

Lögreglumál
Fréttir af verkefnum lögreglunnar á Íslandi.

Grunur um að þremur hafi verið byrlað
Grunur leikur á að þremur hafi verið byrluð ólyfjan á Akureyri í nótt, tveimur konum og einum karlmanni. Önnur kvennanna fannst nær rænulaus fyrir utan skemmtistað í bænum en vinir hinna tveggja komu þeim á slysadeild.

Hótaði fólki með hamri
Mikill erill var á hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu í gærkvöldi og í nótt. Tíu aðilar voru vistaðir í fangageymslu og fjölmargir ökumenn voru stöðvaðir grunaðir um akstur undir áhrifum áfengis eða fíkniefna.

Ók á yfir 160 kílómetra hraða á flótta frá lögreglu
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu virðist hafa staðið í ströngu við umferðareftirlit í gærkvöldi og í nótt. Fjölmargir ökumenn voru stöðvaðir, ýmist undir áhrifum áfengis eða fíkniefna.

Enn á gjörgæslu eftir alvarlega líkamsárás í Reykjanesbæ
Karlmaður á fimmtugsaldri er á gjörgæsludeild Landspítala eftir að hann varð fyrir alvarlegri líkamsárás fyrir utan skemmtistað í miðbæ Reykjanesbæjar á aðfaranótt síðastliðins laugardags.

Fjölga í kynferðisbrotadeild vegna holskeflu mála
Málum á borði kynferðisbrotadeildar lögreglu hefur fjölgað um tæpan þriðjung milli ára á höfuðborgarsvæðinu. Mesta fjölgunin er í flokki mála þar sem brotið er gegn börnum, auk þess sem málin eru erfiðari í rannsókn en áður. Bætt verður við mannskap til að anna álaginu.

Framkvæmdastjóri ÍR ákærður fyrir að draga sér fé og strauja kortið fyrir milljónir
Héraðssaksóknari hefur ákært Árna Birgisson, fyrrverandi framkvæmdastjóra Íþróttafélags Reykjavíkur (ÍR) fyrir fjárdrátt, umboðssvik og peningaþvætti, með því að hafa í starfi sínu dregið sér samtals tæpar 3,2 milljónir króna og greitt eigin reikninga með kreditkorti félagsins fyrir tæpar 1,6 milljónir króna.

„Það voru engin ummerki á vettvangi sem bentu til neins annars en veikinda”
Hinn 14. febrúar 2015 var karlmanni veitt stungusár á heimili sínu við Skúlaskeið í Hafnarfirði, með þeim afleiðingum að hann hlaut bana af. Hnífurinn gekk inn í hægra brjóst mannsins og fór djúpt inn í lungað. Stungan sjálf var hins vegar agnarsmá og hefði auðveldlega getað farið fram hjá viðbragðsaðilum.

Hross mikið slasað eftir að ekið var á það á Kjalarnesi
Ekið var á hross á Kjalarnesi í gærkvöldi. Lifði það áreksturinn en var mikið slasað. Engin slys urðu á fólki en ökumaðurinn er grunaður um akstur undir áhrifum fíkniefna og hefur ítrekað verið stöðvaður þrátt fyrir að hafa verið sviptur ökuréttindum.

Árs fangelsi fyrir að hafa ítrekað berað sig fyrir framan börn
Karlmaður á áttræðisaldri var nýlega dæmdur í tólf mánaða fangelsi. Maðurinn hefur ítrekað berað sig fyrir framan börn á leiksvæði við heimili sitt í Grafarvogi. Ákærði hefur þrisvar sinnum áður verið dæmdur fyrir sams konar brot.

Grunaður um ólöglegan innflutning á slöngum og tarantúlum
Matvælastofnun hefur óskað eftir opinberri rannsókn lögreglu á einstaklingi sem grunaður er um að hafa flutt til landsins án leyfis slöngur, snáka, eðlur og tarantúlur.

Ekið á níu ára dreng og unga konu
Ekið var á níu ára dreng á reiðhjóli í gær. Tilkynning barst um klukkan 17 og var sjúkrabifreið send á staðinn. Drengurinn var aumur í hnjánum eftir slysið en fór af vettvangi með móður sinni.

Gekk um með boga og örvar á Selfossi í nótt
Maður sem var á gangi um Selfoss með boga og örvar var handtekinn í nótt. Tilkynning barst til lögreglunnar á fimmta tímanum um mann vopnaða boga og örvum á gangi við Tryggvatorg á Selfossi.

Síbrotamaður sem rauf einangrun áfram í varðhaldi
Landsréttur hefur staðfest úrskurð Héraðsdóms Reykjavíkur þess efnis að karlmaður rauf einangrun vegna Covid-19 og sýndi starfsmönnum farsóttarhúss mikinn skapofsa og hrækti í andlit starfsmanns sitji áfram í gæsluvarðhaldi. Alls er lögregla með sautján mál tengd manninum til rannsóknar.

Siggi hakkari í gæsluvarðhaldi grunaður um umfangsmikil fjársvik
Einn sætir gæsluvarðhaldi og fjórtán til viðbótar eru með réttarstöðu sakbornings í tengslum við umfangsmikla rannsókn lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu á fjársvikum, peningaþvætti og skjalafalsi. Tugir milljóna eru undir í málinu að sögn aðstoðaryfirlögregluþjóns hjá miðlægri rannsóknardeild lögreglu.

Engin merki um skotsár á dauðu hrossunum í Landeyjum
Ekki voru nein merki um skot eða skotsár á tveimur dauðum hrossum sem fundust í beitarhaga í Landeyjum í gær.

Nítján leitað til neyðarmóttöku kynferðisofbeldis vegna hópnauðgana
Nítján hafa leitað til neyðarmóttöku fyrir þolendur kynferðisofbeldis vegna hópnauðgana það sem af er ári. Árið 2020 leituðu þrettán einstaklingar til móttökunnar og sex árið 2019.

Ók á móti umferð og endaði á lögreglubifreið
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu handtók unga konu rétt eftir miðnætti í nótt sem grunuð er um umferðaóhapp og að aka rafhlaupahjóli undir áhrifum áfengis eða fíkniefna.

Freistaði þess að stela 10 kg af smjöri
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu handtók þrjá í gærkvöldi og nótt vegna þjófnaða en um var að ræða þrjú ótengd atvik.

Sex ákærð fyrir stórfellt fíkniefnalagabrot og peningaþvætti
Héraðssaksóknari hefur ákært nokkra einstaklinga fyrir stórfellt fíkniefnalagabrot og peningaþvætti í tengslum við ræktun á fíkniefnum í iðnaðarbili í Kópavogi. Hjón og sonur þeirra eru á meðal þess eru ákærð í málinu.

Féll tvo metra í Raufarhólshelli og missti meðvitund
Leiðsögumaður sem var á ferð með hópi ferðamanna í Raufarhólshelli missti meðvitund eftir að hafa fallið niður af palli í hellinum síðasta föstudag.

Grunar að gæsaskytta hafi drepið tvö ung hross með riffli
Hrossaræktandi, sem fann tvö ung hross dauð í túni sínu á dögunum, telur ljóst að þau hafi verið skotin af gæsaskyttu sem var við veiði í nágrenninu vopnaður riffli. Mikið tjón hafi hlotist af dauða hrossanna og hyggst hann tilkynna málið til lögreglu.

Lögregla tjáir sig ekkert um rannsókn málsins
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu mun ekkert tjá sig um rannsókn sína á kærumáli sem snerta tvo knattspyrnumenn. Meint brot átti sér stað árið 2010 en brotaþoli í málinu lagði fram kæru í málinu á dögunum.

Viðbúnaður um helgina vegna bilunar í hreyfli breskrar herflugvélar
Gult óvissustig var sett í gang á Keflavíkurflugvelli um helgina þegar bresk herflugvél sendi neyðarboð vegna bilunar í hreyfli.

Kveikt í bifreið í Háagerði í nótt
Nokkur viðbúnaður var í Háagerði í Reykjavík í nótt vegna bílbruna. Tilkynning um eldinn barst rétt fyrir klukkan 2 en talið er að kveikt hafi verið í bifreiðinni. Var hún flutt af vettvangi þegar búið var að slökkva eldinn og er málið í rannsókn.

Réðust á mann vopnaðir öxi og kúbeini
Lögregla handtók þrjá vegna alvarlegrar líkamsárásar í Reykjavík aðfaranótt laugardags. Mennirnir voru vopnaðir bæði kúbeini og öxi en að sögn Þóru Jónasdóttur, aðstoðaryfirlögregluþjóns á höfuðborgarsvæðinu, er ekki ljóst hvort báðum vopnum hafi verið beitt í árásinni.

Refir falli undir skilgreiningu um gæludýr
Lögmaður ungs manns sem á ref telur afar skrýtið hvernig Matvælastofnun hefur beitt sér í því að ná refnum af honum. Hann segir að ekki sé hægt að útiloka að refir geti skilgreinst sem gæludýr ef þeir alast upp á heimili manna.

Lögregla rannsakar sprengingu á Vesturlandi
Lögreglan á Vesturlandi er með til rannsóknar mögulegt brot á verklagsreglum um framkvæmdir við efnistöku vegna væntanlegrar vegagerðar í Skorradal.

Sautján ára ökumaður náðist ekki á hraðamæli og slapp með tiltal
Um klukkan hálf tvö í nótt stöðvaði lögreglan á höfuðborgarsvæðinu ungan ökumann á Hafnarfjarðarvegi í Garðabæ, vegna gruns um of hraðan akstur. Þetta kemur fram í dagbók lögreglunnar.

Grunaður um að hafa ekið á tvo bíla undir áhrifum
Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu barst tilkynning um umferðaróhapp í Hlíðahverfi á tíunda tímanum í gærkvöldi að því er fram kemur í dagbók hennar. Meintur tjónvaldur var handtekinn á vettvangi grunaður um akstur undir áhrifum áfengis og fíkniefna.

Telur að skotið hafi verið á dráttarvél: „Hefndargjörningur vegna ágreinings“
Virgill Scheving Einarsson á þrjár jarðir á Vatnleysuströnd og býr á Efri-Brunnastöðum I. Hann vaknaði við mikinn hávaða í nótt og sá í kjölfarið bíl keyra af lóðinni. Dráttarvél Virgils hafði verið skemmd og telur hann að skotið hafi verið á dráttarvélina.