108 greindust smitaðir af Covid-19 og sjötíu utan sóttkvíar Að minnsta kosti 108 greindust með kórónuveirusmit hér innanlands eftir sýnatökur í gær. Af þeim sem greindust innanlands í gær voru 70 utan sóttkvíar og 38 í sóttkví við greiningu. Innlent 3. ágúst 2021 10:43
Svona var 187. upplýsingafundurinn vegna Covid-19 Almannavarnadeild ríkislögreglustjóra og embætti landlæknis boða til upplýsingafundar í dag klukkan 11. Innlent 3. ágúst 2021 10:27
Bíða eftir hver áhrif mannamóta helgarinnar verða Víðir Reynisson, yfirlögregluþjónn hjá almannavörnum, gerir fastlega ráð fyrir því að smittölur gærdagsins verði á svipuðu róli og undanfarna daga. Hann segir að það verði áhugavert að sjá hvaða áhrif ferðalög og mannamót verslunarmannahelgarinnar muni hafa á faraldurinn. Innlent 3. ágúst 2021 09:10
Að rýna í tölur – vegna fréttar RÚV 2. ágúst Í dag birtist frétt á vef Ríkisútvarpsins um ný gögn frá bandarísku sóttvarnastofnuninni CDC þar sem sýnt fram á gagnsemi bólusetninga í baráttunni við Covid þar í landi. Það er mikilvægt að miðla ekki eingöngu neikvæðum fréttum af framvindu faraldursins, og ánægjulegt að Ríkisútvarpið greini frá góðum árangri baráttunnar annars staðar. Hins vegar er ekki vandað nógu vel til verka við vinnslu fréttarinnar, sem er unnin upp úr frétt CNN. Meðferð talna er verulega ábótavant, svo mjög að sannleikurinn skolast til. Skoðun 3. ágúst 2021 08:01
Aftur til vinnu eftir frí: Sex góð ráð Eftir dásamlegt frí, jafnvel sólardaga, er komið að því: Við þurfum að byrja aftur að vinna! Og þá gildir um marga að fá smá hnút í magann. Finna jafnvel til þess að „nenna” varla. Þótt við séum almennt ánægð í vinnunni okkar. Atvinnulíf 3. ágúst 2021 07:01
Hyggjast skima 11 milljónir íbúa Wuhan í kjölfar sjö smita Yfirvöld í Wuhan í Kína ætla að skima alla íbúa borgarinnar fyrir kórónuveirunni eftir að sjö manns greindust þar. BBC fréttastofan segir það vera fyrstu tilfellin sem greinst hafi í Wuhan í rúmt ár en veiran greindist fyrst þar í heiminum seint á árinu 2019. Erlent 3. ágúst 2021 06:45
Ónæmisörvun kennara og skólastarfsmanna hefst í dag Kennsla í leikskólum hefst víða í dag eftir hefðbundna sumarlokun í júlímánuði og þá hefst jafnframt í dag seinni bólusetning kennara og starfsmanna skóla sem fengu bóluefnið frá Janssen á vordögum. Innlent 3. ágúst 2021 06:28
Kalla starfsfólk úr sumarleyfum vegna álags og opna nýja Covid-deild Einn liggur í öndunarvél á Landspítalanum vegna Covid-19 og er það í fyrsta sinn sem sjúklingur hefur þurft á slíkri aðstoð að halda í þessari fjórðu bylgju faraldursins. Unnið er að opnun nýrrar Covid-deildar á spítalanum og hefur þurft að kalla starfsfólk úr sumarleyfum vegna álags. Innlent 2. ágúst 2021 20:06
Einn í öndunarvél með Covid-19 Tveir sjúklingar liggja á gjörgæsludeild Landspítalans með Covid-19. Annar þeirra var settur í öndunarvél í gær. Fimm voru lagðir inn með sjúkdóminn síðasta sólarhring. Innlent 2. ágúst 2021 14:03
Tvöfalt fleiri reyndust smitaðir í Herjólfi Þrjátíu ferðamenn eru komnir í farsóttahús eftir að hafa greinst með kórónuveiruna um borð í Herjólfi. Hópurinn hafði áður gert tilraun til að ferðast til Vestmannaeyja en kórónuveirufaraldurinn setti strik í reikninginn, segir Gylfi Þór Þorsteinsson, umsjónarmaður húsanna. Innlent 2. ágúst 2021 13:07
Draumur rættist í gær: „Það væri nú gaman að prufa þetta einu sinni með fólki“ Þetta var algjör heiður, segir Magnús Kjartan Eyjólfsson um brekkusönginn sem hann stýrði í fyrsta sinn í gær. Hann segir upplifunina stórkostlega og væri tilbúinn til að stýra söngnum aftur að ári. Innlent 2. ágúst 2021 13:00
Fjölga starfsfólki í vikunni vegna álags Álag er á starfsfólki sýnatökuhússins við Suðurlandsbraut, en langar raðir í sýnatöku virðast nú daglegt brauð. Verkefnastjóri skimana segir að von sé á fleira starfsfólki í næstu viku. Innlent 2. ágúst 2021 12:44
Hafa kallað inn fólk úr sumarfríum til að bregðast við fjölgun Covid-tengdra sjúkraflutninga Slökkviliðið á höfuðborgarsvæðinu fór í fimmtíu Covid-tengda sjúkraflutninga á síðasta sólarhring. Varðstjóri hjá slökkviliðinu segir fjölda flutninganna í takt við fjölgun smita en fólk hefur verið kallað inn úr sumarfríum til að bregðast við auknu álagi vegna veirunnar. Innlent 2. ágúst 2021 11:55
67 greindust smitaðir innanlands Að minnsta kosti 67 greindust með kórónuveirusmit hér innanlands eftir sýnatökur í gær. Af þeim sem greindust innanlands í gær voru 36 utan sóttkvíar og 31 í sóttkví við greiningu. Innlent 2. ágúst 2021 11:00
Hvar værum við án framlínufólks í verslun? Í dag er frídagur verslunarmanna. Dagur sem flestir landsmenn kenna við stærstu fríhelgi ársins og njóta ýmist utan sem innanbæjar til skemmtunar og afþreyingar. Skoðun 2. ágúst 2021 09:05
Lífið í „nýsjálensku leiðinni“ Þann 25.júli skrifaði Gunnar Smári Egilsson pistil á þessum vettvangi þar sem hann lofar það sem hann kallar „nýsjálensku leiðina“ i baráttunni við COVID. Þar týnir hann til tölur um tilfelli af veirunni og dauðsföll á Nýja Sjálandi, sem eru mun lægri en í flestum öðrum löndum, eins og hann réttilega bendir á. Hálfgerð „útópía“ að hans mati. Skoðun 1. ágúst 2021 19:25
YouTube setur Sky News í Ástralíu í bann Efnisveitan YouTube hefur sett fréttastofuna Sky News í Ástralíu í vikulangt bann. Efnisveitan segir fréttastofuna hafa brotið hegðunarreglur með því að breiða út rangar upplýsingar um Covid-19. Erlent 1. ágúst 2021 17:25
Nýtt farsóttarhús opnað í dag Nýtt farsóttarhús verið tekið í gagnið í dag þar sem hin eru yfirfull. Um er að ræða Hótel Storm í Þórunnartúni. Innlent 1. ágúst 2021 14:56
Starfsmaður á Grund greindist smitaður Starfsmaður á hjúkrunarheimili Grundar við Hringbraut greindist jákvæður fyrir Covid-19 í gærkvöldi. Hann vinnur á deildunum Litlu Grund og Minni Grund. Innlent 1. ágúst 2021 14:44
Fimmtán farþegar Herjólfs greindust smitaðir Fimmtán farþegar sem voru um borð í Herjólfi í gær greindust smitaðir af kórónuveirunni. Um er að ræða erlenda ferðamenn sem fengu jákvæðar niðurstöður úr sýnatöku eftir að þeir komu til Vestmannaeyja. Innlent 1. ágúst 2021 14:40
Mótmæltu bólusetningum: „Ég vona að næst verði ég handtekinn með þér“ Hópur sem kallar sig Coviðspurnuna stóð fyrir mótmælum á Austurvelli í gær þar sem bólusetningum og sóttvarnaaðgerðum stjórnvalda var mótmælt. Hópurinn hefur nú boðað til „stórmótmæla“ fyrir framan heilbrigðisráðuneytið á fimmtudag. Innlent 1. ágúst 2021 13:30
„Ég held að við getum ekki farið að hrósa neinu happi“ Að minnsta kosti 83 greindust smitaðir af kórónuveirunni innanlands í gær. Samskiptastjóri almannavarna segir að færri sýni hafi verið tekin í gær en dagana á undan og því of snemmt að hrósa happi. Mikið álag er á símaveri Covid-19 göngudeildarinnar. Innlent 1. ágúst 2021 11:57
83 greindust innanlands Að minnsta kosti 83 greindust með kórónuveirusmit hér innanlands eftir sýnatökur í gær. Af þeim sem greindust innanlands í gær voru 42 í sóttkví en 41 utan sóttkvíar við greiningu. Innlent 1. ágúst 2021 11:00
Allt farið vel fram í Vestmannaeyjum um helgina Verslunarmannahelgin hefur farið afskaplega vel fram í Vestmannaeyjum. Varðstjóri lögreglunnar á svæðinu segir fólk almennt glatt og skemmtilegt. Innlent 1. ágúst 2021 10:19
Sóttkvíarbrjótur handtekinn fyrir líkamsárás Tveir menn voru handteknir í Kópavogi eftir líkamsárás í nótt. Við handtökuna kom í ljós að annar þeirra ætti að vera í sóttkví. Innlent 1. ágúst 2021 07:17
„Mín vegna megið þið deyja hvenær sem er“ Rodrigo Duterte, forseti Filippseyja, sagði í ávarpi á miðvikudag að honum væri sama ef þeir sem afþakka bóluefni við Covid-19 deyi úr sjúkdóminum. Erlent 31. júlí 2021 23:31
Verslunarmannahelgi í farsóttarhúsi: „Ætli við stelpurnar tökum ekki bara Facetime og förum yfir stjörnuspána“ Margt ungt fólk mun verja verslunarmannahelginni í einangrun í farsóttarhúsi. Kona sem fréttastofa ræddi við ætlaði að skemmta sér á Djúpavogi um helgina en mun í staðinn skoða stjörnuspá í einangrun. Innlent 31. júlí 2021 21:00
„Ég er ekkert hrædd við þetta“ „Manni finnst maður mjög öruggur,“ segir heimilismaður á hjúkrunarheimilinu Grund, sem trúir að bóluefnin séu þegar búin að breyta miklu um áhrif veirunnar á daglegt líf. Enginn hefur greinst smitaður af Covid-19 á Grund frá því á þriðjudaginn, þegar starfsmaður og tveir heimilismenn sendu heila deild í sóttkví. Innlent 31. júlí 2021 19:42
Með frelsi hverra að leiðarljósi? Nýlega skrifar Áslaug Arna dómsmálaráðherra grein í Morgunblaðið sem hún kallar ”Með frelsið að leiðarljósi”. Um frelsi hverra er ráðherrann að tala? Skoðun 31. júlí 2021 18:30
Segir engar vísbendingar um að faraldurinn sé á niðurleið og hefur áhyggjur Yfirmaður smitrakningarteymisins segir engar vísbendingar um að faraldurinn sé á niðurleið og hefur áhyggjur af stöðunni. Aldrei hafa fleiri greinst með kórónuveiruna innanlands á einum degi og vegna álags getur smitrakningarteymið ekki hringt í þá sem þurfa í sóttkví. Innlent 31. júlí 2021 18:30