

Sviðslistir, bókmenntir, sagnfræði, tónlist, myndlist og aðrar listasýningar.
Borgarráð samþykkti í dag að útnefna Björk Guðmundsdóttur sem heiðursborgara Reykjavíkurborgar. Björk er sjöundi Reykvíkingurinn sem hlýtur þennan heiður og mun myndlistarkonan Gabríela Friðriksdóttir gera Bjarkar- styttu.
Útkall eru nýir þættir sem verða frumsýndir á Vísi klukkan sjö á sunnudagsmorgun. Þátturinn verður sýndur á sjónvarpsstöðinni Stöð 2 Vísi klukkan 20:00 um kvöldið.
Íslenski sálfræðilegi tryllirinn Natatorium verður frumsýnd hér á landi föstudaginn 23. febrúar næstkomandi. Myndin er í leikstjórn Helenu Stefánsdóttur.
Fyrsta úrslitakvöld Idol keppninar fer fram annað kvöld í Idol-höllinni að Fossaleyni. Þema kvöldins er íslensk lög.
„Ég held að ég hafi verið tveggja ára þegar ég mætti í fyrsta danstímann. Mamma var með dansskóla svo ég var með í öllum tímum sem hún kenndi,“ segir Snædís Lilja Ingadóttir. Hún er danshöfundur verksins Árstíðirnar ásamt Valgerði Rúnarsdóttur en Íslenski dansflokkurinn frumsýnir verkið næstkomandi laugardag og er tilhlökkunin í hópnum orðin mikil.
„Mér gengur yfirleitt best ef ég er ekki fyrir sjálfum mér,“ segir listamaðurinn Steingrímur Gauti Ingólfsson sem opnar sýningu í galleríi í París á föstudaginn.
Bandaríski leikarinn Adan Canto, sem þekktastur er fyrir hlutverk sín í þáttunum The Cleaning Lady og Designated Survivor, er látinn. Hann varð 42 ára.
Framleiðslurisinn Disney tilkynnti í dag að bíómynd um sögupersónurnar Mandalorian og Grogu, sem finna má í sjónvarpsþáttunum The Mandalorian sem gerast í Star Wars-heiminum, sé nú í bígerð.
Ljóðaslamm 2024 verður haldið í Borgarbókasafninu Grófinni á Safnanótt þann 2. febrúar næstkomandi. Slammið er opið öllum sem eru 16 ára og eldri.
Í skammdegi, roki, veðurviðvörunum og öðru slíku er freistandi að enda daginn á að leggjast upp í sófa og kveikja á góðu sjónvarpsefni. Spurningin sem þvælist fyrir hvað flestum er þá: „Hvað eigum við að horfa á?“ og getur ákvörðunin verið furðu erfið.
Írska stórsöngkonan Sinéad O’Connor lést af náttúrulegum orsökum, að því er krufning hefur leitt í ljós.
XXX Rottweilerhundar blása til risatónleika í Laugardalshöll föstudaginn 17. maí. Um er að ræða 25 ára afmælistónleika sveitarinnar.
Ingibjörg Gréta Gísladóttir hefur verið verið ráðin í starf framkvæmdastjóra Íslensku kvikmynda- og sjónvarpsakademíunnar. Hún hefur þegar hafið störf.
Golden Globe-verðlaunahátíðin fór fram í Kalíforníu í gær og var það stórmyndin Oppenheimer sem hreppti flest verðlaun að þessu sinni, fimm talsins. Myndin hlaut meðal annars verðlaun sem besta dramamyndin, besta leikara í aðalhlutverki og besta leikara í aukahlutverki, en þer er um að ræða þá Cillian Murphy og Robert Downey Jr.
Nýtt ár er gengið í garð og með nýju ári koma hinar ýmsu tískubylgjur fram á margvíslegum sviðum. Lífið á Vísi fékk til sín fjölbreyttan hóp álitsgjafa úr ólíkum áttum til að spá fyrir um heitustu trendin fyrir 2024.
Árlegir nýárstónleikar Stórsveitar Reykjavíkur eru á dagskrá í Hörpu í kvöld. Tónleikarnir verða helgaðir swingtímabilinu og sveitin fær til sín góða gesti.
Íslendingurinn Sigurjón Friðrik Garðarsson hlaut Emmy-verðlaun ásamt félögum sínum í Stormborn Studios fyrir tæknibrellur í sjónvarpsþáttaröðinni Five Days at Memorial sem var framleidd af Apple TV.
Saltburn er nýjasta kvikmynd Emerald Fennell, leikstýru einnar eftirtektarverðustu kvikmyndar ársins 2022, A Promising Young Woman. Það er Amazon-streymisveitan Prime sem frumsýndi hana rétt fyrir jól.
Þær Jodie Foster, Kali Reis og Issa Lopez segjast sakna Íslands. Þær vörðu nokkrum mánuðum hér á landi á undanförnum árum við tökur á fjórðu þáttaröð True Detective. Foster og Reis eru í aðalhlutverkum en Lopez leikstýrði þáttaröðinni, sem ber nafnið Night Country.
Mikael Torfason rithöfundur er fluttur með fjölskyldu sína til Bandaríkjanna, Los Angeles nánar tiltekið. Mikael gerir ekkert með hálfum huga og hann er eiginlega orðinn meiri Kani en Kanarnir sjálfir.
Þorleifur Örn Arnarsson, leikstjóri og Erna Mist Yamagata, myndlistarkona og pistlahöfundur, eru nýtt par.
Saga Lukes Littler, undrabarnsins sem varð í 2. sæti á heimsmeistaramótinu í pílukasti, gæti ratað á hvíta tjaldið áður en langt um líður.
Þórdís Erla Zoëga bar sigur úr býtum í samkeppni um listaverk við nýjan Landspítala. Samhljóma niðurstaða dómnefndar var að verk hennar, Upphaf, bæri fyrir sér næmi fyrir rýminu og starfsemi spítalans.
Þá liggur það fyrir og kemur ekki á óvart; söluhæsta bók síðasta árs var Sæluríki Arnaldar Indriðasonar. Á hæla hans fylgja þau Yrsa Sigurðardóttir með Frýs í æðum blóð og Snjór í paradís eftir Ólaf Jóhann Ólafsson.
Guðmundur Hreiðarsson Viborg og Félögin L Events ehf. og Lifandi Viðburðir ehf. þurfa að greiða þungarokkshljómsveitinni Slayer eftirstöðvar þóknunar sem sveitin var snuðuð um eftir að hún tróð upp á tónlistarhátíðinni Secret Solstice sumarið 2018.
Hrollvekjan The Piper verður frumsýnd í Smárabíó föstudaginn 19. janúar næstkomandi. Myndin er í leikstjórn Erlings Óttars Thoroddsen sem gerði meðal annars spennutryllinn Kulda sem kom út fyrir nokkrum misserum.
Sigrún María Óskarsdóttir segir að Sambíóin á Akureyri verði að „girða sig í brók“ og koma stigalyftunni í bíóhúsinu í lag. Sigrún María er í hjólastól og fór í bíó með bróður sínum á milli jóla og nýárs en þurfti að láta bera sig upp stigann því lyftan var biluð. Stiginn er um 25 til 30 þrep og í boga.
Leikkonan Glynis Johns er látinn hundrað ára að aldri. Leikkonan var hvað þekktust fyrir hlutverk sitt sem frú Banks í kvikmyndinni Mary Poppins. Myndin er frá árinu 1964. Í myndinni söng Johns lagið Sister Sufragette og lék móðir barnanna sem Mary Poppins passaði.
Réttarhöldum yfir manninum sem réðist á rithöfundinn Salman Rushdie í ágúst 2022 hefur verið frestar vegna útgáfu nýrrar bókar Rushdie um árásina og eftirmála hennar.
Listamaðurinn Ragnar Kjartansson þarf að greiða virðisaukaskatt af hundrað salt- og piparstaukum úr postulíni sem hann flutti inn. Tollstjóri taldi ekki rétt að flokka staukana sem listaverk. Ragnar lagði þó tollstjóra í deilu um hvort miða ætti við framleiðslu- eða söluverð staukanna.