

Íslenski boltinn
Fréttir, beinar lýsingar, úrslit og myndbönd úr efstu deildum í fótbolta á Íslandi.

Dion snýr aftur í Laugardalinn
Dion Acoff mun spila með Þrótti Reykjavík í Lengjudeildinni í sumar.

12 dagar í Pepsi Max: Fyrsta tímabil Óla Jóh í sextán ár án titils
Ólafur Jóhannesson náði ekki að vinna titil með Valsmönnum á síðasta tímabil og þar með lauk langri sigurgöngu hans liða.

Sjáðu mörkin í fjörugu jafntefli Breiðabliks og Vals á Kópavogsvelli
Pepsi Max deildarlið Vals og Breiðabliks gerðu 3-3 jafntefli á Kópavogsvelli í gærkvöld.

Heimir segir leikmannahóp Vals tilbúinn fyrir sumarið
Heimir Guðjónsson segir leikmannahóp Vals kláran fyrir sumarið.

Markasúpa er Breiðablik og Valur gerðu jafntefli
Breiðablik og Valur gerðu jafntefli í hörkuleik á Kópavogsvelli í kvöld.

Kristall Máni mun spila með Víking í Pepsi Max deildinni í sumar
Unglingalandsliðsmaðurinn Kristall Máni Ingason mun leika með Víking í Pepsi Max deildinni í sumar.

„Samband mitt við Sindra er mjög gott“ – Dómarinn ekki með gult spjald
„Ég á í góðu sambandi við mína gömlu liðsfélaga,“ segir Gonzalo Zamorano, leikmaður Víkings Ó., en mikill hiti var í leiknum þegar hann mætti sínu gamla liði ÍA í vináttuleik í gær. Rauða spjaldið fór á loft og dómarinn vildi flauta leikinn af í kjölfarið.

13 dagar í Pepsi Max: Þrjú vítaklúður hjá Andra Rúnari sem stoppaði líka í nítján mörkum
Andri Rúnar Bjarnason er sá nýjasti sem jafnaði markametið í efstu deild og fékk inngöngu í nítján marka klúbbinn. Andri fékk vissulega færi til að skora tuttugasta markið.

Þór/KA fær liðsstyrk úr Kópavogi
Berglind Baldursdóttir hefur fært sig úr Kópavoginum til Akureyrar.

Fyrsta mót sumarsins fór fram í dag | Myndband
Fyrsta knattspyrnumót sumarsins fór fram í dag.

Milos meistari með Rauðu stjörnunni
Milos Milojevic, fyrrum þjálfari Víkings Reykjavíkur og Breiðabliks varð í gær serbneskur meistari með Rauðu Stjörnunni en hann er aðstoðarþjálfari liðsins.

Rautt spjald og dómarinn vildi flauta af á Akranesi | Rosalegt innkast skilaði KA sigri | Myndbönd
Það er grunnt á því góða á milli ÍA og Víkings Ó. ef marka má æfingaleik liðanna á Akranesi í dag, í fótbolta karla, þar sem dómarinn virtist vilja flauta leikinn af eftir ljót brot og mikinn æsing í báðum liðum. KA vann Fylki á Akureyri, 1-0.

14 dagar í Pepsi Max: Hundraðasta tímabil Valsmanna í efstu deild í sumar
Þrettánda júní næstkomandi verða Valsmenn aðeins annað íslenska félagið til að spila hundrað tímabil í efstu deild karla.

„Teygðum okkur eins langt og við töldum mögulegt“
„Við teygðum okkur eins langt og við töldum mögulegt, og jafnvel aðeins lengra,“ segir Guðni Bergsson um 120 milljóna króna fyrirgreiðslu KSÍ til aðildarfélaga.

„Ég veit að við verðum í toppbaráttunni“
„Þetta lítur mjög vel út,“ segja landsliðskonurnar Dagný Brynjarsdóttir og Anna Björk Kristjánsdóttir sem ætla sér að berjast um Íslandsmeistaratitilinn í fótbolta með Selfossi í sumar.

Mörg lið líkleg til afreka í Lengjudeild: „Slys ef að Eyjamenn færu ekki upp“
„Þessi samningur skiptir félögin í deildinni gríðarlega miklu máli,“ segir Haraldur Haraldsson, formaður Íslensks toppfótbolta, eftir undirritun samninga við Íslenskar getraunir um að 1. deildir karla og kvenna heiti Lengjudeildir í sumar.

Fjölnismenn fljótir að fylla skarð Helenu
Fjölnir hefur ráðið Dusan Ivkovic sem nýjan þjálfara meistaraflokks kvenna í fótbolta en hann tekur við starfinu af Helenu Ólafsdóttur sem hætti í vikunni.

Willard aftur til Víkings Ó. eftir aðeins nokkra mánuði hjá Fylki
Sjö mánuðum eftir að hann samdi við Fylki er Harley Willard farinn aftur til Víkings Ó.

KSÍ greiðir 100 milljónir af eigin fé til félaganna
Aðildarfélög KSÍ skipta með sér 100 milljónum af eigin fé sambandsins.

Topp 5 í kvöld: Gummi Steinars, Þórir og Guðjón Pétur segja frá uppáhalds mörkunum sínum
Guðmundur Steinarsson, Þórir Guðjónsson og Guðjón Pétur Lýðsson fara yfir sín uppáhalds mörk í Topp 5 á Stöð 2 Sport í kvöld.

Heita Lengjudeildirnar sumarið 2020
Íslenskar getraunir og Íslenskur Toppfótbolti hafa samið um markaðsréttindi Lengjunnar vegna 1. deildar karla og kvenna í knattspyrnu fyrir sumarið 2020.

15 dagar í Pepsi Max: Tryggvi skoraði átta mörk á 24 dögum og jafnaði metið
Tryggvi Guðmundsson átti magnaðan endasprett á Íslandsmótinu 1997 og endaði eftir þvílíka markadaga sína í september með Íslandsmeistaratitil, gullskó, hornið og meðlimakort í nítján marka klúbbnum.

Snéri aftur á fótboltavöllinn eftir krabbamein: Er svo ótrúlega glöð og stolt af sjálfri mér
Haukakonan Harpa Karen Antonsdóttir kórónaði endurkomu sína í fótboltann í gærkvöldi þegar hún spilaði sinn fyrsta fótboltaleik í heila átta mánuði.

„Fjölnir á að vera úrvalsdeildarfélag“
Eftir eitt tímabil hjá KA er Torfi Tímoteus Gunnarsson kominn aftur til Fjölnis. Þrátt fyrir að hafa misst sterka pósta í vetur og vera nýliðar í Pepsi Max-deildinni mæta Torfi og félagar til leiks með kassann úti. Hann segir að Fjölnir eigi að vera úrvalsdeildarfélag.

Pepsi Max-spáin 2020: Reynir á unga menn í Grafarvogi
Íþróttadeild Vísis og Stöðvar 2 Sports spáir Fjölni 11. sæti Pepsi Max-deildarinnar í sumar.

Geir segir KSÍ sitja á digrum sjóðum og gagnrýnir Guðna og félaga fyrir að gera ekki nóg
Fyrrum formaður KSÍ til tíu ára gagnrýnir Knattspyrnusambandið og óskar eftir meiri fjárhagslegum stuðningi úr digrum sjóðum KSÍ

„Hlægilegt“ að tala um of há laun í kvennaboltanum
Helena Ólafsdóttir, knattspyrnuþjálfari og stjórnandi Pepsi Max-marka kvenna, segir laun kvenna í fótbolta ekki komast nálægt því sem að karlarnir fái og að hlægilegt sé að heyra talað um að knattspyrnukona á Íslandi fái „of há laun“.

Agla María hyggst klára námið og vanda valið fyrir atvinnumennsku
„Ég er mjög spennt. Loksins er maður byrjaður að spila á æfingum og það er bara fínt að fara að keyra þetta í gang,“ segir Agla María Albertsdóttir, landsliðskona í fótbolta. Hún segir ljóst að Breiðablik ætli sér Íslands- og bikarmeistaratitil í sumar.

Spilaði ekki leik í fyrra en er í banni: „Lét eitthvað út úr mér sem ég hefði ekki átt að segja“
„Þetta er ótrúlegt. Ég veit ekki hvort maður á að vera að segja frá þessu?“ segir Guðmundur Þór Júlíusson, leikmaður HK, sem þrátt fyrir að hafa misst af öllu síðasta tímabili vegna meiðsla þarf að taka út leikbann í fyrsta leiknum í Pepsi Max-deildinni í sumar.

Setji ósætti vegna launamála til hliðar og nýti reynsluna til að eflast
Jóhannes Karl Guðjónsson þjálfari ÍA er vongóður um að óánægja í leikmannahópnum með launalækkanir vegna kórónuveirukrísunnar hafi ekki slæm áhrif á spilamennsku liðsins í sumar.