

Körfubolti
Fréttir af leikmönnum og liðum í körfubolta, bæði á Íslandi og erlendis.

Haukarnir semja við 188 sm miðherja frá Kentucky State
Kvennalið Hauka er búið að ganga fram samkomulagi við bandarískan leikmann fyrir komandi tímabil í Domino´s deild kvenna í körfubolta.

Sigurður Gunnar búinn að semja við lið í Frakklandi
Sigurður Gunnar Þorsteinsson mun ekki spila með ÍR-ingum í Domino's deild karla í vetur en hann er búinn að semja við franska liðið BC Orchies.

Þetta eru heitustu mennirnir á leikmannamarkaði NBA í sumar
Margt gæti breyst í NBA-deildinni í körfubolta í sumar og því bíða margir spenntir eftir því hvar feitustu bitarnir á markaðnum enda þegar hann opnar í byrjun næsta mánaðar.

Lovísa ræddi við félög erlendis en ákvað að semja við uppeldisfélagið
Haukar fengu mikinn liðstyrk í dag.

Sjáðu sögu besta leikmanns NBA í nýrri auglýsingu Nike
Íþróttavöruframleiðandinn Nike var ekki lengi að nýta sér fréttir næturinnar þegar Giannis Antetokounmpo var kosinn mikilvægasti leikmaður NBA-deildarinnar á nýlokinni leiktíð.

Tími til að vakna
Þeim sem hafa sett sig inn í málin kæmi það lítið á óvart ef þolinmæði alþjóðasambanda myndi þrjóta áður en langt um líður, enda ekki hægt að vera endalaust á undanþágu frá þeim reglum sem öllum öðrum er gert að fylgja. Eina lausnin, þegar þolinmæðina þrýtur, er að leika landsleiki á erlendri grundu. Íslenska íþróttaundrið, eins og árangur íslenskra landsliða og íþróttamanna hefur gjarnan verið nefnt, getur þá ekki spilað á heimavelli. Með hverju ætla stjórnmálamenn að skreyta sig þá á tyllidögum?

Elvar á leið aftur í atvinnumennsku: Samdi við silfurliðið í Svíþjóð
Elvar Már Friðriksson er á leið aftur út í atvinnumennsku en hann er búinn að semja við sænska félagið Borås.

Stal 1,6 milljörðum frá NBA-liði til að kaupa sér lúxushús
Fyrrum framkvæmdastjóri NBA-liðsins Sacramento Kings hefur verið dæmdur í sjö ár fangelsi fyrir stór fjársvik í starfi.

Lovísa komin heim í Hauka
Lovísa Björt Henningsdóttir skrifaði í dag undir samning við Hauka um að spila með liðinu í Domino's deild kvenna í vetur.

Magic og Bird fengu heiðursverðlaun NBA-deildarinnar | Myndband
Á lokahófi NBA-deildarinnar í nótt komu goðsagnirnar Magic Johnson og Larry Bird saman upp á svið til þess að taka við heiðursverðlaunum fyrir framlag sitt til deildarinnar.

Giannis valinn bestur | Sjáðu hjartnæma ræðu hans
Giannis Antetokounmpo var í nótt valinn besti leikmaður NBA-deildarinnar og tilfinningaþrungin ræða hans mun seint gleymast.

Mega ekki lengur kalla sig eigendur NBA-liða því það gæti verið móðgandi
Ein furðulegasta frétt ársins kom í hús í dag er yfirmaður NBA-deildarinnar, Adam Silver, staðfesti að eigendur NBA-liða megi ekki lengur kalla sig eigendur. Ha, segja eðlilega flestir.

Njarðvíkingar bæta við sig reyndum bakverði
Njarðvík hefur samið við Evaldas Zabas, 31 árs bakvörð, sem hefur komið víða við á ferlinum.

Martin og félagar ekki meistarar
Bayern München sópaði Alba Berlin í úrslitum um þýska meistaratitilinn í körfubolta karla.

Arnór Hermannsson í ÍR
Körfuknattleikskappinn Arnór Hermannsson hefur fært sig um set og mun leika með ÍR í Dominos-deildinni í körfubolta á komandi leiktíð.

Gat ekki hafnað þessu boði
Hilmar Smári Henningsson hefur skrifað undir samning við spænska stórliðið Valencia. Hann hafði hug á að fara til Bandaríkjanna næsta haust en þegar Valencia kallaði skipti hann hins vegar um stefnu.

Valur semur við þrítugan miðherja
Íslandsmeistarar Vals í körfubolta eru byrjaðir að styrkja sig fyrir komandi tímabil í Domino's deild kvenna. Regina Palusna samdi við Hlíðarendafélagið.

Sonur Manute Bol kominn í NBA-deildina | Myndbönd
Risinn Bol Bol var valinn í nýliðavali NBA-deildarinnar í nótt en margir muna eftir föður hans, Manute Bol, sem mætti með sína 231 sentimetra í NBA-deildina árið 1985.

Finnur Freyr tekur við dönsku bikarmeisturunum
Fimmfaldi Íslandsmeistarinn Finnur Freyr Stefánsson þjálfar í Danmörku næstu tvö árin.

Zion grét er hann þakkaði móður sinni fyrir | Myndbönd
Næsta ofurstjarna NBA-deildarinnar, Zion Williamson, sýndi miklar tilfinningar er hann var valinn fyrstur í nýliðavalinu í nótt.

Zion valinn fyrstur til Pelicans
Zion Williamson mun leika með New Orleans Pelicans á næsta ári eftir að Pelicans valdi hann fyrstan í nýliðavali NBA deildarinnar sem fór fram í nótt.

Eldflaugamaðurinn spilar gegn Íslandi í ágúst
Einn af lykilmönnum Houston Rockets verður í liði Sviss sem mætir Íslandi í forkeppni EM 2021 í ágúst.

Dani úr Garðabænum í KR
Kvennalið KR í körfubolta fékk mikinn liðsstyrk í dag er hin magnaða Dani Rodriguez samdi við félagið.

Martin og félagar með bakið upp við vegg
Eru einum tapleik frá silfrinu í Þýskalandi.

Hilmar Smári semur við Valencia
Semur við spænska stórliðið til tveggja ára.

Titilvörnin hefst gegn Grindavík
Búið er tilkynna leikjaniðurröðunina í Domino's deild karla í körfubolta.

Golden State keypti auglýsingu til að óska Toronto til hamingju
Þótt Toronto Raptors hafi unnið Golden State Warriors í úrslitum NBA-deildarinnar kann Kaliforníuliðið að samgleðjast.

Blikar taka sæti Stjörnunnar
Breiðablik mun tefla fram liði í Domino's deild kvenna næsta vetur þrátt fyrir að hafa fallið úr deildinni í vor.

Skotárás í meistarafögnuði Toronto Raptors
Talið er að tveir hafi orðið fyrir skoti í miðborg Toronto í Kanada í dag. Mikill fjöldi fólks var þar samankomin til að fagna fyrsta NBA titli körfuboltaliðs borgarinnar Toronto Raptors.

„Versta ákvörðun sem Lakers hafa tekið“
LaVar Ball er ekki par sáttur með þá ákvörðun Los Angeles Lakers að skipta syni sínum, Lonzo Ball, til New Orleans Pelicans.