Cold Winter Cold Winter er nýr fyrstu persónu skotleikur frá óþekktu fyrirtæki sem heitir Swordfish Studios. Hér fer maður í hlutverk Breska hörkutólsins Andrew Sterling sem vann áður fyrir MI6. Agent Sterling (og þá er ég ekki að tala um Jodie Foster úr Silence of the Lambs) er tekinn höndum af kínverjum þegar leikurinn byrjar og þarf að þola pyntingar þar í marga mánuði þangað til honum er bjargað af vinkonu sinni Kim. Hún lætur hann fá vopn og fyrsta verkefnið er einfaldlega að sprengja sér leið út úr fangelsinu. Seinna í leiknum koma svo fleiri persónur inn í þetta og söguþráðurinn flækist. Söguþráðurinn í Cold Winter er mjög góður miðað við þessa tegund leikja og á hann hrós skilið fyrir það. Leikjavísir 22. september 2005 00:01
Þekktar raddir talsetja True Crime Activision hefur ráðið skara af þekktum leikurum til að talsetja leikinn True Crime: New York City. Christofer Walken, Laurence Fishburn, Mariska Hargitay, Mickey Rourke, Esai Morales, Traci Lords og Avery Waddell munu öll taka þátt í talsetningu leiksins og tala fyrir helstu lykil persónur. Leikjavísir 19. september 2005 00:01
Næsta bylting? Í ræðu sinni í dag, 16. september, lýsti forseti Nintendo, Saturo Iwata, áformum fyrirtækisins með nýjan stýripinna sem á að koma út fyrir næstu Nintendo Console tölvu sem hefur einfaldlega verið nefnd Revolution. Leikjavísir 17. september 2005 00:01
Sony innkallar PS2 straumbreyta Sony risinn er um þessar mundir að innkalla suma straumbreyta fyrir sumar Playstation 2 Slimline tölvurnar. Straumbreytarnir sem eru framleiddir frá Ágúst til Desember 2004 og koma með svörtu PS2 Slimline módelunum SCPH70002, 70003 og 70004 geta ofhitnað og valdið skaða hjá þeim sem nota straumbreytana. Leikjavísir 16. september 2005 00:01
Total Overdose kemur í næstu viku Í næstu viku kemur út leikurinn Total Overdose á PC, PlayStation 2 og Xbox. Ef Robert Rodriguez og Grand Theft Auto leikirnir myndu eyða nóttinni saman yrði útkoman Total Overdose. Leikjavísir 16. september 2005 00:01
Charlie and the chocalate factory Eins og augljóst er þá er leikurinn byggður á kvikmyndinni Charlie and the Chocolate Factory sem hefur verið í bíóhúsum undanfarið og skartar Johnny Depp í aðalhlutverki sem hinn sérvitri Willy Wonka, sem rekur stærstu nammiverksmiðju í heiminum. Enginn veit hvað gengur á í þessari verksmiðju þar sem hún hefur verið lokuð almenningi í mörg ár. Einn daginn tilkynnir Willy Wonka það að hann muni hleypa 5 börnum inn í verksmiðjuna. Leikjavísir 15. september 2005 00:01
Útgáfudagar Xbox 360 staðfestir Eins og áður hefur komið fram í fréttum hér á GEIM mun Xbox 360 koma samtímis á markað á helstu markaðssvæðum og er það í fyrsta skipti sem leikjavél er gefin út í sama tímaramma. Leikjavísir 15. september 2005 00:01
GTA á leiðinni á PSP Nú styttist óðum í að Grand Theft Auto Liberty City Stories komi á PSP vélina. Þetta er alveg ný útfærsla af GTA með nýjum karakterum, söguþræði farartækjum og vopnum. Leikurinn gerist eins og nafnið gefur til kynna í Liberty City og hefur Rockstar eytt mikilli orku í að gera GTA upplifunina eins massífa og hægt er. Skoðun 13. september 2005 06:00
Mobile connect á Íslandi Á heimasíðu Ogvodafone er greint frá nýrri og spennandi þjónustuleið fyrirtækisins í fjarskiptum. Vodafone kynnir nú Mobile Connect þjónustu sína á Íslandi núna í September og hleypir svo af stað í beinu framhaldi Blackberry þjónustu í október sem farið hefur sigurför um heiminn. Nú þegar eru 3,5 milljónir notanda að Blackberry og eykst sú tala sífellt. Leikjavísir 8. september 2005 00:01
Skjálfti 3 2005 Seinustu helgi, 2-4 september var haldinn Skjálfti 3 leikjamót Símans og Opinna kerfa í íþróttahúsinu við Digranesskóla í Kópavogi. Ákveðið var að senda útsendara GEIM á vettvang á sunnudeginum sem og seinasta keppnisdegi til að athuga með eftirskjálfta mótsins. Leikjavísir 6. september 2005 00:01
PSP Innrásin Fyrirbærið Playstation Portable frá Sony er lent á klakanum. 2000 litlir svartir ferkantaðir hlutir á stærð við sjónvarpsfjarstýringu eru meðal Íslendinga akkúrat núna! Hugsanlega eru fleiri svona tæki í fórum túrista en það er á huldu að svo stöddu! Á næstu misserum munu þessi tól vera á faraldsfæti meðal vor, sérstaklega á svonefndum heitum reitum. Leikjavísir 2. september 2005 00:01
PSP komin á markaðinn Það er stór dagur í dag í Evrópu fyrir Sony því nýja PSP er komin á markaðinn og því einnig á Íslandi. Útsöluverð er í kringum 21.999 – 23.999 og sökum hversu mikil eftirspurn er á vélunum eru aðeins um 2000 vélar í sölu í dag á Íslandi. Leikjavísir 1. september 2005 00:01
BF2 umfjöllun Nýlega kom út þriðji leikurinn í Battlefield seríunni, Battlefield 2, og er maður dreginn til Mið Austurlanda og Kína til að berjast þar upp á líf og dauða. Í þetta skiptið ertu klæddur upp sem hermaður framtíðarinnar, árið 2010, sem Bandarískur Landgöngu-liði eða hermaður hjá Kínversku PLA(Peoples Liberation Army) eða MEC (Middle Eastern Coalition). Leikjavísir 29. ágúst 2005 00:01
Kvikmynd um Splinter cell? Í fréttatilkynningu frá Dreamworks kvikmyndaverinu er sagt frá að þeir séu stutt frá því að eignast kvikmyndaréttinn af tölvuleikjum Tom Clancy um Splinter cell. Munu Dreamworks tefla fram David Pyne(The Manchurian candidate) sem leikstjóraefni fyrir komandi kvikmynd um Sam Fisher og leyniaðgerðir hans með Third Echelon í háspennu, hátæknivæddum ævintýrum hans. Leikjavísir 28. ágúst 2005 00:01
Destroy all Humans Þegar ég heyrði fyrst um Destroy all humans þá brosti ég aðeins, svo fékk ég leikinn í hendurnar og byrjaði að brosa meira. Á endanum var ég byrjaður að skellihlæja. Það myndast brosviprur einfaldlega þegar ég hugsa til leiksins. Í Destroy all humans leikur þú Cryptosporidum 137 frá plánetunni Furon sem er sentur til jarðar til þess að bjarga Cryptosporidum 136 og fá þér nokkra safaríka heila í leiðinni. Leikjavísir 28. ágúst 2005 00:01
Viðtal við Icegaming klanið Icegaming klanið hefur verið boðið að keppa á World Tour Stop í Sheffield á Bretlandseyjum í september næstkomandi. GEIM sló á þráðinn í talsmann Icegaming, Þórð Þorsteinsson og fræddist aðeins um starfsemi klansins. Leikjavísir 25. ágúst 2005 00:01
Ryu Ga Gotoku tilkynntur formlega Þeir sem áttu Dreamcast tölvuna sálugu frá Sega ættu að þekkja til leiksins Shenmue sem er talinn dýrasti leikur sögunnar. Í þeim leik var allt gert til að búa til lifandi heim með sterkum söguþræði og heilsteyptum karakterum. Leikjavísir 24. ágúst 2005 00:01
Halo færir sig upp á silfurtjaldið Samkvæmt frétt úr skemmtiiðnaðar blaðinu Variety hafa Universal og 20th Century Fox komist að samkomulagi um að framleiða kvikmynd eftir hinum vinsæla skotleik Halo sem Xbox spilarar ættu að þekkja vel. Myndin á að vera komin í bíó innan við tvö ár samkvæmt heimildum. Leikjavísir 24. ágúst 2005 00:01
Fullt af leikjum á útgáfudegi PSP Sama dag og PSP leikjatölvan kemur út hér á landi þann fyrsta September næstkomandi, kemur út fjöldi leikja frá hinum ýmsu framleiðendum. Sjaldan eða aldrei hefur útgáfa verið jafn öflug í upphafi nokkurrar tölvu og PSP, þannig að flestir ættu að finna eitthvað við sitt hæfi. Leikjavísir 17. ágúst 2005 00:01
Nintendo DS lækkar í Bandaríkjunum Nintendo hafa ákveðið að lækka verðið á Nintendo DS leikjavélinni um 20 dollara í Bandaríkjunum 21. Ágúst næstkomandi. Vélin mun þá kosta 129.99 dollara (rúmar 8.000 krónur) og kemur lækkunin í tíma fyrir útgáfu á Nintendogs sem er nýjasta æðið í Japan. Ekki er komið á hreint hvort lækkun er að vænta á næstunni í Evrópu en GEIM mun fylgjast með þeirri þróun. Nintendo DS hefur setið á toppnum á öllum sölulistum í Japan síðustu fjóra mánuði. Leikjavísir 16. ágúst 2005 00:01
Sanctuary kynnir 5 titla fyrir PSP Sanctuary Visual Entertainment hafa tilkynnt um fimm titla sem fyrirtækið mun gefa út fyrir Sony PSP vélina sem kemur á markað í Evrópu 01. september næstkomandi. Leikjavísir 12. ágúst 2005 00:01
Kaldara kaffi er komið út Eins og allir ættu að vita hafa Rockstar Games svo sannarlega verið í vandræðum undanfarið eftir að Hot Coffe kóðinn kom í ljós og leysti úr læðingi falda kynlífsleiki í GTA San Andreas. Nú hafa Rockstar séð að sér og gefið út "plástur" til að hreinsa öll PC eintök af leiknum. Leikjavísir 9. ágúst 2005 00:01
Pokémon Emerald kemur í október Nú er kominn útgáfudagur fyrir Pokémon Emerald fyrir Game Boy Advance í Evrópu. Pokémon sjúklingar ættu að merkja 21. október í dagatalið sitt því þá lendir Emerald í Evrópu í hinni gríðarlega vinsælu Pokémon seríu. Leikjavísir 9. ágúst 2005 00:01
Manager 2006 Staðfestar nýjungar Sports Interactive og SEGA hafa sent frá sér eftirfarandi tilkynningu varðandi þær nýjungar sem staðfestar eru í Football Manager 2006 á PC/Mac. Gaurarnir hjá Sports Interactive hafa unnið hörðum höndum að því að gera þessa næstu útgáfu sem besta. Leikjavísir 9. ágúst 2005 00:01
Big Mutha Truckers 2 Truck me Harder er eins og titillinn bendir til, framhaldsleikur Big Mutha Truckers. Núna höldum við áfram að fylgja Jackson fjölskyldunni í gegnum öll hennar ævintýri. Ættmóðirin sjálf hefur verið handtekinn fyrir skattsvik, og nú þurfa börnin hennar að finna leið til að múta kviðdómendunum svo Ma Jackson sleppi við fangelsisvist. Leikjavísir 9. ágúst 2005 00:01
Ridge Racer 6 verður að netleik Upplýsingar um Ridge Racer 6 fyrir Xbox360 hafa nú borist frá framleiðanda leiksins Namco. Ridge Racer er gamall í hettunni í kappakstursleikja geiranum en í fyrsta sinn mun leikurinn verða fjöldaspilunarhæfur fyrir leikjatölvu. Með Xbox Live munu spilarar keppa á móti hvorum öðrum yfir netið, niðurhala nýjum tólum og tækjum. Leikjavísir 5. ágúst 2005 00:01
Conflict skiptir um nafn Nýjasti leikurinn í hinni vinsælu skotleikjaseríu Conflict hefur nú skipt um nafn en upphaflega átti næsti leikur að heita Conflict: Global Terror. Eidos hafa endurskýrt leikinn Conflict: Global Storm og mun hann koma á markað 30. september á PS2, Xbox og PC. Leikjavísir 5. ágúst 2005 00:01
Rallíleikir tilbúnir fyrir PSP Codemasters hafa tilkynnt að Colin McRae Rally 2005 Plus og TOCA Race Driver 2 verði tilbúnir fyrir útgáfu á PSP vélinni frá Sony fyrsta september 2005. Leikirnir eru mjög heitir kappakstursleikir og því góð viðbót fyrir vélina. Leikjavísir 4. ágúst 2005 00:01
Nokia með nýja útgáfu af N-Gage Nokia risinn hefur tilkynnt um silfur útgáfu á N-Gage leikjasímanum sínum fyrir Evrópu, Mið-Austurlönd og Afríkumarkað. Risinn mun halda áfram að styðja við leikjasímann með frekari útgáfu á titlum eins og One, System Rush, Pathway to Glory, Ikusa Islands og High Seize. Leikjavísir 3. ágúst 2005 00:01
Boiling Point: Road To Hell Það eru ekki margir leikir sem blanda saman fyrsta persónu skotleik við hlutverka leiki, en Boiling Point: Road to Hell nær þeim leikjaranda ansi vel. Þegar ég las fyrst um leikinn þá fékk ég dágóðann áhuga á honum, og varð ekki fyrir vonbrigðum með hugmyndina. Hinnsvegar eru villurnar of margar í honum fyrir minn smekk, og verð ég að segja að partur af leiknum hverfur úr sviðsljósinu útaf þessum villum. Leikjavísir 2. ágúst 2005 00:01