WHO: Dreifing bóluefna í Evrópu „óásættanlega hæg“ Alþjóðaheilbrigðismálastofnunin (WHO) gagnrýnir harðlega bólusetningar í Evrópu, sem stofnunin segir ganga „óásættanlega hægt.“ Stofnunin hefur áhyggjur af þróun kórónuveirufaraldursins í álfunni. Erlent 1. apríl 2021 14:26
Uppgefinn Víðir grætur í heimildarmynd um Covid-19 Víðir Reynisson fellir tár, Þórólfur Guðnason lýsir martröð og Katrín Jakobsdóttir talar um hættuástand í fyrstu stiklunni sem nú hefur verið birt upp úr heimildaþáttaröðinni Stormur sem fjallar um baráttuna við heimsfaraldur Covid-19 á Íslandi. Lífið 1. apríl 2021 13:59
Von er á allt að þrjú hundruð manns frá dökk rauðum eða gráum löndum Fyrstu tveir farþegarnir komu á sóttkvíarhótelið í Reykjavík í morgun, í samræmi við nýjar sóttvarnareglur reglur sem tóku gildi í dag. Samkvæmt reglunum þurfa þeir sem koma hingað til lands frá skilgreindum áhættusvæðum að fara á sóttkvíarhótel á milli fyrri og seinni sýnatöku. Von er á allt að þrjú hundruð manns á sóttkvíarhótelið í dag. Innlent 1. apríl 2021 13:23
Bólusettur Íslendingur smitaðist innanlands Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir segir ekki rétt að tveir bólusettir einstaklingar sem greinst hafa með breska afbrigði kórónuveirunnar hér á landi hafi borið veiruna með sér til landsins. Þá segir hann von á 120 þúsund skömmtum af bóluefni frá Pfizer í maí og júní og beðið er eftir afhendingaráætlun frá fleiri framleiðendum. Innlent 1. apríl 2021 12:55
Fyrstu gestirnir mættir á sóttkvíarhótelið við Þórunnartún Fyrsta sóttkvíarhótelið var opnað í morgun í tengslum við hertar sóttvarnarráðstafanir á landamærum. Sóttkvíarhótelið við Þórunnartún hefur nú verið opnað en hertar reglur tóku gildi á miðnætti. Innlent 1. apríl 2021 12:48
Kostnaður vegna reglna á landamærum íþyngjandi fyrir námsmenn: „Þetta getur hlaupið á hundrað þúsund kalli“ Kostnaður vegna sóttvarnaaðgerða á landamærum getur verið verulega íþyngjandi fyrir íslenska námsmenn erlendis sem hyggjast koma heim að mati Samtaka íslenskra námsmanna erlendis. Samtökin vonast til að eiga samtal við heilbrigðisráðuneytið um leiðir til að draga úr kostnaði fyrir þá sem standa verr fjárhagslega. Innlent 1. apríl 2021 12:00
Smitin tengjast skólunum og meðalaldur smitaðra er 17 ára Sex manns greindust með kórónuveiruna hér á landi síðastliðinn sólarhring og aðeins einn var utan sóttkvíar. Meðalaldur smitaðra er 17 ára. Innlent 1. apríl 2021 11:58
Fimm af sex sem greindust voru í sóttkví Sex manns greindust með kórónuveiruna hér á landi síðastliðinn sólarhring. Af þeim voru fimm í sóttkví við greiningu. Innlent 1. apríl 2021 10:44
Neyðarkall Áður en lengra er haldið vil ég ítreka að ég er ekki sjálfskipaður sófasérfræðingur á sviði landamæramála eða sóttvarna, ráðinn af nýgotneskum feigðarkrákum sitjandi í sínum steypta sessi fyrir ofan lyklaborðin sín að fylgjast með á ljósvakamiðlum áður en þau hella sér yfir alla og allt sem á sér stað í samfélaginu. Skoðun 1. apríl 2021 09:00
Klúður í verksmiðju tefur bóluefni Johnson & Johnson Um fimmtán milljónir skammta af bóluefni Johnson & Johnson gegn kórónuveirunni eru sagðir hafa eyðilagst þegar starfsmenn í verksmiðju í Baltimore rugluðu saman innihaldsefnum fyrir nokkrum vikum. Klúðrið er sagt tefja afhendingu á bóluefninu. Erlent 31. mars 2021 23:50
Frakkar herða aftur á aðgerðum gegn veirunni Skólar í Frakklandi verða lokaðir næstu þrjár vikurnar í það minnsta samkvæmt nýjum og hertum sóttvarnaaðgerðum sem Emmanuel Macron forseti kynnti í dag. Varaði hann við því að yfirvöld gætu misst tökin á kórónuveirufaraldrinum yrði ekki gripið til aðgerða strax. Erlent 31. mars 2021 19:48
Tveir bólusettir greinst með breska afbrigðið á Íslandi Tvö tilvik hafa komið upp þar sem bólusettir einstaklingar hafa greinst með breska afbrigði kórónuveirunnar á Íslandi. Innlent 31. mars 2021 19:32
Sjö hundruð hótelherbergi fyrir fólk í sóttkví Gert er ráð fyrir að sjö hundruð herbergi verði nýtt fyrir þá sem verða skikkaðir í sóttkví á hóteli eftir komuna til landsins. Forstjóri Sjúkratrygginga segir greiðslur farþega vega þungt í heildarkostnaði. Innlent 31. mars 2021 19:01
Ræða grímuskyldu við gosstöðvarnar Almannavarnir skoða nú hvort tekin verði upp grímuskylda við gosstöðvarnar í Geldingadölum. Tugir þúsunda manna hafa lagt leið sína að gosinu undanfarna viku en engin grunur hefur komið upp um að kórónuveira hafi smitast á milli fólks þar enn sem komið er. Innlent 31. mars 2021 18:43
Gylfaginning Gylfi Zoega hagfræðiprófessor kom í Kastljós RÚV þriðjudaginn 30. mars til að ræða hagræn áhrif aðgerða gegn kórónaveirunni. Skoðun 31. mars 2021 17:01
Bóluefni fyrir 193 þúsund fyrir júnílok Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra gerir bólusetningar, nýjar reglur á landamærum og stöðu mála í kórónuveirufaraldrinum að umræðuefni í því sem mætti kalla páskapistli sínum á Facebook. Henni telst til að í lok júní verði komið hingað til lands bóluefni fyrir 240 þúsund manns. Innlent 31. mars 2021 16:06
Orsakasamband ekki sannað en hugsanlegt Orsakasamband milli bóluefnis AstraZeneca og blóðtappa í þeim sem þegið hafa bóluefnið hefur ekki verið sannað, en það er hugsanlegt. Erlent 31. mars 2021 14:33
Fjarlægja Spán af lista yfir lönd skilgreind sem áhættusvæði Heilbrigðisráðuneytið hefur ákveðið að fjarlægja meginland Spánar af landalista sóttvarnalæknis þar sem tilgreint er hvaða lönd eru skilgreind áhættusvæði vegna mikils nýgengis COVID-19 smita. Farþegar frá meginlandi Spánar skulu því sæta sóttkví í heimahúsi eftir breytinguna en ekki á sóttkvíarhóteli. Innlent 31. mars 2021 13:52
Kraftaverki líkast að fleiri hafi ekki veikst um borð Pétur Heimisson, umdæmislæknir sóttvarna á Austurlandi segir að það hafi verið kraftaverki líkast hversu vel hafi tekist að halda uppi smitvörnum um borð í súrálsskipinu sem liggur við Mjóeyrarhöfn í Reyðarfirði. Innlent 31. mars 2021 13:37
Bóluefni Pfizer með fullkomna virkni hjá tólf til fimmtán ára Forsvarsmen Pfizer segja nýjustu rannsóknir sýna að bóluefni fyrirtækisins gegn Covid-19 sé 100 prósent virkt þegar það er gefið börnum á aldrinum 12 til 15 ára og framkalli öflugt ónæmisviðbragð. Erlent 31. mars 2021 13:09
Svona verður skólastarfi háttað eftir páska Staðnám verður aftur leyft á öllum skólastigum eftir páskafrí með vissum takmörkunum. Grunn-, framhalds- og háskólum var lokað síðasta fimmtudag þegar hertar sóttvarnatakmarkanir tóku gildi eftir fjölgun kórónuveirusmita. Innlent 31. mars 2021 12:46
Vísar ummælum Jóhannesar Þórs til föðurhúsanna Þórólfur Guðnason, sóttvarnalæknir, hafnar því alfarið að sóttvarnayfirvöld séu að grafa undan stefnu ríkisstjórnarinnar varðandi svokallað litakóðakerfi sem stefnt er á að taka upp á landamærunum þann 1. maí. Innlent 31. mars 2021 12:28
Hvetja ekki til páskaferðalaga og biðja fólk að sinna erindum í heimabyggð Rögnvaldur Ólafsson, aðstoðaryfirlögregluþjónn hjá Almannavörnum, beinir þeim tilmælum til fólk að hugsa vel um hvaða fólk það ætli að hitta yfir páskana. Innlent 31. mars 2021 12:17
BB Hótel á Ásbrú skoðað í dag fyrir sóttkvíarhótel Gert er ráð fyrir að sóttkvíarhótel verði opnað í Reykjanesbæ þegar Fosshótel við Þórunnartún fyllist. Unnið er að því að búa hótelið undir komu farþega úr þremur flugvélum á morgun. Innlent 31. mars 2021 11:58
Sjá ekki tengsl á milli þeirra fimm sem greindust utan sóttkvíar Þórólfur Guðnason, sóttvarnalæknir, segir enn sem komið er ekki hægt að sjá tengsl á milli þeirra fimm einstaklinga sem greindust með kórónuveiruna utan sóttkvíar í gær. Innlent 31. mars 2021 11:27
Átta greindust innanlands og fimm utan sóttkvíar Átta greindust með kórónuveiruna innanlands í gær. Þrír þeirra sem greindust voru í sóttkví, en fimm voru utan sóttkvíar. Innlent 31. mars 2021 10:47
EM-strákarnir skikkaðir í sóttvarnahús en A-landsliðið ekki Tíu daga landsliðstörn lýkur hjá A-landsliði og U21-landsliði karla í fótbolta í dag. Mannskapurinn ferðast heim á morgun en þá taka gildi nýjar reglur um ferðatakmarkanir gildi. Fótbolti 31. mars 2021 10:31
Svona var 172. upplýsingafundurinn vegna kórónuveirunnar Almannavarnadeild ríkislögreglustjóra og embætti landlæknis boða til páskaupplýsingafundar klukkan 11 í dag. Innlent 31. mars 2021 10:02
Helmingur Breta nú með mótefni Helmingur allra Breta er nú kominn með mótefni gegn kórónuveirunni, annaðhvort eftir að hafa smitast af veirunni, eða eftir að hafa fengið bóluefni gegn hanni. Erlent 31. mars 2021 08:22
Hætta notkun bóluefnis AstraZeneca fyrir yngra fólk Þýsk yfirvöld hafa ákveðið að gefa fólki yngra en sextugu ekki bóluefni AstraZeneca gegn kórónuveirunni vegna einstakra tilfella blóðtappa sem tilkynnt hefur verið um í fólki sem hefur fengið efnið. Lyfjastofnanir Evrópu og Bretlands hafa báðar mælt með áframhaldandi notkun bóluefnisins. Erlent 30. mars 2021 22:43
Leynilega upptakan á Edition-hótelinu: „Ef ég á að taka fimmta sætið vil ég verða þinn maður í þessu“ Innlent