Breyttir tímar hjá Cleveland sem tapaði sínum 21. leik í röð LeBron James mætti gamla liði sínu Cleveland Cavaliers í gær í NBA deildinni á heimavelli Miami Heat. James skoraði 24 stig í 117-90 sigri liðsins en Dwayne Wade var stigahæstur með 34 stig. Cleveland tapaði sínum 21. leik í röð en liðið hefur aðeins unnið 8 leiki og tapað 39. Körfubolti 1. febrúar 2011 08:57
Durant segir að Bosh sé ekki alvöru „nagli“ Kevin Durant stigahæsti leikmaður NBA deildarinnar er ekki þekktur fyrir að missa stjórn á skapi sínu en hann lenti í orðaskaki við Chris Bosh miðherja Miami Heat í gær þegar liðin áttust við. Durant og Bosh fengu báðir tæknivillu í kjölfarið en Durant skaut föstum skotum á Bosh í viðtölum eftir leikinn – sem telst vera fréttaefni því Durant hefur aldrei sagt slíkt áður. Körfubolti 31. janúar 2011 23:30
Larry Bird missti þolinmæðina og rak Jim O'Brien Larry Bird forseti NBA liðsins Indiana Pacers missti þolinmæðina gagnvart þjálfaranum Jim O'Brien í gær og Frank Vogel aðstoðarþjálfari liðsins mun stýra liðinu út leiktíðina. Körfubolti 31. janúar 2011 14:45
Boston sýndi styrk sinn gegn meistaraliði Lakers Fjölmargir spennandi leikir fóru fram í NBA deildinni í körfubolta í gær þar sem að viðureign gömlu stórveldana, Boston Celtics og LA Lakers bar hæst. Meistaraliðið Lakers varð að játa sig sigrað á heimavelli í Los Angeles, 109-96, þrátt fyrir að Kobe Bryant hafi skorað 41 stig. Körfubolti 31. janúar 2011 09:00
Annað tap TCU í röð TCU tapaði sínum öðrum leik í röð í bandaríska háskólaboltanum í nótt, í þetta sinn fyrir Air Force-skólanum, 60-55. Körfubolti 30. janúar 2011 13:00
San Antonio fyrst í 40 sigurleiki San Antonio Spurs komst fyrst liða í NBA-deildinni í 40 sigurleiki á tímabilinu er liðið hafði betur gegn Houston, 108-95. Körfubolti 30. janúar 2011 11:00
NBA í nótt: Washington enn án sigurs á útivelli Oklahoma City vann í nótt sigur á Washington í tvíframlengdum leik í NBA-deildinni í körfubolta, 124-117. Körfubolti 29. janúar 2011 11:12
NBA í nótt: New York vann Miami New York vann í nótt góðan sigur á Miami í NBA-deildinni í körfubolta, 93-88, þrátt fyrir að hafa verið níu stigum undir í upphafi fjórða leikhluta. Körfubolti 28. janúar 2011 09:00
Óvænt tap hjá TCU Helena Sverrisdóttir og félagar hennar í háskólaliði TCU töpuðu í gær sínum fyrsta leik í deildakepninni á tímabilinu. Körfubolti 27. janúar 2011 14:45
NBA í nótt: Durant skoraði 47 stig Kevin Durant átti ótrúlegan leik þegar að Oklahoma City vann nauman sigur á Minnesota, 118-117, í framlengdum leik í NBA-deildinni í nótt. Körfubolti 27. janúar 2011 09:00
Peja Stojakovic samdi við Dallas Mavericks Dallas samdi í gær við Peja Stojakovic sem er þaulreyndur skotbakvörður en hann á fylla það skarð sem Caron Butler skilur eftir – en Butler er úr leik vegna meiðsla út tímabilið. Stojakovic, sem er Serbi, hefur komið víða við á ferlinum og skorað um 17 stig að meðaltali í NBA deildinni í körfubolta. Körfubolti 26. janúar 2011 14:15
NBA í nótt: Enn tapar Cleveland Cleveland tapaði í nótt sínum átjánda leik í röð í NBA-deildinni í körfubolta - í þetta sinn fyrir Boston, 112-95. Körfubolti 26. janúar 2011 09:00
NBA í nótt: New Orleans á sigurbraut New Orleans vann í nótt sinn níunda sigur í röð í NBA-deildinni í körfubolta er liðið vann Oklahoma City, 91-89. Körfubolti 25. janúar 2011 09:12
NBA í nótt: Anthony með stórleik í sigri Denver Aðeins einn leikur fór fram í NBA-deildinni í körfubolta í nótt en í honum vann Denver góðan sigur á Indiana, 121-107. Körfubolti 24. janúar 2011 09:00
NBA: New Orleans endaði átta leikja sigurgöngu San Antonio New Orleans Hornets vann sinn áttunda leik í röð í NBA-deildinni í körfubolta í nótt og endaði um leið átta leikja sigurgöngu San Antonio Spurs, liðsins með besta árangurinn í deildinni. Kevin Durant tryggði Oklahoma City sigur á New York með flautukörfu, Washington vann Boston, Dirk Nowitzki tryggði Dallas sigur á New Jersey sex sekúndum fyrir leikslok og 38 stig frá LeBron James hjálpuðu Miami að enda fjögurra leikja taphrinu. Körfubolti 23. janúar 2011 11:00
NBA: Átta sigrar í röð hjá San Antonio Spurs San Antonio Spurs er með besta árangurinn í NBA-deildinni í körfubolta og ætlar ekkert að gefa eftir. Liðið vann sinn áttunda sigur í röð í nótt og hefur aðeins tapað 6 af 43 leikjum sínum á tímabilinu. New Orleans Hornets vann sinn sjöunda leik í röð í nótt og bæði Boston Celtics og Los Angeles Lakers unnu sína leiki. Körfubolti 22. janúar 2011 11:00
Chicago lagði Dallas - Rose skoraði 26 stig Þrír leikir fóru fram í NBA deildinni í nótt þa sem að sigur Chicago Bulls gegn Dallas bar hæst. Lokatölur 82-77. Derrick Rose skoraði 26 stig fyrir Bulls og hann gaf að auki 9 stoðsendingar. Þjóðverjinn Dirk Nowitzki skoraði 19 fyrir Dallas. Carlos Boozer lék ekki með Bulls þriðja leikinn í röð vegna meiðsla á ökkla. Körfubolti 21. janúar 2011 09:30
Lakers tapaði gegn Dallas – Shaq aðalmaðurinn í sigri Boston Meistaralið LA Lakers tapaði gegn Dallas útivelli í NBA deildinni í körfubolta í gær en 13 leikir voru á dagskrá. Dallas hafði tapað sex leikjum í röð fyrir leikinn en Jason Kidd sýndi gamla takta hjá Dallas og skoraði 21 stig og gaf 10 stoðsendingar. Lakers hefur tapað tveimur af síðustu þremur leikjum sínum og skoraði Spánverjinn Pau Gasol 23 stig fyrir Lakers. Kobe Bryant skoraði 20 stig og tók 10 fráköst. Körfubolti 20. janúar 2011 09:30
NBA: Fjórði tapleikur Miami Heat í röð Miami Heat tapaði á heimavelli gegn Atlanta Hawks á heimavelli í NBA deildinni í körfubolta í gær, 93-89 og var þetta fjórði tapleikurinn hjá Miami í röð. Úrslitin réðust í framlengingu. Körfubolti 19. janúar 2011 09:00
NBA: Lakers vann Oklahoma og Boston sigraði Orlando Þrettán leikir fóru fram í NBA deildinni í gær. Meistaralið LA Lakers sigraði Oklahoma 101-94 en margir búast við því að Oklahoma geti blandað sér í baráttuna um efstu sætin í vesturdeildinni í vor. Körfubolti 18. janúar 2011 09:02
NBA: Clippers vann grannaslaginn gegn Lakers - fjórir sendir í "sturtu" Það var óvenju lítið um að vera í NBA deildinni í körfubolta í gær en grannaslagur LA Clippers og LA Lakers stóð upp úr. Clippers, sem ávallt hefur verið litla liðið í LA, batt enda á sjö leikja sigurhrinu meistaraliðs LA Lakers með 99-92 sigri í Staple Center. Körfubolti 17. janúar 2011 10:00
NBA: Bulls vann LeBron-laust Miami Chicago Bulls vann góðan þriggja stiga sigur á Miami Heat í NBA-deildinni í nótt. Bulls batt þar með endi á sjö leikja sigurhrinu Miami. Körfubolti 16. janúar 2011 11:00
NBA: San Antonio vann stórleikinn San Antonio Spurs vann tólf stiga sigur á nágrönnum sínum í Dallas Mavericks í NBA-deildinni í nótt. Þetta var fimmti sigur Spurs í röð. Körfubolti 15. janúar 2011 12:45
NBA í nótt: Annað tap Miami í röð Miami Heat tapaði sínum öðrum leik í NBA-deildinni í körfubolta í röð en í nótt mátti liðið sætta sig við tap fyrir Denver Nuggets, 130-102. Körfubolti 14. janúar 2011 09:01
Andrei Kirilenko orðinn bandarískur ríkisborgari Andrei Kirilenko, leikmaður Utah Jazz í NBA-deildinni í körfubola, fékk í gær bandarískt ríkisfang ásamt konu sinni Mashu en tveir synir þeirra, Theodore og Stepan, sem fæddust í Bandaríkjunum, eru einnig orðnir bandarískir ríkisborgarar. Körfubolti 13. janúar 2011 16:15
Sigurganga Miami á útivelli á enda LA Clippers vann í nótt góðan sigur á Miami í NBA-deildinni í körfubolta, 111-105. Miami hafði unnið síðustu þrettán leiki sína á útivelli. Körfubolti 13. janúar 2011 09:16
NBA í nótt: Lakers niðurlægði Cleveland LA Lakers vann í nótt stórsigur á Cleveland í NBA-deildinni í körfubolta, 112-57. Var þetta þriðji stærsti sigur liðsins frá upphafi. Körfubolti 12. janúar 2011 09:00
NBA: Boston tapaði gegn Houston Það var róleg nótt í NBA-deildinni enda fóru aðeins þrír leikir fram. Boston mátti þá þola tap á heimavelli gegn Houston en það kom nokkuð á óvart. Körfubolti 11. janúar 2011 09:03
Lakers og Miami á sigurbraut Sjö leikir fóru fram í NBA-deildinni í nótt og var lítið um óvænt úrslit. Lakers, Miami, San Antonio og Phoenix unnu öll sigra í sínum leikjum. Körfubolti 10. janúar 2011 09:01
NBA í nótt: Tólfti útisigur Miami í röð Miami er enn á mikilli sigurbraut í NBA-deildinni í körfubolta og vann í nótt sinn tólfta sigur í röð í deildinni. Körfubolti 8. janúar 2011 11:02