Sterkustu skákmenn landsins mætast á Selfossi Hlaðvarpsþátturinn Chess After Dark stóð fyrir Íslandsmótinu í atskák sem fór fram í dag á Selfossi. Sterkustu skákmenn landsins mættust en alls voru fjórir stórmeistarar skráðir til leiks. 10.12.2022 12:50
Parks and Recs leikkonan Helen Slayton-Hughes er látin Bandaríska leikkonan Helen Slayton-Hughes er látin, 92 ára að aldri. Slayton-Hughes er best þekkt fyrir hlutverk sitt í þáttunum Parks and Recreation. Fjölskylda hennar greindi frá andlátinu á Facebook í dag. 10.12.2022 11:28
Varaforseti Evrópuþingsins grunaður um spillingu Evu Kaili, einni af fjórtán varaforsetum Evrópuþingsins, hefur verið vikið úr stjórnmálaflokk sínum í heimalandinu vegna gruns um spillingu. Henni hefur einnig verið vikið úr þingflokknum á Evrópuþinginu. 10.12.2022 09:37
Sonur Tinu Turner er látinn Ronnie Turner, sonur Ike og Tinu Turner, er látinn, 62 ára að aldri. Ekki er vitað hvað dró hann til dauða en hann hafði glímt við ýmsa heilsukvilla síðustu ár. 10.12.2022 08:33
Blaðamaður sem mótmælti regnbogareglum á HM er látinn Bandaríski blaðamaðurinn Grant Wahl er látinn, 49 ára að aldri. Hann var staddur í Katar til að færa fréttir af Heimsmeistaramótinu í fótbolta sem fer fram þar um þessar mundir. Hann hneig niður er hann var að fylgjast með leik Argentínu og Hollands í gær. 10.12.2022 08:11
Tveir látnir eftir að ís brotnaði undan vélsleðum í Noregi Tveir eru látnir eftir að ís Møsvatns í Noregi brotnaði undan tveimur vélsleðum. Er viðbragðsaðilar mættu á staðin voru einstaklingarnir nú þegar látnir. 10.12.2022 07:43
Pottur á eldavél olli eldsvoða Alls fór slökkviliðið á höfuðborgarsvæðinu í 131 útkall síðastliðinn sólarhring. Dælubílar fóru í sex útköll. 10.12.2022 07:34
Börn á skemmtistað með of fáa dyraverði Við eftirlit lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu í nótt kom í ljós að skemmtistaður í miðbæ Reykjavíkur var með of fáa dyraverði við vinnu. Þá voru börn undir aldri inni á staðnum. Forráðamenn staðarins eiga von á kæru vegna málsins og var tilkynning send á barnavernd vegna barnanna á staðnum. 10.12.2022 07:25
Dæmd fyrir að saka mann um nauðgun í BDSM-hópi á Facebook Kona var í dag dæmd til að greiða manni 400 þúsund krónur í miskabætur fyrir að hafa sakað hann um að hafa nauðgað vinkonu sinni. Ásökunina birti hún í færslu í Facebook-hóp fyrir meðlimi BDSM-samfélagsins. Ummælin voru dæmd ómerkt. Maðurinn höfðaði einnig mál gegn konunni sem hann er sagður hafa nauðgað en tapaði því máli. 9.12.2022 16:54
Landsbankinn hækkar vexti Vextir Landsbankans hækka frá og með 12. desember næstkomandi. Breytilegir vextir á óverðtryggðum íbúðalánum hækka um 0,25 prósentustig, sem og breytilegir vextir á verðtryggðum íbúðalánum. 9.12.2022 15:04