

Fréttamaður
Magnús Hlynur flytur fréttir fyrir Stöð 2, Vísi og Bylgjuna. Hann er staðsettur á Selfossi.
Það ánægjulegasta, sem Tryggvi Anton Kristinsson, sem er á níræðisaldri í Hafnarfirði gerir er að sauma út myndir, hekla, mála, setja saman módel og keppa í pílukasti.
Rabarabarahátíð fer fram í gamla bænum á Blönduósi í dag þar sem rabbabarinn verður í aðalhlutverk. Þá verður draugaganga líka í boði, sem endar við kirkjuna í kvöld, auk fuglaskoðunar svo eitthvað sé nefnt.
Svo virðist sem frísbílgolfæði hafi runnið á landsmenn því nú var Landsvirkjun að opna hundraðasta völl landsins við Ljósafossstöð í Grímsnes og Grafningshreppi. Völlurinn er sagður vera sá allra flottasti í landinu.
Kona á tíræðisaldri í Reykjanesbæ geymir nokkur bréf, sem hún og maður hennar hafa fengið, eins og gull heima hjá þeim en það eru árnaðaróskir frá Karli Bretakonungi og Kamillu konu hans, auk bréfa frá Elísabetu annarri Bretadrottningu.
Á milli fjórar og fimm milljónir króna safnast á hverju ári í áheit vegna Strandarkirkju í Selvogi í Ölfusi og heldur það rekstri kirkjunnar gangandi. Íbúi í Selvogi segir stöðuga umferð ferðamanna allt árið um kring til að heimsækja kirkjuna og lýsir því ástandi við mauraþúfu.
Eitt öflugasta fyrirtæki í Uppsveitum Árnessýslu, Flúðasveppir á Flúðum framleiðir nú 12 tonn af sveppum á viku og hefur varla undan að framleiða sveppi ofan í landsmenn. Fyrirtækið fagnar 40 ára afmæli í ár en á fyrstu árunum voru aðeins framleidd 500 kíló af sveppum á viku, sem þótti mjög gott þá.
Ullarsokkarnir, sem karlmaður prjónar á Dvalar- og hjúkrunarheimilinu Klausturhólum á Kirkjubæjarklaustri seljast eins og heitar lummur enda um mjög fallegt handverk að ræða. Þá er eitt það skemmtilegast, sem maðurinn gerir er að syngja fyrir gesti og gangandi á heimilinu.
„Hringrásarklasinn“ er nýtt verkefni á vegum Umhverfisstofnunar en með því er ætlunin í samstarfi við fyrirtæki að finna ný tækifæri fyrir tvö hundruð þúsund tonn af úrgangi, sem annars yrði hent.
Alltof miklum verðmætum er sóað á Íslandi og má tengja það aukinni velmegun í landinu. Þá eru landsmenn orðnir þreyttir á umræðunni um umhverfismál því hlutirnir gerast svo hægt. Þetta kom meðal annars fram á fundi á Hvolsvelli í dag.
Um 700 manns mættu á Apavatn rétt við Laugarvatn um helgina á fjölskylduhátíð Rafiðnaðarsambands Íslands, sem er með eitt glæsilegasta orlofssvæði landsins við vatnið.