Meistaradeild Evrópu rúllar af stað á ný | stórleikir á dagskrá í kvöld Riðlakeppni Meistaradeildar Evrópu hefst í kvöld og eru margir áhugaverðir leikir á dagskrá. Keppni í A, B, C og D-riðli hefst í kvöld og verða þrír leikir í beinni útsendingu á Stöð 2 sport. Ítarleg umfjöllun um leiki kvöldsins hefst kl. 18. þar sem að Þorsteinn J. mun fara yfir málin með sérfræðingum þáttarins – Reyni Leóssyni og Heimi Guðjónssyni. Og þeir munu einnig fara yfir allt það markverðasta úr leikjum kvöldsins í Meistaramörkunum sem hefjast kl. 20.45. Fótbolti 18. september 2012 10:00
Mancini: Við viljum vinna alla leiki Tímabilið í Meistaradeild Evrópu hefst í kvöld með átta leikjum. Augu flestra munu beinast að Santiago Bernabéu í Madríd þar sem heimamenn í Real Madrid taka á móti Englandsmeisturum Man. City. Fótbolti 18. september 2012 07:00
Fyrrum forseti Real Madrid: Orð Mourinho hjálpa ekki liðinu Ramon Calderon, fyrrum forseti Real Madrid, hefur gagnrýnt ummæli þjálfarans Jose Mourinho eftir 1-0 tapið á móti Sevilla í spænsku úrvalsdeildinni um helgina. Real Madrid hefur aðeins náð í fjögur stig í fyrstu fjórum umferðunum og þegar orðið átta stigum á eftir Barcelona. Fótbolti 17. september 2012 19:45
Mancini: Við leikum til sigurs í Madrid Roberto Mancini, stjóri Manchester City, ætlar að leika til sigurs á Santiago Bernabeu á morgun en það er óhætt að Meistaradeildin byrji með risaleik þegar Spánarmeistarar Real Madrid taka á móti Englandsmeisturum Manchester City á morgun. Fótbolti 17. september 2012 18:15
Kolarov er klár í að taka á Ronaldo Serbneski varnarmaðurinn Aleksandar Kolarov hjá Man. City bíður spenntur eftir leiknum gegn Man. City á þriðjudag. Hann er sérstaklega spenntur fyrir því að glíma við Cristiano Ronaldo. Fótbolti 13. september 2012 17:15
Zlatan: PSG getur unnið Meistaradeildina Sjálfstraustið er í botni hjá Svíanum Zlatan Ibrahimovic eins og venjulega. Hann segir að það sé aðeins tímaspursmál hvenær hans nýja félag, PSG, verði orðið eitt besta liðið í Meistaradeildinni. Fótbolti 13. september 2012 13:30
Aguero: City getur vel unnið Real Madrid Argentínumaðurinn Sergio Aguero óttast það ekki að mæta Real Madrid í Meistaradeildinni og segir að Man. City sé með nógu gott lið til þess að vinna spænsku meistarana. Fótbolti 12. september 2012 15:00
Essien: Kallar Mourinho pabba Chelsea hefur lánað Michael Essien til Real Madrid og Essien hittir þar fyrir Jose Mourinho sem keypti hann einmitt til Chelsea fyrir sjö árum síðan. Essien fagnar því að spila aftur fyrir Mourinho sem hann lítur á sem föður. Fótbolti 1. september 2012 22:30
Iniesta valinn besti knattspyrnumaðurinn í Evrópu 2012 Spánverjinn Andrés Iniesta var valinn besti knattspyrnumaður Evrópu 2012 af 53 blaðamönnum frá öllum löndum innan UEFA. Valið fór fram í beinni í Mónakó í kvöld í kjölfarið á drættinum fyrir riðlakeppni Meistaradeildarinnar. Fótbolti 30. ágúst 2012 17:04
D er Dauðariðillinn | Real og Man. City mætast Í dag var dregið í riðlakeppni Meistaradeildar Evrópu. Dauðariðillinn er að sjálfsögðu D-riðillinn. Þar mætast meðal annars Real Madrid og Manchester City. Lið Kolbeins Sigþórssonar, Ajax, er einnig í riðlinum sem og Þýskalandsmeistarar Dortmund. Fótbolti 30. ágúst 2012 16:41
Meistarar Englands, Spánar, Ítalíu og Þýskalands gætu lent saman í riðli Það verður dregið í riðla í Meistaradeildinni í dag og eins og áður er mikil spenna í loftinu enda geta mörg stórlið lent saman í riðla. UEFA er búið að skipta liðunum 32 niður í fjóra styrkleikaflokka og þar vekur athygli að Porto er í efsta flokki frekar en ensku meistararnir í Manchester City. Fótbolti 30. ágúst 2012 09:15
Celtic í Meistaradeildina | Úrslit kvöldsins Skoska liðinu Celtic tókst í kvöld að tryggja sér sæti í riðlakeppni Meistaradeildar Evrópu í fyrsta sinn í fjögur ár. Fótbolti 29. ágúst 2012 20:52
FCK úr leik | Enginn Íslendingur í Meistaradeildinni FC Kaupmannahöfn tókst ekki að tryggja sér sæti í riðlakeppni Meistaradeildar Evrópu en liðið tapaði í kvöld fyrir Lille, 2-0, í framlengdum leik. Fótbolti 29. ágúst 2012 18:38
Ótrúlegt klúður kostaði Udinese Meistaradeildarsæti Ítalska félagið Udinese varð af sæti í riðlakeppni Meistaradeildar Evrópu eftir að hafa tapað fyrir Braga frá Portúgal í vítaspyrnukeppni í kvöld. Fótbolti 28. ágúst 2012 21:39
Malaga í Meistaradeildina í fyrsta sinn Það verða fjögur spænsk lið í riðlakeppni Meistaradeildar Evrópu þar sem að Malaga tryggði sér í kvöld áfram úr forkeppninni með markalausu jafntefli gegn Panathinaikos í Grikklandi. Fótbolti 28. ágúst 2012 20:46
Úrslit og markaskorarar kvöldsins í Meistaradeildinni Fimm leikir fóru fram í forkeppni Meistaradeildarinnar í kvöld og eru lið BATE Borisov frá Hvíta-Rússlandi og Málaga frá Spáni í bestum málunum eftir 2-0 sigra á heimavelli. Anderlecht og Maribor töpuðu bæði en skoruðu dýrmætt mark á útivelli og ítalska liðið Udinese náði 1-1 jafntefli við Braga í Portúgal. Fótbolti 22. ágúst 2012 20:49
Ragnar í liðinu í sigri á Lille Ragnar Sigurðsson lék allan leikinn fyrir FC Kaupmannahöfn sem sigraði Lille 1-0 í fyrri leik liðanna í forkeppni Meistaradeildar Evrópu. Kaupmannahöfn stendur því vel að vígi fyrir seinni leikinn í Frakklandi en liðið sem sigrar í leikjunum tveimur kemst í riðlakeppni Meistaradeildarinnar. Fótbolti 21. ágúst 2012 20:46
Mourinho leggur til nýtt viðurnefni á sjálfan sig Jose Mourinho, knattspyrnustjóri Real Madrid, segir að viðurnefnið "Hinn eini" sé meira við hæfi en "Hinn einstaki" þar sem hann hefur stýrt félagi til sigurs í þremur sterkustu deildum í Evrópu. Fótbolti 14. ágúst 2012 09:15
John Terry sleppur við bann í Meistaradeildinni John Terry, fyrirliði Chelsea, getur spilað með Chelsea í fyrsta leik liðsins í riðlakeppni Meistaradeildarinnar. Knattspyrnusamband Evrópu hefur tekið áfrýjun bannsins til greina og minnkað bannið í tvo leiki. Enski boltinn 13. ágúst 2012 16:00
Alfreð lagði upp öll þrjú mörkin í stórsigri Helsingborg Alfreð Finnbogason og félagar í sænska liðinu Helsingborg komust í kvöld áfram í forkeppni Meistaradeildarinnar eftir 3-1 heimasigur á pólska liðinu Slask Wroclaw. Helsingborg vann fyrri leikinn 3-0 og þar með 6-1 samanlagt. Fótbolti 8. ágúst 2012 17:57
Sky Sports: Juventus vill fá bæði Luis Suarez og Robin van Persie Sky Sports hefur heimildir fyrir því að ítölsku meistararnir í Juventus séu með það sem markmið að stilla upp framherjaparinu Luis Suarez og Robin van Persie. Það hefur gengið á ýmsu hjá Suarez í Liverpool og fátt kemur í veg fyrir að Robin van Persie yfirgefi Arsenal. Fótbolti 7. ágúst 2012 13:45
Alfreð skoraði og lagði upp tvö í Meistaradeildinni | Myndband Alfreð Finnbogason og félagar í Helsingborg unnu 3-0 sigur á pólsku meisturunum Śląsk Wrocław í fyrri viðureign liðanna í 3. umferð forkeppni Meistaradeildar Evrópu í knattspyrnu en leikið var í Póllandi. Alfreð skoraði og lagði upp hin mörk sænska liðsins. Fótbolti 1. ágúst 2012 20:24
Robben og Ribery orðnir vinir á ný Arjen Robben og Franck Ribery leika á sitthvorum vængnum hjá þýska stórliðinu Bayern München og eru báðir taldir vera í hópi bestu fótboltamanna heims. Það hafði því mikil áhrif á liðið þegar allt fór upp í háaloft á milli þeirra í hálfleik á undanúrslitaleik Meistaradeildarinnar síðasta vor. Fótbolti 27. júlí 2012 16:45
Alfeð og félagar áfram í forkeppni Meistaradeildar Alfreð Finnbogason lét til sín taka í 3-0 sigri sænsku meistaranna í Helsingborg á TNS frá Wales í síðari viðureign liðanna í 3. umferð forkeppni Meistaradeildar Evrópu en leikið var í Svíþjóð. Fótbolti 25. júlí 2012 19:20
KR-ingar töpuðu aftur á móti finnsku meisturunum - myndir Íslandsmeistarar KR eru úr leik í forkeppni Meistaradeildarinnar eftir 1-2 tap á móti HJK Helsinki í seinni leik liðanna á KR-vellinum í kvöld. KR-ingar áttu ekki mikla möguleika eftir 0-7 tap í fyrri leiknum í Finnlandi. Íslenski boltinn 24. júlí 2012 22:00
Manchester United og Barcelona mætast í ágúst Manchester United og Barcelona hafa samið um að mætast í æfingaleik í Gautaborg 8. ágúst næstkomandi en þetta verður annað sumarið í röð þar sem þessi stórlið mætast á undirbúningstímabilinu. Fótbolti 28. júní 2012 17:30
Þorvaldur dæmir í Meistaradeild UEFA Þorvaldur Árnason mun dæma seinni leik SP Tre Penne frá San Marínó og F91 Dudelange frá Luxemborg en leikurinn er í fyrstu umferð undankeppni Meistaradeildar UEFA. Þetta kemur fram á heimasíðu KSÍ. Fótbolti 28. júní 2012 13:00
KR mætir HJK Helsinki í Meistaradeildinni Íslands- og bikarmeistarar KR drógust á móti finnska liðinu HJK Helsinki í annarri umferð Meistardeildarinnar en dregið var í dag. KR átti einnig möguleika á því að lenda á móti liðum frá Sviss, Austurríki, Svíþjóð, Lettlandi eða Litháen. Þetta kemur fram á ksi.is Íslenski boltinn 25. júní 2012 10:47
Dregið í Meistaradeild og Evrópudeild UEFA í dag Í dag verður dregið í Meistaradeild UEFA sem og Evrópudeild UEFA en fjögur íslensk félög eru í þessum keppnum. Íslandsmeistarar KR eru í potinnum í Meistaradeildinni en FH, ÍBV og Þór Akureyri eru í pottinum í Evrópudeildinni. Fótbolti 25. júní 2012 09:45
Messi skoraði 82 mörk fyrir Barcelona og Argentínu á tímabilinu Lionel Messi skoraði þrennu í 4-3 sigri á Brasilíu í vináttulandsleik í New Jersey í gærkvöldi og hefur þar með skorað 82 mörk fyrir Barcelona og Argentínu á þessu tímabili. Þetta var lokaleikur kappans á tímabilinu 2011-12 og það verður ansi erfitt fyrir einhvern leikmann, þar á meðal hann sjálfan, að bæta þessa tölfræði í framtíðini. Fótbolti 10. júní 2012 08:00