
Varð að hætta skyndilega við tónleika vegna veikinda
Breska tónlistargoðsögnin Sam Smith hefur hætt við tónleika sína í Glasgow með eins dags fyrirvara vegna skyndilegra veikinda.
Fréttir af innlendum og erlendum tónlistarmönnum, uppákomum og myndböndum.
Breska tónlistargoðsögnin Sam Smith hefur hætt við tónleika sína í Glasgow með eins dags fyrirvara vegna skyndilegra veikinda.
„Ég er mjög spenntur. Ég er náttúrlega búinn að vita af þessu núna í smá stund og búinn að undirbúa dálítið og þetta er að verða tilbúið,“ segir tónlistarmaðurinn Daði Freyr sem fær loksins stíga á Eurovision sviðið þann 13. maí næstkomandi.
Trommarinn Gunnlaugur Briem hefur ákveðið að segja skilið við hljómsveitina Mezzoforte og einbeita sér að sólóferli sínum. Frá þessu er greint á Facebook-síðu sveitarinnar.
Warmland tvíeykið gefur í dag út sína aðra plötu, Modular Heart. Tónlistarmyndband sveitarinnar við lagið Juno frumsýnt á Vísi hér að neðan en þar fara þeir Jói Pé og Viktor Breki á kostum í nútímadansi.
Sesselía Ólafs er bæjarlistarmaður Akureyrar 2023. Valið var tilkynnt í rafrænni útsendingu Vorkomu Akureyrarbæjar síðdegis í dag.
Rapparanum Drake hefur verið stefnt af ganverska rapparanum Obrafour vegna brota á höfundarétti. Obrafour segir Drake hafa notað lag sitt Ohene Remix ófrjálsri hendi þegar hann samdi smellinn Calling My Name. Obrafour krefst tíu milljóna Bandaríkjadala vegna málsins.
Tónlistarmaðurinn Daniil hefur náð miklum árangri í íslenskum tónlistarheimi en hann var kosinn Nýliði ársins á Hlustendaverðlaununum í ár og var að senda frá sér plötuna 600. Hann verður með stóra útgáfutónleika í Gamla Bíó á morgun, föstudagskvöld, þar sem öllu verður til tjaldað. Blaðamaður tók púlsinn á þessum 21 árs gamla rappara, sem byrjaði að gera tónlist fyrir fjórum árum síðan.
K-pop stjarnan Moonbin er látin, 25 ára að aldri. Var hann einn meðlima vinsælu hljómsveitarinnar Astro en hafði síðustu misseri unnið að sólóferli sínum ásamt einum öðrum meðlimi úr sveitinni.
Íslenskir ofuraðdáendur Eurovision söngvakeppninnar í FÁSES eru hrifnari af finnska framlaginu í ár og möguleikum þess í keppninni heldur en því sænska. FÁSES kvaddi Diljá Pétursdóttur í gær á Kex Hostel og formaðurinn hefur fulla trú á góðu gengi Íslands.
Söngkonuna Maríu Ólafsdóttur hafði alla tíð dreymt um að keppa í Eurovision. Þegar sá draumur rættist árið 2015 breyttist draumurinn þó fljótt í hreina martröð. Átta árum síðar er María enn að vinna úr áfallinu og vekur hún athygli á því hve djúpstæð áhrif neikvæð orðræða á netinu getur haft á einstaklinga.
Tónlistarmaðurinn Aron Can birti fyrstu myndina af sér og frumburðinum á samfélagsmiðlum.
Réttarmeinalæknir segir söngvarann og samfélagsmiðlastjörnuna Aaron Carter hafa drukknað í baðkari sínu vegna áhrifa af fíkniefnum sem hann hafði tekið fyrr um daginn. Í líkama hans fundust efni úr Xanax-töflum og efni úr loftúðahreinsiefni.
„Mig langaði að gera þeirri tónlist sem ég hef samið á undanförnum árum góð skil,“ segir píanóleikarinn og tónskáldið Magnús Jóhann Ragnarsson, sem stendur fyrir fjögurra kvölda tónleikaseríu í Mengi og hefst hún á fimmtudagskvöld. Blaðamaður tók púlsinn á Magnúsi Jóhanni.
Gamlir bílar og gömul bílnúmer eru honum hugleikinn, svo ekki sé talað um sönginn en hann hefur sungið í um fjögur þúsund jarðarförum. Hér erum við að tala um Álftagerðisbróðurinn Óskar Pétursson, sem Magnús Hlynur heimsótti í þætti sínum, „Mig langar að vita“ í hér á Stöð 2 í kvöld.
Skoski lagahöfundurinn Bob Heatlie er látinn, 76 ára að aldri. Hann samdi fjölda laga og stefja fyrir hina ýmsu tónlistarmenn og sjónvarpsþætti.
Tónlistarkonan Björk kom fram á tónlistarhátíðinni Coachella í Kaliforníufylki í gærkvöldi og heillaði fólk eins og hún á að sér. Vakti það mikla athygli að Björk notaði meira en 800 dróna til að lýsa upp himininn fyrir ofan sviðið.
Gervigreind framleiddi á dögunum lag með röddum tónlistarmannanna Drake og The Weeknd. Drake sjálfur vera kominn með nóg af gervigreindinni en útgáfufyrirtæki þeirra beggja er sagt hafa óskað eftir því að lagið yrði fjarlægt af öllum streymisveitum.
Gígja Marín Þorsteinsdóttir úr Hveragerði er fjórði flytjandinn sem er kynntur til sögunnar í Skúrnum.
Rapparinn Kristmundur Axel hefur með sanni átt öfluga endurkomu inn í íslenskt tónlistarlíf að undanförnu og kom meðal annars fram á Hlustendaverðlaununum í ár. Hann er mættur á Íslenska listann á FM með ekki bara eitt heldur tvö lög.
„Ég byrjaði í tónlist þegar ég var pínulítill. Pabbi er söngvari og ég var fimm ára þegar ég byrjaði að spila á gítar,“ segir tónlistarmaðurinn Thorsteinn Einarsson, sem skrifaði átján ára gamall undir plötusamning í Austurríki. Hann hefur verið að gera góða hluti þar undanfarin ár, er með milljónir spilanna á streymisveitunni Spotify og hefur spilað víða á tónleikum. Blaðamaður hitti hann í kaffi og tók púlsinn á honum.
Mark Sheehan, gítarleikari og einn stofnenda írsku hljómsveitarinnar The Script, lést í dag aðeins 46 ára gamall.
Tónlistarkonurnar Elín Hall og Guðrún Ýr Eyfjörð, betur þekkt sem GDRN, leiða saman hesta sína í laginu Júpíter sem kom út í dag.
Tónlistarmaðurinn Herra Hnetusmjör birti mynd af sér á samfélagsmiðlum í tæplega 400 þúsund króna Bull denim smekkbuxum á dögunum.
Hinn 19 ára gamli Alexander Orri úr Reykjanesbæ er þriðji flytjandinn sem er kynntur til sögunnar í Skúrnum. Hann starfar sem pípari en hóf að fikta við tónlist ellefu ára gamall þegar hann eignaðist dj borð og fann strax að tónlistasköpun myndi fylgja honum út lífið.
Í síðasta þætti af Kvöldstund með Eyþóri Inga var sjálfur Björgvin Halldórsson gestur og má með sanni segja að þeir félagar hafi farið á kostum.
Skúrinn hóf göngu sína á Vísi fyrr í vikunni en þar keppa sex flytjendur um bestu nýju útgáfuna af gamla góða SS pylsulaginu auk þess sem þeir flytja einnig frumsamið lag.
Íslenska hljómsveitin Vök mun hita upp fyrir strákabandið Backstreet Boys í Nýju-Höllinni þann 28. apríl næstkomandi.
Skúrinn hefur göngu sína á Vísi í dag en þar keppa sex flytjendur um bestu nýju útgáfuna af gamla góða SS pylsulaginu auk þess sem þeir flytja einnig frumsamið lag.
Tónlistarkonan Vigdís Hafliðadóttir frumflutti lag Barnamenningarhátíðar árið 2023 í Engjaskóla klukkan 13 í dag. Lagið ber heitið Kæri heimur og verða nemendur skólans viðstaddir flutninginn.
Nick Carter, einum meðlimi hljómsveitarinnar Backstreet Boys, hefur verið stefnt fyrir nauðgun. Söngkonan Melissa Schuman sakar hann um að hafa beitt sig ofbeldi fyrir tuttugu árum. Hún steig fyrst fram með ásökunina árið 2017. Þá neitaði Carter sök og gerir hann það enn samkvæmt lögmanni hans.