Hafði lokið loðnuleit en snúið við til að kanna vestangöngu Fiskiskipið Heimaey VE var á siglingu af Vestfjarðamiðum í dag áleiðis til heimahafnar eftir að hafa lokið loðnuleit þegar ákvörðun var tekin um að snúa skipinu til frekari leitar. Ástæðan er vísbending sem barst síðdegis um loðnugöngu undan Patreksfirði. 28.2.2024 21:03
Þingeyingar sprengdu áður stíflu en vilja núna virkja Sú óvenjulega staða er komin upp í Þingeyjarsveit að mikill meirihluti íbúa í nærsamfélaginu vill fá svokallaða Einbúavirkjun í Skjálfandafljóti inn á aðalskipulag, virkjun sem sveitarstjórnin hafði hafnað. 27.2.2024 22:22
Færeyingar fá núna raforku með virkjun sjávarstrauma Færeyingar eru byrjaðir að virkja sjávarföllin í samstarfi við sænskt þróunarfélag. Túrbína upp á 1,2 megavött er þegar komin í sjó og þykir reynslan það góð að farið er að undirbúa 200 megavatta raforkuframleiðslu úr sjávarstraumum við Færeyjar. 26.2.2024 21:00
Engar torfur fundist enn í loðnuleitinni Þriðja loðnuleitin frá áramótum, sem núna stendur yfir, hefur enn sem komið er ekki skilað neinni viðbót sem gefur tilefni til að ætla að grænt ljós verði gefið á loðnuveiðar þennan veturinn. Tvö leitarskip af þremur hafa lokið sinni yfirferð en það þriðja heldur áfram að leita næstu tvo til þrjá daga. 26.2.2024 11:55
Vinna hafin við göngu- og hjólabrú yfir Elliðaár Framkvæmdir eru hafnar við gerð nýrrar göngu- og hjólabrúar yfir Elliðaár, eða Dimmu, eins og áin nefnist á þessum kafla í Víðidal. Brúarsmíðin er einn verkþátta Arnarnesvegar, milli Rjúpnavegar og Breiðholtsbrautar, sem Suðurverk og Loftorka annast. 25.2.2024 07:07
Milljarðatjón vegna umfjöllunar um jarðhræringar við Grindavík Forstjóri Play segir fréttir heimsfjölmiðla af umbrotunum í Grindavík fyrr í vetur hafa valdið íslenskri ferðaþjónustu milljarðatjóni. Hann hvetur íslensk stjórnvöld til að líta í eigin barm um hvað megi gera betur. 23.2.2024 22:18
Síðasta vonin gæti verið Húnaflóatorfa Eftir árangurslausar tilraunir til að finna loðnuna hefur verið ákveðið að efna til nýs leitarleiðangurs í von um að afstýra loðnubresti. Skammur tími er til stefnu áður en loðnan drepst og verður lagt í hann strax á morgun. 21.2.2024 20:40
Forstjóri Play segir gott að fá sterka traustsyfirlýsingu Forstjóri Play segir stærstu hluthafa flugfélagsins hafa sent traustsyfirlýsingu með vilyrðum um 2,6 milljarða króna nýtt hlutafé. Hann segir að þótt umræðan um fjárhagsstöðuna hafi verið óþægileg hafi hún hvorki skaðað félagið né komið niður á bókunum. 20.2.2024 21:21
Hér getur þú séð hvort einhver óboðinn sé skráður í þinni íbúð „Hver býr í eigninni minni?“ kallast átak sem Þjóðskrá Íslands hefur hleypt af stað í því skyni að leiðréttar rangar lögheimilisskráningar. Eigendur húseigna geta núna í gegnum heimasíðu Þjóðskrár flett upp á því hverjir eru skráðir þar til heimilis og tilkynnt um ranga skráningu. 20.2.2024 13:10
Yfir 400 þúsund íbúar núna skráðir á Íslandi Fjöldi skráðra einstaklinga með lögheimili á Íslandi er kominn í fjögurhundruð þúsund, samkvæmt tölum Þjóðskrár Íslands. Raunverulegur mannfjöldi á Íslandi er þó talinn eitthvað lægri. 19.2.2024 20:44