Hrafn: Maður verður að vera ánægður körfuboltans vegna Hrafn Kristjánsson, þjálfari KR, var skiljanlega svekktur í leikslok eftir eins stigs tap í framlengdum leik á móti Keflavík í Toyota-höllinni í Keflavík í kvöld. KR hefur þar með tapað tveimur leikjum í röð í undanúrslitaeinvígi liðanna og framundan er hreinn úrslitaleikur um sæti í úrslitaeinvíginu. Körfubolti 4. apríl 2011 22:24
Gunnar Einarsson: Sagan er bara að endurtaka sig frá 2008 Gunnar Einarsson var einn af fimm Keflvíkingum sem skoruðu tólf stig eða meira þegar Keflvík vann 104-103 sigur á KR í framlengdum leik í Toyota-höllinni í Keflavík í kvöld. Keflvíkingar tryggðu sér þar með oddaleik í einvíginu í DHl-höllinni á fimmtudaginn. Körfubolti 4. apríl 2011 22:21
Hörður Axel: Nú er öll pressan á KR Hörður Axel Vilhjálmsson setti niður tvær rosalega mikilvægar þriggja stiga körfur í framlengingunni í 104-103 sigri Keflavíkur á KR í kvöld. Keflavík vann þar sinn annan leik í röð í framlengingu og tryggði sér oddaleik á fimmtudagskvöldið. Hörður Axel endaði leikinn með 16 stig og 7 stoðsendingar. Körfubolti 4. apríl 2011 22:07
Brynjar Þór: Þetta er smá aukakrókur KR-ingar töpuðu öðrum leiknum í röð í framlengingu í undanúrslitaeinvígi sínu á móti Keflavík í kvöld og nú mætast liðin í hreinum úrslitaleik í DHl-höllinni á fimmtudagskvöldið. Körfubolti 4. apríl 2011 22:03
Umfjöllun: Aftur vann Keflavík í framlengingu Keflavík tryggði sér oddaleik í undanúrslitaeinvígi sínu á móti KR eftir eins stiga sigur, 104-103, í framlengdum leik í Toyota-höllinni í Keflavík í kvöld. Leikurinn var stórkostleg skemmtun, hraður, spennandi og uppfullur af áhlaupum, frábærum tilþrifum og endalausum sveiflum fram og til baka. Körfubolti 4. apríl 2011 21:16
Fleiri þriggja stiga tilraunir en í nokkrum NBA-leik Æsilegum leik KR og Keflavíkur á föstudagskvöldið lauk með sigri síðarnefnda liðsins, 139-135, eftir framlengingu. Samanlagt reyndu leikmenn liðanna að skjóta 85 sinnum fyrir utan þriggja stiga línuna, þar af KR ingar 61 sinni. Körfubolti 4. apríl 2011 08:00
Ótrúlegar sviptingar í Keflavík Keflavík er komið í 1-0 í úrslitarimmunni gegn Njarðvík í Iceland Express-deild kvenna eftir sigur í æsispennandi leik, 74-73. Körfubolti 2. apríl 2011 17:32
Marín: Brjáluð stemning í bænum Marín Rós Karlsdóttir, annar fyrirliða Keflavíkur, á von á skemmtilegum leikjum gegn Njarðvík í úrslitarimmu liðanna um Íslandsmeistaratitilinn í körfubolta. Körfubolti 2. apríl 2011 11:30
Jón Halldór: Meiri tilfinning í bæjarslag Jón Halldór Eðvaldsson, þjálfari Keflavíkur, er ánægður með að bæði sínir leikmenn sem og Njarðvíkingar fái að upplifa alvöru stemningu í úrslitarimmu liðanna í Iceland Express-deild kvenna. Körfubolti 2. apríl 2011 10:30
Hreggviður: Engir meistarataktar í vörninni "Varnarleikurinn var dapur og við vorum alls ekki að sýna neina meistaratakta á því sviði,“ sagði Hreggviður Magnússon, leikmaður KR, eftir tap liðsins á heimavelli gegn Keflavík, 135-139, í undanúrslitum um Íslandsmeistaratitilinn í Iceland Express deild karla. Staðan í einvíginu er þar með 2-1 fyrir KR. Körfubolti 1. apríl 2011 22:41
Hörður Axel: Enginn í Keflavík hafði áhuga á sumarfríi "Þetta er hrikalega sætur sigur. Við vorum með bakið upp við vegg og núna snúum við þessu einvígi við,“ sagði Hörður Axel Vilhjálmsson, leikmaður Keflavíkur, kátur í leikslok eftir frækinn sigur Keflavíkur á KR, 135-139, í mögnuðum leik í undanúrslitum Iceland Express deild karla í kvöld. Körfubolti 1. apríl 2011 22:29
Umfjöllun: Keflavík enn á lífi eftir sigur í framlengdum leik Stjarnan fær að hvíla í ágætan tíma fyrir úrslitaeinvígið í Iceland-Express deild karla því Keflavík vann magnaðan sigur, 135-139, á KR í framlengdum leik liðanna í Frostaskjólinu í kvöld. Staðan í einvígi liðanna er því 2-1 fyrir KR og næsti leikur fer fram í Keflavík. Leikur liðanna í kvöld var hreint út sagt stórkostlegur. Körfubolti 1. apríl 2011 21:27
Marculinskij er heitasta nýyrðið í íslenskum körfubolta Marculinskij er heitasta nýyrðið í íslenskum körfubolta því KR-ingarnir Pavel Ermolinskij og Marcus Walker fara á kostum þessa dagana í úrslitakeppni Iceland Express deildarinnar. Þeir eru saman með 45,3 stig, 19.8 fráköst og 12,5 stoðsendingar að meðaltali í fyrstu fjórum leikjum KR í úrslitakeppninni og hafa skilað saman framlagi upp á 50 eða meira í öllum þessum leikjum. Meðalframlag þeirra í leik er upp á 56,8. Körfubolti 1. apríl 2011 17:15
Verða Suðurnesjalaus lokaúrslit í fyrsta sinn í sögunni? KR-ingar eiga möguleika á því að sópa út öðrum Reykjanesbæjarrisanum í röð með sigri í þriðja leik sínum á móti Keflavík í undanúrslitum Iceland Express deild karla í kvöld. Með því að slá út Keflavík myndu KR-ingar líka sjá til þess að lokaúrslitin yrðu í fyrsta sinn í sögunni án Suðurnesjaliðs en Stjörnumenn hafa þegar tryggt sér sæti í lokaúrslitunum. Körfubolti 1. apríl 2011 16:15
Justin Shouse: Blendnar tilfinningar Stjörnumaðurinn Justin Shouse var afar kátur eftir að hans lið hafði sópað hans gamla liði, Snæfell, í sumarfrí með sannfærandi sigri í Fjárhúsinu. Körfubolti 31. mars 2011 22:05
Nonni Mæju: Þetta er alveg ömurlegt "Þetta er alveg ömurlegt. Sérstaklega eftir síðasta tímabil og hvernig það gekk og hvernig þetta tímabil er búið að spilast. Það er búið að vera skemmtilegt og að enda þetta svona - það er þetta alveg ömurlegt,“ sagði súr og svekktur Nonni Mæju, leikmaður Snæfells, eftir leik Snæfells og Stjörnunnar í undanúrslitum Iceland Express-deildar karla. Körfubolti 31. mars 2011 21:51
Umfjöllun: Stjarnan mætti með sópinn í Fjárhúsið Stjarnan frá Garðabæ er komið í úrslit Íslandsmótsins í körfubolta í fyrsta skipti eftir afar sannfærandi sigur, 105-88, á Snæfelli í þriðja leik liðanna. Stjarnan vann rimmu liðanna 3-0 og sópaði því Íslandsmeisturunum í sumarfrí. Körfubolti 31. mars 2011 20:28
Falla meistararnir úr leik í kvöld? Íslands- og deildarmeistarar Snæfells mæta Stjörnunni í kvöld í þriðja leik liðanna í undanúrslitarimmu þeirra í úrslitakeppni Iceland Express-deildar karla. Körfubolti 31. mars 2011 16:45
Brynjar: Markmiðið er að klára þetta á föstudagskvöldið Brynjar Þór Björnsson lék vel með KR-liðinu á báðum endum vallarins í kvöld þegar bikarmeistararnir unnu sannfærandi 18 stiga sigur á Keflavík í Toyota-höllinni. Brynjar var mjög ákveðinn í öllum sínum aðgerðum og endaði leikinn með 17 stig. Körfubolti 31. mars 2011 00:01
Hrafn: Lögðum mikla áherslu á það að keyra upp hraðann Hrafn Kristjánsson, þjálfari KR, gat verið mjög ánægður með sitt lið eftir frábæran 18 stiga sigur á Keflavík í Toyota-höllinni í kvöld. KR-liðið hefur þar með unnið fjóra fyrstu leiki sína í úrslitakeppninni og getur sópað út öðru Reykjanesbæjarliðinu í röð með sigri í þriðja leiknum á föstudagskvöldið. Körfubolti 30. mars 2011 23:46
Guðjón: Veturinn undir í næsta leik "Þetta var bara ömurlegt og við klúðrum leiknum í fjórða leikhluta," sagði Guðjón Skúlason, þjálfari Keflavíkur eftir 18 stiga tap á móti KR á heimavelli í öðrum leik liðanna í undanúrslitaeinvígi þeirra í Iceland Express deildinni. KR gerði út um leikinn með því að vinna lokaleikhlutann 32-17 en liðið vann leikinn 105-87. Körfubolti 30. mars 2011 22:35
Walker: Vil að mótherjarnir hræðist mig Marcus Walker átti enn einn stórleikinn með KR þegar liðið vann 18 stiga sigur á Keflavík í Toyota-höllinni í kvöld en KR er komið í 2-0 í einvíginu og getur tryggt sér sæti lokaúrslituum með sigri á heimavelli á föstudagskvöldið. Körfubolti 30. mars 2011 22:07
Pavel: Við erum mjög sterkir andlega Pavel Ermolinskij átti flottan leik í kvöld þegar KR komst í 2-0 í undanúrslitaeinvíginu á móti Keflavík eftir sannfærandi 18 stiga sigur í Keflavík í gærkvöldi. Pavel endaði leikinn með 17 stig, 15 fráköst, 8 stoðsendingar og 5 stolna bolta. Körfubolti 30. mars 2011 21:59
Umfjöllun: Sannfærandi hjá KR sem er komið í 2-0 KR-ingar eru einum sigurleik frá úrslitaeinvíginu um Íslandsmeistaratitilinn eftir sannfærandi 18 stiga sigur á Keflavík, 87-105, í Toyota-höllinni í kvöld. KR varð þar með fyrsta liðið til að vinna Keflvíkinga á heimavelli á árinu 2011. Körfubolti 30. mars 2011 20:58
Marcus Walker með 21,7 stig að meðaltali í seinni hálfleik KR-ingurinn Marcus Walker hefur farið á kostum í úrslitakeppninni til þessa og á mikinn þátt í því að bikarmeistararnir hafa unnið þrjá fyrstu leiki sína. Walker er með 29,0 stig að meðaltali í leik í þessum þremur leikjum en það er þó fyrst í seinni hálfleikjum leikjanna þar sem að hann fer fyrst á flug. KR heimsækir Keflavík í kvöld og getur þar komist í 2-0 í undanúrslitaeinvígi liðanna. Körfubolti 30. mars 2011 17:30
Sverrir: Leikskrá Hamars gaf okkur aukinn kraft Sverrir Þór Sverrisson, þjálfari kvennaliðs Njarðvíkur, segir að það hafi gefið sínum aukinn kraft fyrir oddaleikinn gegn Hamri í gær að sjá leikskrá Hvergerðinga fyrir leikinn. Körfubolti 30. mars 2011 12:15
Meistararnir í vandræðum - myndir Íslandsmeistarar Snæfells eru með bakið upp við vegginn eftir annað tap fyrir Stjörnunni í undanúrslitum Iceland Express-deildar karla. Körfubolti 30. mars 2011 07:00
Aftur neitaði Amoroso að taka í hönd Stjörnumanna Ryan Amoroso, leikmanni Snæfells, virðist vera eitthvað illa við Stjörnumenn því annan leikinn í röð neitaði hann að taka í hönd fulltrúa Stjörnunnar eftir viðureign liðanna. Körfubolti 29. mars 2011 22:58
Fannar: Við getum unnið titilinn Stjörnumaðurinn Fannar Helgason frá Ósi segir að það sé mikið sjálfstraust í liði Stjörnunnar og hann segir liðið geta farið alla leið á þessu tímabili. Stjarnan vann Snæfell í kvöld og er komið í 2-0 í undanúrslitarimmu liðanna. Körfubolti 29. mars 2011 22:36
Nonni Mæju: Þurfum að skrifa nýja sögu Jón Ólafur Jónsson, leikmaður Snæfells, var að vonum daufur í dálkinn eftir annað tap Snæfells í röð gegn Stjörnunni í undanúrslitum Iceland Express-deildar karla. Körfubolti 29. mars 2011 22:21