áfram í 8-liða úrslit Mjólkurbikars kvenna eftir 2-0 sigur á FHL fyrir austan í dag.

Mörkin úr Bestu: Sjáðu ótrúlega endurkomu FH gegn HK
Ellefu mörk voru skoruð í þeim þremur leikjum sem fram fóru í Bestu deild karla í gær. Boðið var upp á markaveislu á Kaplakrikavelli, KR vann sigur gegn Stjörnunni og í Árbænum unnu nýliðar Fylkis góðan sigur á ÍBV.

Minntust Egils Hrafns á táknrænan hátt
Leikmenn Bestu deildar liðs Fylkis heiðruðu í gær minningu hins 17 ára gamla Egils Hrafns Gústafssonar sem féll frá á dögunum.

Umfjöllun og viðtöl: KR - Stjarnan 1-0 | KR-ingar nálgast efri hlutann
KR hafði betur í öðrum deildarleiknum sínum í röð og þriðja leiknum alls er liðið tók á móti Stjörnunni í níundu umferð Bestu deildar karla í fótbolta á Meistaravöllum í Vesturbænum í kvöld. Lokatölur 1-0 og KR-ingar eru nú aðeins einu stigi frá efri hluta deildarinnar.

Umfjöllun viðtöl og myndir: Fylkir - ÍBV 2-1 | Fimmta tap Eyjamanna í röð
Eyjamenn máttu þola sitt fimmta deildartap í röð er liðið heimsótti Fylki í Bestu-deild karla í knattspyrnu í dag. Lokatölur 2-1 og Fylkismenn eru farnir að nálgast efri hluta deildarinnar.

„Við þurfum að hjálpa þeim í gegnum þetta“
„Þetta leggst bara mjög vel í mig. Þetta verður fyrsti leikurinn minn í Frostaskjóli þannig að ég hlakka til,“ segir Theódór Elmar Bjarnason, leikmaður KR, um leik kvöldsins við Stjörnuna í Bestu deild karla sem fram fer að Meistaravöllum klukkan 19:15.

„Var ekki alveg að nenna þrjátíu mínútum í viðbót“
Þróttur Reykjavík gerði sér lítið fyrir og sló ríkjandi bikarmeistara Vals úr leik í 16-liða úrslitum Mjólkurbikar kvenna í kvöld með mögnuðum endurkomusigri.

Boðið upp á markaveislur í Mjólkurbikarnum
Fimm leikjum er lokið í 16-liða úrslitum Mjólkurbikars kvenna í dag. Stjarnan bauð upp á markaveislu gegn Gróttu á Seltjarnarnesi og þá vann Keflavík góðan sigur á Þór/KA á heimavelli.

Leik lokið: Þróttur 2-1 Valur | Bikarmeistararnir úr leik
Þróttur Reykjavík gerði sér lítið fyrir og sló út ríkjandi bikarmeistara Vals er liðin mættust í 16-liða úrslitum Mjólkurbikar kvenna í kvöld. Lokatölur í Laugardalnum 2-1 sigur Þróttara.

Átak til stuðnings dómurum: „Ertu vanur því að garga á fólk?“
Knattspyrnusamband Íslands hefur hrundið af stað átaki vegna hegðunar fólks í garð dómara, til að vekja athygli á störfum þeirra og mikilvægi fyrir fótboltann.

Margrét Lára vill sjá meiri græðgi hjá framherjum Bestu deildarinnar
Bestu mörkin fóru yfir markaskorara liðanna tíu í fyrstu fimm umferðum Bestu deildar kvenna og tvær af mestu markadrottningum íslenskrar knattspyrnusögu voru ekki alltof ánægðar með uppskeruna hjá þeim markahæstu til þessa í sumar.

Sjáðu Víkinga raða mörkum fyrir norðan og þann markahæsta ráða úrslitum
Tveir leikir fóru fram í Bestu deild karla í fótbolta í gærkvöldi þar sem Víkingar og Blikar fögnuðu sigri. Víkingar unnu þar sinn níunda sigur í níu leikjum en Blikar voru að vinna sinn sjötta deildarleik í röð.

Umfjöllun, viðtöl og myndir: Breiðablik - Valur 1-0 | Blikar upp í annað sæti eftir sigur í stórleiknum
Breiðablik vann virkilega mikilvægan 1-0 sigur er liðið tók á móti Val í stórleik níundu umferða Bestu-deildar karla í knattsprnu í kvöld. Með sigrinum stekkur Breiðablik upp fyrir Valsmenn í annað sæti deildarinnar.

Þjálfarinn skoraði síðasta markið sitt þegar KA vann Víking síðast fyrir norðan
KA tekur á móti Víkingum í Bestu deild karla í fótbolta á Akureyri í kvöld en norðanmenn reyna þar að verða fyrsti til að taka stig af toppliði Víkinga í sumar.

„Viltu vera hluti af einu besta liði á Íslandi?“
Arnar Gunnlaugsson vill alls ekki eigna sér heiðurinn af frammistöðu Loga Tómassonar og Birnis Ingasonar sem hafa spilað mjög vel í upphafi Bestu deildarinnar og eiga mikinn þátt í því að Víkingsliðið er með fullt hús og fimm stiga forskot á toppnum eftir átta umferðir.

Umfjöllun og viðtöl: Breiðablik - FH 3-2 | Andrea bjargaði Blikum
Andrea Rut Bjarnadóttir tryggði Breiðabliki dramatískan sigur á nýliðum FH, 3-2, þegar liðin mættust í strekkingsvindi á Kópavogsvelli 5. umferð Bestu deildar kvenna í kvöld. Með sigrinum komust Blikar upp í 3. sæti deildarinnar en þeir eru aðeins einu stigi frá toppnum.

„Þetta er allt í móðu“
Andrea Rut Bjarnadóttir var að vonum ánægð eftir að hafa skorað sigurmark Breiðabliks gegn FH á elleftu stundu í kvöld. Blikar unnu leik liðanna á Kópavogsvelli, 3-2.

Umfjöllun og viðtöl: Tindastóll - Stjarnan 1-0 | Stólarnir komnir á blað
Í kvöld á Sauðárkróksvelli mættust lið Tindastól og Stjörnunnar í Bestu deild kvenna. Tindastóll fyrir leikinn í neðsta sæti deildarinnar með 2 stig, en mótherjar þeirra úr Garðabænum í 4. sæti með 7 stig.

Frederik, Ingvar og Arnar Freyr bjargað flestum mörkum
Þrír markverðir eru í sérflokki þegar kemur að því að bjarga sínum liðum í Bestu deild karla í fótbolta.

Óvæntur vinskapur kom Nonna til Hamrén í Noregi - „Gaf okkur steik og rautt á kvöldin“
Þjálfarinn Jón Aðalsteinn Kristjánsson eða „Nonni Coach“ eins og margir þekkja hann hefur lengi þjálfað lið í neðri deildum Íslands. Hann mætti til Sverris Mar í hlaðvarpið „Ástríðan: hetjur neðri deildanna“ á dögunum og ræddi þar sinn feril í þjálfun.