

Fréttir, beinar lýsingar, úrslit og myndbönd úr efstu deildum í fótbolta á Íslandi.
HK-ingar fengu Víking Reykjavík í heimsókn í Kórinn í kvöld þegar liðin spiluðu bæði sinn tólfta leik í Pepsi-Max deild karla. Bæði lið þurftu á þrem stigum að halda, en markalaust jafntefli þýðir að liðin skipta stigunum bróðurlega á milli sín.
Fylkir tók á móti KA í Pepsi Max deild karla í kvöld. Fylkismenn stukku úr tíunda sæti upp í það sjötta með mikilvægum 2-1 sigri.
Víkingur Reykjavík gerði 0-0 jafntefli við HK í Kórnum í Pepsi-Max deild karla í kvöld. Arnar Gunnlaugsson, þjálfari Víkings, var ósáttur í leikslok með að ná ekki að vinna en vildi þó virða stigið.
Selfoss komst aftur á sigurbrautina eftir að hafa ekki náð í sigur í síðustu fimm leikjum sínum. Leikurinn endaði með 1-0 sigri þar sem Brenna Lovera gerði sigurmark leiksins.Alfreð Elías Jóhannsson þjálfari Selfoss var afar kátur í leiks lok.
FH tók á móti Haukum í nágrannaslag Lengjudeildar kvenna í kvöld. Lokatölur 1-1 þar sem að jöfnunarmarkið kom á annari mínútu uppbótartíma.
Selfoss eru komnar aftur á sigurbraut eftir að hafa ekki unnið í fimm síðustu leikjum sínum. Brenna Lovera var mætt aftur í liðið eftir meiðsli og launaði félaginu það með sigurmarki leiksins. 1-0
Ólafur Stígsson, þjálfari Fylkis, var að vonum ánægður með sigurinn í kvöld gegn KA eftir erfitt gengi undanfarið. Lokatölur 2-1 og Fylkismenn færast fjær fallbaráttunni.
Hildur Antonsdóttir skoraði fjórða mark Breiðabliks í þægilegum 4-0 sigri á Fylki í gær. Þetta var leikur númer 100 í treyju Breiðablisk hjá þessum öfluga miðjumanni sem er að koma til baka eftir að hafa slitið krossbönd á síðustu leiktíð.
Sindri Kristinn Ólafsson, markvörður Keflavíkur, átti svo sannarlega viðburðaríkan leik er lið hans tapaði 0-1 fyrir KR á Meistaravöllum í Pepsi Max deild karla. Sindri Kristinn fékk þungt högg á þriðju mínútu, kláraði leikinn og varði vítaspyrnu.
„Mér finnst allt tal um rautt spjald argasta vitleysa,“ sagði Atli Viðar Björnsson um brot Sindra Snæs Magnússonar, leikmanns ÍA, gegn Leikni í Pepsi Max-deildinni í fótbolta í gærkvöld. Rauða spjaldið fór reyndar á loft, vegna mótmæla.
Þorkell Máni Pétursson segir að Einar Ingi Jóhannsson hafi fallið í gildru Kennies Chopart þegar hann dæmdi vítaspyrnu í leik KR og Keflavíkur í Pepsi Max-deild karla í gær.
Leiknir vann fjórða heimasigur sinn á tímabilinu í gær á meðan KR vann langþráðan sigur á Meistaravöllum.
Heiðar Birnir Torleifsson er hættur sem þjálfari Vestra í Lengjudeild karla en þetta staðfesti félagið í kvöld.
„Það er bara frábært að koma hérna og vinna. Þetta er erfitt lið að eiga við en við erum hæst ánægð með stigin þrjú,“ sagði Eiður Ben Eiríksson, annar þjálfari Vals, eftir 2-0 sigur Vals á Stjörnunni í Pepsi Max deild kvenna í kvöld.
Kjartan Stefánsson, þjálfari Fylkis, var að vonum ósáttur eftir 4-0 tap síns liðs gegn Breiðablik í Pepsi Max deild kvenna í kvöld.
Leiknir unnu sinn fjórða heimaleik í kvöld þegar þeir lögðu botnlið ÍA, 2-0.
Arnþór Ingi Kristinsson miðjumaður KR var ánægður með 1-0 sigur KR á Keflavík fyrr í kvöld.
Valur hélt sigurgöngunni áfram þegar þær unnu Stjörnuna 2-0 á útvelli í kvöld. Valur heldur því toppsætinu og eru búnar að koma sér í virkilega góða stöðu nú þegar 10. umferð Pepsi Max deildarinnar er að ljúka.
ÍA tapaði 2-0 fyrir nýliðum Leiknis í kvöld. Leiknir voru heilt yfir betri aðilinn út á grasinu sem skilaði sér í tveimur mörkum og þremur stigum.Jóhannes Karl Guðjónsson þjálfari ÍA var afar svekktur í leiks lok.
Theódór Elmar Bjarnason spilaði í Vesturbænum í fyrsta skipti í háa herrans tíð er KR vann 1-0 sigur á heitum Keflvíkingum.
Breiðablik var ekki í vandræðum með Fylki í Pepsi Max deild kvenna í kvöld en lokatölur voru 4-0 þar sem Breiðablik skoraði meðal annars beint úr hornspyrnu.
Stjarnan hefur ákveðið að senda hinn unga Ísak Andra Sigurgeirsson á láni til ÍBV sem leikur í Lengjudeildinni.
KR og Keflavík mætast í Pepsi Max deild karla í knattspyrnu í kvöld. Leikið er í Frostaskjóli en síðast þegar liðin mættust þar munaði 29 stigum á liðunum. Staðan er töluvert öðruvísi í dag.
Þróttur vann 2-0 sigur á Tindastóli í Pepsi Max-deild kvenna á Eimskipsvellinum í Laugardal í kvöld. Tindastóll er sem fyrr á botni deildarinnar en Þróttur fer upp í þriðja sæti með sigrinum.
Þór/KA og ÍBV eru enn hlið við hlið í Pepsi Max-deild kvenna í fótbolta eftir 1-1 jafntefli í fyrsta leik 10. umferð deildarinnar. Eftir markalausan fyrri hálfleik komst Þór/KA yfir en gestirnir jöfnuðu skömmu síðar og þar við sat.
Tólftu umferð Pepsi Max deildar karla í knattspyrnu lauk í gærkvöld. Það hefur mikið gengið á undanfarna níu daga og hér að neðan má sjá hvað á skilið lof og hvað á skilið last.
Þremur leikjum var að ljúka í Lengjudeild karla og einum í Lengjudeild kvenna en umferðin í báðum deildum var ansi áhugaverð.
HK vann ansi mikilvægan 2-1 sigur á Fylki í kvöld er liðin mættust í frestuðum leik í Pepsi Max deild karla. Fylkir komst yfir en gestirnir snéru við taflinu í síðari hálfleik.
ÍBV missteig sig í Lengjudeild karla er liðið tapaði 1-0 fyrir Gróttu á heimavelli í 11. umferð deildarinnar í dag.
Valur, topplið Pepsi Max deildar kvenna í knattspyrnu, vann góðan 2-1 útisigur á Selfossi í síðustu umferð. Selfyssingar hefðu þurft þrjú stig til að hleypa toppbaráttu deildarinnar í algjört uppnám en Valsliðið náði að sigla heim torsóttum sigri.