Orri Freyr fylgir Óskari Bjarna til Viborg Orri Freyr Gíslason, línumaður Vals í N1 deild karla í handbolta, hefur gert tveggja ára samning við danska félagið Viborg. Orri Freyr mun því fylgja þjálfara sínum Óskari Bjarna Óskarssyni til danska félagsins en Óskar Bjarni mun þjálfa liðið á næsta tímabili. Handbolti 31. maí 2012 18:32
Gunnar Berg og Skúli þjálfa Stjörnuliðin Handknattleiksdeild Stjörnunnar tilkynnti í kvöld um ráðningu á þjálfurum meistaraflokka félagsins fyrir næsta vetur. Gunnar Berg Viktorsson mun þjálfa karlaliðið en Skúli Gunnsteinsson kvennaliðið. Handbolti 25. maí 2012 21:41
Heimir Óli búinn að semja við GUIF Haukamaðurinn Heimir Óli Heimisson er búinn að skrifa undir tveggja ára samning við sænska félagið GUIF Eskilstuna sem Kristján Andrésson þjálfar. Handbolti 23. maí 2012 22:39
Anton til Danmerkur Anton Rúnarsson hefur skrifað undir tveggja ára samning við danska úrvalsdeildarfélagið SönderjyskE. Hann kemur til liðsins frá Val. Handbolti 22. maí 2012 13:00
Jón Heiðar gengur til liðs við ÍR Handknattleiksmaðurinn Jón Heiðar Gunnarsson hefur ákveðið að ganga til liðs við ÍR og mun leika með félaginu á næsta tímabili en Breiðhyltingar hafa verið að styrkja sig mikið að undanförnu. Handbolti 20. maí 2012 19:21
Benedikt Reynir til liðs við Aftureldingu Mosfellingar hafa fengið liðsstyrk fyrir næsta tímabil í N1-deild karla en Benedikt Reynir Kristinsson hefur skrifað undir tveggja ára samning við Aftureldingu. Handbolti 17. maí 2012 16:32
Spenntur fyrir landsliðinu Aron Kristjánsson, þjálfari Hauka, segir að mest spennandi þjálfarastarf á Íslandi sé landsliðsþjálfarastarfið. Aron hefur verið sterklega orðaður við landsliðið síðustu vikur. Aron segist þó ekkert vera að hugsa um starfið. Handbolti 16. maí 2012 06:00
Gunnar Berg tekur við Stjörnunni Gunnar Berg Viktorsson mun að óbreyttu taka við þjálfun karlaliðs Stjörnunnar í handbolta. Þetta staðfesti hann í samtali við Vísi. Handbolti 15. maí 2012 17:16
Sigurbergur Sveinsson í Hauka Sigurbergur Sveinsson hefur gert tveggja ára samning við deildarmeistara Hauka. Hann lék síðast með RTV 1879 Basel í Sviss. Handbolti 14. maí 2012 18:43
Örn Ingi hættur í FH og farinn í Aftureldingu Örn Ingi Bjarkason, leikmaður í úrvalsliði N1 deildar karla í handbolta, hefur gert tveggja ára samning við Aftureldingu en þetta kemur fram á heimasíðu félagsins. Örn Ingi hefur spilað stórt hlutverk hjá FH undanfarin ár og varð Íslandsmeistari með liðinu 2011. Örn er sonur Bjarka Sigurðssonar, fyrrverandi landsliðsmanns. Handbolti 14. maí 2012 13:00
Sigurjón semur við uppeldisfélagið ÍR-ingar halda áfram að safna liði fyrir komandi átök í N1-deild karla. Þeir hafa nú samið við hægri hornamanninn Sigurjón Björnsson sem kemur frá HK. Handbolti 13. maí 2012 16:52
Ólafur Bjarki og Stella valin best í handboltanum Það var mikið um dýrðir í kvöld þegar lokahóf HSÍ fór fram. Þau Ólafur Bjarki Ragnarsson úr HK og Stella Sigurðardóttir frá Fram voru valin leikmenn ársins á hófinu. Handbolti 12. maí 2012 14:37
Tandri og Bjarki búnir að skrifa undir nýjan samning við HK Tandri Már Konráðsson og Bjarki Már Elísson, lykilmenn í Íslandsmeistaraliði HK, skrifuðu í dag undir nýjan samning við liðið sem eru góðar fréttir fyrir HK-inga sem urðu á dögunum Íslandsmeistarar í fyrsta sinn í sögu félagsins. Handbolti 11. maí 2012 21:34
Haukar framlengja við lykilmenn Bikar- og deildarmeistarar Hauka eru á fullu þessa dagana við að ganga frá sínum málum fyrir næsta vetur. Liðið fékk tvo sterka leikmenn á dögunum og hefur nú framlengt samninga við lykilmenn. Handbolti 10. maí 2012 16:00
Þorgrímur Smári semur við Val Valsmenn hafa fengið fínan liðsstyrk í handboltanum því miðjumaðurinn Þorgrímur Smári Ólafsson er genginn í raðir félagsins frá Gróttu. Handbolti 9. maí 2012 15:30
Einar Rafn í FH | Fram sýndi lítinn áhuga á að halda honum Hægri hornamaðurinn Einar Rafn Eiðsson er búinn að skrifa undir eins árs samning við FH en hann kemur til liðsins frá Fram. Handbolti 9. maí 2012 13:57
Aron Rafn hafnaði tilboði frá GUIF Erlend félög eru farin að kroppa í landsliðsmarkvörðinn Aron Rafn Eðvarðsson sem spilar með Haukum.Aron Rafn hefur verið að bæta sig mikið á síðustu árum og átti frábært tímabil með Haukum. Handbolti 9. maí 2012 06:00
Jóna Björg: Einar Andri hefur lært mikið á þessum tveimur árum með Kristjáni Jóna Björg Björgvinsdóttir, formaður Handknattleiksdeildar FH, staðfesti það við Vísir í kvöld að Kristján Arason verði ekki áfram þjálfari karlaliðs FH sem og það að Einar Andri Einarsson verði áfram með liðið. Handbolti 8. maí 2012 18:42
Kristján Arason hættur með FH Kristján Arason verður ekki áfram þjálfari karlaliðs FH í handbolta en hann tilkynnti leikmönnum FH þetta í kvöld samkvæmt heimildum íþróttadeildar. Kristján hefur þjálfað FH-liðið ásamt Einari Andra Einarsson undanfarin tvö tímabil Handbolti 8. maí 2012 18:22
Guðlaugur leggur skóna á hilluna Húsavíkurfjallið í vörn Akureyrar undanfarin ár, Guðlaugur Arnarsson, hefur lagt skóna á hilluna en lappirnar á honum þola ekki mikið meira álag. Handbolti 8. maí 2012 11:12
Elías Már og Jón Þorbjörn í Hauka Deildar- og bikarmeistarar Hauka fengu góðan liðsstyrk í dag þegar Elías Már Halldórsson og Jón Þorbjörn Jóhannsson gengu til liðs við félagið. Handbolti 7. maí 2012 12:46
Myndasyrpa af fögnuði HK-inga HK varð í gær Íslandsmeistari karla í handbolta í fyrsta sinn í sögu félagsins. Liðið sópaði meistaraliði síðasta árs, FH, 3-0 í lokaúrslitunum. Handbolti 7. maí 2012 06:00
Umfjöllun og viðtöl: FH - HK 26-28 | HK Íslandsmeistari í fyrsta sinn HK tryggði sér Íslandsmeistaratitilinn í handbolta karla í fyrsta sinn með því að leggja FH að velli, 28-26, í þriðja leik liðanna í úrslitum Íslandsmótsins. FH byrjaði leikinn betur en um miðbik fyrri hálfleiks komst HK yfir og hélt forystunni út leikinn og vann að lokum verðskuldað. Handbolti 6. maí 2012 00:01
Markverðir HK hafa varið fleiri skot í öllum leikjunum HK-ingar eru einum sigri frá fyrsta Íslandsmeistaratitlinum í sögu karlahandboltaliðs félagsins og geta tryggt sér hann með sigri á FH í Kaplakrika á sunndaginn. HK vann 3-0 sigur á deildarmeisturum Hauka í undanúrslitunum N1 deildar karla og er nú komið í 2-0 á moti Íslandsmeisturum FH í lokaúrslitunum. Handbolti 5. maí 2012 08:00
Ingimundur: Eigum óklárað verkefni ÍR verður nýliði í N1-deild karla næsta vetur og fékk heldur betur liðsstyrk í gær þegar silfurmennirnir Ingimundur Ingimundarson og Sturla Ásgeirsson skrifuðu báðir undir tveggja ára samning við uppeldisfélag sitt. Handbolti 4. maí 2012 07:00
Stuð og stemning í Digranesi - myndir Það var gríðarleg stemning í Digranesi í kvöld þegar HK skellti FH öðru sinni og komst í lykilstöðu í úrslitaeinvígi liðanna í N1-deild karla. Handbolti 3. maí 2012 22:15
Ingimundur og Sturla sömdu við ÍR Nýliðar ÍR í N1-deild karla fengu mikinn liðsstyrk í kvöld þegar þeir Ingimundur Ingimundarson og Sturla Ásgeirsson skrifuðu undir tveggja ára samning við félagið. Handbolti 3. maí 2012 18:49
Umfjöllun og viðtöl: HK - FH 29-26 | HK komið í 2-0 HK-ingar héldu áfram sigurgöngu sinni í úrslitakeppni N1-deildarinnar í handbolta og eru nú aðeins einum sigri frá Íslandsmeistaratitlinum eftir þriggja marka sigur á Íslandsmeisturum FH, 29-26, í öðrum leik liðanna um Íslandsmeistaratitilinn í N1 deild karla. HK er búið að vinna alla fimm leiki sína í úrslitakeppninni. Handbolti 3. maí 2012 16:15
Umfjöllun og viðtöl: FH - HK 23-26 | HK leiðir einvígið 1-0 HK vann magnaðan útisigur á FH í fyrsta leik liðanna í úrslitum N1-deildar karla. Kópavogsbúar mun grimmari allan leikinn og áttu sigurinn skilinn. Handbolti 1. maí 2012 13:29
Þessir guttar eru enn hungraðir Í dag er á dagskrá fyrsti leikurinn í úrslitarimmu FH og HK um Íslandsmeistaratitilinn í handbolta. FH er ríkjandi meistari og hafði betur gegn Akureyri í undanúrslitum en HK-ingar „sópuðu" deildarmeisturum Hauka úr leik í sinni undanúrslitarimmu. Handbolti 1. maí 2012 07:00