Flugöryggi á Reykjavíkurflugvelli Samgöngustofa hefur fyrirskipað Isavia að loka austur-vestur flugbraut Reykjavíkurflugvallar frá miðnætti 8. febrúar. Skoðun 7. febrúar 2025 15:00
Aðstoðarmennirnir og ástin Ráðherrar ríkisstjórnar Kristrúnar Frostadóttur hafa verið að ráða sér aðstoðarmenn undanfarnar vikur. Í einhverjum tilfellum má segja að ekki sé leitað langt yfir skammt. Sumir aðstoðarmenn tengjast ráðherrum sökum þess að ástarguðinn Amor skaut örvum sínum og hitti beint í mark. Lífið 7. febrúar 2025 14:46
Ráðinn aðstoðarmaður Sigurðar Inga Birkir Jón Jónsson hefur verið ráðinn aðstoðarmaður Sigurðar Inga Jóhannssonar formanns Framsóknarflokksins. Þetta kemur fram á vef Alþingis. Innlent 7. febrúar 2025 14:23
Hættir sem formaður Rafiðnaðarsambandsins Kristján Þórður Snæbjarnarson, þingmaður Samfylkingarinnar, er hættur sem formaður Rafiðnaðarsambands Íslands. Hann hefur gegnt embættinu frá 2011. Innlent 7. febrúar 2025 13:52
Jóhann Páll gengur í stað Ölmu Ákveðið hefur verið að Jóhann Páll Jóhannsson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra, verði staðgengill Ölmu Möller, heilbrigðisráðherra, í málum sem varða fyrri störf hennar sem landlæknir. Innlent 7. febrúar 2025 13:45
Sáttasemjari hafi óskað eftir skrifstofustjóra Ásthildar í Karphúsið Ráðherra segir ríkissáttasemjara hafa óskað eftir aðkomu Hafþórs Einarssonar, skrifstofustjóra mennta- og barnamálaráðuneytis, að kjaradeilu kennara. Hann hafi hvorki rætt við kennara né komið bréfi til þeirra. Innlent 7. febrúar 2025 13:37
Vísa kjaradeilu við Sorpu til sáttasemjara vegna umboðsleysis samninganefndar Stéttarfélögin Efling og Hlíf hafa vísað kjaradeildu sinni við Sorpu byggðasamlag til ríkissáttasemjara. Ástæðan er sögð sú að framkvæmdastjóri byggðasamlagsins hafi tekið fram fyrir hendurnar á samninganefnd sem ræddi við stéttarfélögin. Innlent 7. febrúar 2025 11:55
Verða ekki krafin um endurgreiðslu Daði Már Kristófersson fjármála- og efnahagsráðherra segir að ráðuneytið hafi brugðist vegna styrkveitinga til stjórnmálasamtaka, sem voru ekki rétt skráð samkvæmt lagabreytingum frá 2022. Ekki séu þó forsendur fyrir endurgreiðslukröfu. Innlent 7. febrúar 2025 11:55
Stjórnarandstaðan hræðist ekkert meðan ríkisstjórnin þori ekki út úr húsi Þingmenn Sjálfstæðisflokks, Framsóknar og Miðflokks héldu partý í gær til að stilla saman strengi fyrir átök komandi þingvetrar. Það var glatt á hjalla, áfengi á boðstólum og karíókístuð þó sumir þingmenn hefðu ekki látið sjá sig. Lífið 7. febrúar 2025 11:31
Eiga eftir að taka afstöðu til birtingar lista yfir umsækjendur Stjórn Mannréttindastofnunar Íslands á eftir að taka afstöðu til þess hvort upplýst verður um umsækjendur um embætti framkvæmdastjóra stofnunarinnar. Innlent 7. febrúar 2025 10:55
Hjálmar segist ekki skilja hvað Einar eigi við Hjálmar Sveinsson borgarfulltrúi furðar sig á yfirlýsingum Einars Þorsteinssonar borgarstjóra með að það hrikti í borgarstjórnarmeirihlutanum. Innlent 7. febrúar 2025 10:44
„Maður veltir fyrir sér hver er að búa til svona sögur“ Ásthildur Lóa Þórsdóttir, mennta- og barnamálaráðherra, segir engan á vegum ráðuneytisins hafa lagt fram launahækkun í kjaraviðræðum kennara og veltir hún fyrir sér hver sé að búa til slíkar sögusagnir. Ráðuneytið hafi þó reynt að liðka fyrir viðræðum með öðrum aðgerðum. Innlent 7. febrúar 2025 09:00
Gerræðisleg og hjartalaus leyfisveiting, sem stöðva verður! Bjarni Benediktsson og nokkrir aðrir framámenn Sjálfstæðisflokksins, ekki sízt Jón Gunnarsson, hafa verið nátengdir Kristjáni Loftssyni í Hval. Hafa þeir stutt hann og hans hvalveiðar með ráðum og dáð. Reyndar hefur allur þingflokkurinn stutt þær, eftir því, sem bezt verður séð. Skoðun 7. febrúar 2025 06:02
Ráðherra segist ekki skilja hvað þau hjá borginni eru að hugsa Eyjólfur Ármannsson samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra segir grafalvarlegt mál að einni flugbraut Reykjavíkurflugvallar verði lokað sökum þess að Reykjavíkurborg hafi dregið að fella trjágróður í Öskjuhlíð. Ráðherrann segist ekki skilja hvað þau hjá borginni eru að hugsa með því að haga sér svona. Innlent 6. febrúar 2025 22:20
Skautað framhjá ýmsu í tilkynningu menntamálaráðherra Þingflokksformenn minnihlutans hafa krafið forsætisráðherra um svör vegna meintra afskipta menntamálaráðuneytisins í kjaraviðræðum kennara. Ráðuneytið þvertekur fyrir að ráðherra eða annar starfsmaður hafi boðið eða gefið vilyrði um launahækkun til kennara. Innlent 6. febrúar 2025 19:10
„Þetta hörmulega og sorglega atvik endurspeglar langvinnan vanda“ Karlmaður sem sætir ákæru fyrir að hafa banað hjónum í Neskaupstað síðasta sumar átti að vera í nauðungarvistun þegar voðaverkið var framið. Heilbrigðisráðherra segir atvikið endurspegla langvinnan vanda kerfisins. Núverandi húsnæði undir geðþjónustu sé barn síns tíma. Innlent 6. febrúar 2025 19:10
Hafna því að hafa boðið nokkra launahækkun Ásthildur Lóa Þórsdóttir, menntamálaráðherra, tekur fyrir að hún eða starfsmaður ráðuneytisins hafi um helgina gefið kennurum vilyrði fyrir launahækkunum en síðan dregið loforðið til baka. Innlent 6. febrúar 2025 17:44
Fangelsi Framsóknarflokksins Þótt Framsóknarflokkurinn sé í meirihluta í borgarstjórn Reykjavíkur hefur hann í því samstarfi skapað sitt eigið fangelsi. Þetta kemur hvergi betur fram en í flugvallarmálinu. Skoðun 6. febrúar 2025 16:03
Menntun í gíslingu hrímþursa Í yfirstandandi verkfalli kennara í leikskólum og grunnskólum sker það í augu að fulltrúar bæjar– og sveitarstjórna í landinu hafa ekki burði til takast á við það verkefni sem þeim ber skylda til þ.e. að halda skólastarfi gangandi í landinu. Skoðun 6. febrúar 2025 15:33
Vinir Kópavogs þáðu styrki án réttrar skráningar Vinir Kópavogs hafa þegið styrki upp á 2,3 milljónir króna síðustu þrjú ár án þess að uppfylla skilyrði laga um skráningu sem stjórnmálasamtök. Oddviti flokksins segir enga leiðsögn hafa fylgt greiðslum Kópavogsbæjar um skráningu flokksins en Vinir Kópavogs hafi þegar gert ráðstafanir til að skrá starfsemina. Innlent 6. febrúar 2025 14:55
Eiginkona Ragnars Þórs aðstoðar Ásthildi Lóu Guðbjörg Ingunn Magnúsdóttir hefur verið ráðin aðstoðarmaður Ásthildar Lóu Þórsdóttur, mennta- og barnamálaráðherra. Innlent 6. febrúar 2025 14:54
Krefjast svara hvort ráðherra hafi skipt sér af kjaraviðræðum Þingflokksformenn stjórnarandstöðuflokkanna þriggja krefja forsætisráðherra um svör hvort menntamálaráðherra eða starfsmaður á hennar vegum hafi skipt sér af kjaraviðræðum kennara við sveitarfélögin liðna helgi. Innlent 6. febrúar 2025 14:49
Segir mannslífum stofnað í hættu með lokun flugbrautar Flugrekstrarstjóri Norlandair, sem annast sjúkraflug innanlands, segir mannslífum stofnað í hættu með lokun annarrar flugbrautar Reykjavíkurflugvallar. Hann segir að þetta megi ekki gerast og biðlar til ráðamanna ríkis og borgar að leysa málið strax. Innlent 6. febrúar 2025 13:26
Isavia fær tvo daga til að loka flugbrautinni Samgöngustofa fyrirskipaði Isavia í gærkvöldi að loka austur-vestur flugbraut Reykjavíkurflugvallar, braut 31/13, frá miðnætti 8. febrúar, það er á laugardag. Ástæðan er trjágróður í Öskjuhlíð sem skerðir öryggi flugfarþega. Innlent 6. febrúar 2025 10:48
Styðjum Áslaugu Örnu – sameinumst um grunngildin Við Sjálfstæðismenn í sveitarstjórnarmálum um land allt lýsum yfir eindregnum stuðningi við Áslaugu Örnu Sigurbjörnsdóttur í formannskjöri Sjálfstæðisflokksins og hvetjum alla til að fylkja sér að baki öflugum leiðtoga með skýra framtíðarsýn sem getur aukið fylgi og sameinað stuðningsmenn flokksins. Skoðun 6. febrúar 2025 09:00
Stefnuræðu frestað til mánudags Stefnuræðu Kristrúnar Frostadóttur forsætisráðherra hefur verið frestað til mánudagsins 10. febrúar og hefjast regluleg þingstörf degi síðar. Ræðuna átti að halda í gærkvöldi en var frestað vegna rauðrar viðvörunar og hættustigs. Innlent 6. febrúar 2025 08:50
Ríkisstjórnin þarf aðhald Ný ríkisstjórn kappkostar að ná frumkvæði í umræðunni og nú síðast með því að halda blaðamannafund um þingmálaskrá ríkisstjórnarinnar líkt og um tímamót væri að ræða. Reyndar er það svo samkvæmt þingskapalögum að þingmálaskrá skal dreift um leið og stefnuræðu forsætisráðherra við þingsetningu. Skoðun 6. febrúar 2025 07:31
Pottur fyrrverandi þingmanns hvarf í óveðrinu Heitur pottur sem hefur staðið um áratugaskeið við heimili Lilju Rannveigar Sigurgeirsdóttur, fyrrverandi þingmanns, í Borgarbyggð fauk í óveðrinu áðan. Innlent 5. febrúar 2025 20:35
Stefnuræðu Kristrúnar frestað Stefnuræðu Kristrúnar Frostadóttur, nýkjörins forsætisráðherra, hefur verið frestað vegna veðurs. Hún greindi frá þessu á Facebook. Innlent 5. febrúar 2025 16:13
Formaður BÍ æfur vegna ummæla Sigurjóns Sigurjón Þórðarson, þingmaður Flokks fólksins og formaður atvinnuveganefndar, segist standa við orð sín þess efnis að hann telji vert að lækka styrk ríkisins til Morgunblaðsins. Ýmsir hafa gert athugasemdir við þau orð hans og samhengið sem þau voru sett fram í. Innlent 5. febrúar 2025 15:12