

Íslenski boltinn
Fréttir, beinar lýsingar, úrslit og myndbönd úr efstu deildum í fótbolta á Íslandi.

Þjálfaramál Breiðabliks skýrist á allra næstu dögum: „Ekki léttvæg skref að stíga“
Flosi Eiríksson, formaður knattspyrnudeildar Breiðabliks segir ákvörðunina um að binda endi á samstarfs félagsins við þjálfarann Ásmund Arnarsson, sem hafði stýrt kvennaliði félagsins frá því um haustið 2021, vera afar erfiða. Þjálfaramál liðsins skýrist á allra næstu dögum.

Stúkan: Ætluðu að koma með rútu og ætluðu ekki að nýta klefann sem Víkingar bjóða upp á
Í síðasta þætti Stúkunnar var farið yfir síðustu umferð Bestu deildar karla í knattspyrnu. Eðlilega fékk stórleikur Víkings og Breiðabliks mikið pláss í þættinum en Blikar létu bíða eftir sér og mættu ekki út á völl fyrr en rétt áður en leikur hófst.

Ótrúleg endurkoma Eyjamanna í Kórnum
HK leiddi með tveimur mörkum þegar skammt var til leiksloka í viðureign liðsins gegn ÍBV í Kórnum í Bestu deild karla í knattspyrnu á mánudagskvöld. Eyjamenn eru hins vegar ekki þekktir fyrir að leggja árar í bát og jöfnuðu metin á einhvern ótrúlegan hátt. Mörk leiksins má sjá hér að neðan.

Hilmar spilaði sinn fyrsta meistaraflokksleik eftir ótrúlega atburðarás
Hilmar Örn Pétursson, 18 ára markvörður 2. flokks Þróttar Reykjavíkur í knattspyrnu lék sinn fyrsta meistaraflokksleik um liðna helgi eftir lygilega atburðarrás.

„Hef ekki áhyggjur að þær haldi sér ekki uppi“
Spekingar Bestu markanna hafa ekki miklar áhyggjur af stöðu Tindastóls í Bestu deild kvenna í knattspyrnu en nýliðarnir eru sem stendur í 7. sæti með 19 stig, tveimur fyrir ofan fallsæti.

„Í raun bara óboðlegt hjá okkur“
HK og ÍBV skildu jöfn í botnbaráttuslag í Bestu deild karla í kvöld eftir mikla dramatík undir lok leiks. HK komst 2-0 yfir en undir lokin jöfnuðu Eyjamenn. Arnþór Ari, miðjumaður HK, var mjög svekktur í leikslok.

Umfjöllun og viðtal: HK - ÍBV 2-2 | Mögnuð endurkoma gestanna
HK var með unninn leik í höndunum þegar liðið tók á móti ÍBV í 21. umferð Bestu deildar karla í fótbolta. Á einhvern ótrúlegan hátt tókst heimamönnum að missa 2-0 forystu niður í 2-2 jafntefli í blálokin.

Sandra opin í að snúa aftur í íslenska landsliðið: „Hætt við að hætta“
Sandra Sigurðardóttir, fyrrum landsliðsmarkvörður og leikjahæsti leikmaður sögunnar í efstu deild kvenna í fótbolta er klár í að snúa aftur í íslenska landsliðið. Hanskarnir eru komnir af hillunni.

Ásmundur hættur með Breiðablik
Ásmundur Arnarsson er hættur sem þjálfari Breiðabliks í Bestu deild kvenna í knattspyrnu. Frá þessu greindi félagið nú rétt í þessu.

Óli Jó sammála Óskari Hrafni: „Einhverjir stælar í þeim“
Ólafur Jóhannesson var hrifinn af því útspili Óskars Hrafns Þorvaldssonar, þjálfara Breiðabliks, að tefla fram varaliði í leiknum gegn Víkingi í Bestu deild karla í gær.

Umfjöllun, viðtal og myndir: Víkingur - Breiðablik 5-3 | Toppliðið vann óstundvísa Blika
Víkingur vann Breiðablik 5-3 í ansi fjörgum leik. Heimamenn komust í 5-1 en gestirnir bitu frá sér og skoruðu síðustu tvö mörkin. Eftir 21. umferð hefur Víkingur safnað átján stigum meira en Breiðablik.

„Ég sagði við hann eftir leikinn að hann yrði á miðjunni í næsta leik“
Rúnar Kristinsson, þjálfari KR, var að vonum ánægður með 2-0 sigur liðsins gegn Fylki í dag. KR-ingar spiluðu mjög vel í fyrri hálfleik og höfðu öll tök á leiknum en Aron Snær Friðriksson, markvörður liðsins fékk beint rautt spjald í upphafi seinni hálfleiks þegar hann handlék boltann fyrir utan teig sem breytti leiknum.

Haraldur Freyr: Ætli þetta séu ekki sanngjörn úrslit
Haraldur Freyr Guðmundsson, þjálfari Keflavíkur, var ósáttur að hafa ekki hrósað sigri gegn Fram í dag en segir þó jafntefli líklega sanngjarna niðurstöðu.

Óskar Hrafn skaut fast á Víkinga: Þeir hafa ekki verið í þessari stöðu sem við erum í
Óskar Hrafn Þorvaldsson skaut föstum skotum að Víkingum í viðtali fyrir umtalaðan leik liðanna í Bestu deildinni sem nú er í gangi. Blikar mættu í Víkina aðeins tæpum hálftíma áður en leikurinn hófst.

Umfjöllun og viðtal: KR - Fylkir 2-0 | KR upp að hlið FH og Stjörnunnar
KR tók á móti Fylki á Meistaravöllum í 21. umferð Bestu deildar karla nú í dag þar sem KR vann góðan 2-0 sigur eftir að hafa spilað nær allan seinni hálfleikinn einum færri.

Umfjöllun og viðtal: Keflavík - Fram 0-0 | Markalaust í botnslag suður með sjó
Keflavík tók á móti Fram í botnbaráttuslag 21. umferðar Bestu deildar karla. Leiknum lauk með 0-0 jafntefli, en bæði lið skoruðu mörk sem voru dæmd ógild.

Blikar létu bíða eftir sér í Víkinni
Lið Breiðabliks lét heldur betur bíða eftir sér fyrir leik liðsins gegn Víkingi í Bestu deildinni sem á að hefjast nú klukkan 19:15. Hálftíma fyrir leik hafði ekkert sést til liðs Breiðabliks í Víkinni.

Umfjöllun og viðtöl: Tindastóll 0 - Þór/KA 0 | Allt jafn í Norðurlandsslagnum
Tindastóll þurfti á stigum að halda í botnbaráttunni á meðan Þór/KA siglir lygnan sjó í Bestu deild kvenna. Niðurstaðan markalaust jafntefli sem gerir lítið fyrir bæði lið.

Valskonur með átta stiga forskot á toppnum
Valur vann öruggan 4-1 sigur á Keflavík í Bestu deild kvenna í dag. Á sama tíma tapaði Breiðablik fyrir Þrótti og fer Valur því með átta stiga forskot inn í lokahluta Íslandsmótsins.

Umfjöllun, viðtöl og myndir: Þróttur - Breiðablik 4-2 | Þróttur aftur á sigurbraut
Þróttur vann Breiðablik 4-2. Þróttur hafði ekki unnið í síðustu fjórum leikjum og þetta var því kærkominn sigur í síðustu umferð fyrir skiptingu deildar.

Umfjöllun: ÍBV - FH 0-2 | Öruggur útisigur í Eyjum
Eyjakonur tóku á móti FH í lokaumferð deildarkeppni Bestu deildar kvenna en ÍBV liðið er í harðri fallbaráttu á meðan gestirnir í FH voru aðeins einu stigi frá þriðja sætinu.

Umfjöllun: Stjarnan - Selfoss 3-0 | Frábær innkoma Andreu Mistar innsiglaði sigur Stjörnunnar
Stjarnan bar sigur úr býtum, 3-0, þegar liðið fékk Selfoss í heimsókn á Samsung-völlinn í Garðabæinn í síðustu umferð Bestu deildar kvenna í fótbolta í dag. Eftir þessa umferð verður deildinni tvískipt í efri hluta og neðri hluta. Sex efstu liðin fara í efri hlutann og fjögur neðstu berjast um að forðast fall úr deildinni.

Leik Breiðabliks og Víkings í kvöld verður ekki frestað
Knattspyrnusamband Íslands hefur staðfest fyrri ákvörðun sína um að leik Breiðabliks og Víkings sem fram fer í kvöld verði ekki frestað. Breiðablik hafði óskað eftir því að KSÍ myndi endurskoða ákvörðun sína um að fresta ekki en sú ákvörðun stendur.

Höskuldur markahæstur í allri Evrópu
Næsta vor má gera ráð fyrir því að menn á borð við Erling Braut Haaland, Kylian Mbappe eða Harry Kane verði markahæstu menn í Evrópukeppnunum. Nú heitir sá markhæsti Höskuldur Gunnlaugsson fyrirliði Blika.

Breiðablik óskar eftir því að KSÍ endurskoði ákvörðun sína varðandi frestun leiks á morgun
Breiðablik hefur óskað eftir því við KSÍ að sambandið endurskoði þá ákvörðun sína að synja Blikum um frestun á leik liðsins gegn Víkingi í Bestu deildinni sem á að fara fram á morgun.

Umfjöllun og viðtöl: KA - Stjarnan 2-1 | Dramatíkin allsráðandi á Akureyri
KA vann dramatískan 2-1 heimasigur á Stjörnunni þegar liðin mættust á Akureyri í dag. Stjarnan misnotaði víti í stöðunni 1-1 og einum færri tókst KA að knýja fram sigur.

Umfjöllun, viðtöl og myndir: FH - Valur 3-2 | Gyrðir hetja FH-inga
Eftir að hafa verið undir í hálfleik sneru FH-ingar taflinu við og unnu Val 3-2. Gyrðir Hrafn Guðbrandsson kom inn á í hálfleik og breytti leiknum þar sem hann skoraði tvö mörk.

Valsmenn kæra Víkinga vegna afskipta Arnars
Valur hefur lagt fram kæru til aga- og úrskurðanefndar KSÍ þar sem þess er krafist að Víkingar hljóti refsingu vegna afskipta Arnars Gunnlaugssonar þjálfara í leik gegn Val þar sem hann var í leikbanni.

„Allavega vill maður geta leikið sér við börnin sín í framtíðinni“
Á sunnudag fer 18. umferð í Bestu deild kvenna í knattspyrnu fram. Um er að ræða síðustu umferð hefðbundinnar deildarkeppni áður en tvískipting á sér stað. Að því tilefni fékk Helena Ólafsdóttir til sín góðan gest, Mist Edvardsdóttur – fyrrverandi leikmann Vals, KR og Aftureldingar hér á landi.

Grindavík skoraði sjö og felldi Ægi
Fjórir leikir fóru fram í Lengjudeild karla í knattspyrnu í kvöld. Grindavík vann Ægi 7-2 og felldi liðið þar með niður í 2. deild. Njarðvík vann Þór Akureyri 3-0, ÍA vann Selfoss 1-0 og Grótta gerði 2-2 jafntefli við Þrótt Reykjavík. Þá vann Fylkir 3-2 sigur á Fram í Lengjudeild kvenna.