Listaverk úr grjóti hjá múrarameistara á Sauðárkróki Það er ævintýri líkast að komast inn í einn af bílskúrnum á Sauðárkróki því þar er 85 ára múrarameistari með steinasafnið sitt og annað spennandi handverk, sem hann er að fást við á hverju degi. 16.12.2023 20:31
Hjól atvinnulífsins á fullu í Skagafirði Miklar framkvæmdir standa nú yfir í Skagafirði og verða áfram á nýju ári en þar má nefna stækkun sundlaugarinnar á Sauðárkróki, bygging nýs leikskóla í Varmahlíð, endurbætur á grunnskólanum á Hofsósi og stækkun á höfninni á Sauðárkróki svo eitthvað sé nefnt. 16.12.2023 15:01
Hópur bænda í Skeiða- og Gnúpverjahreppi mótmæla vindmyllum Mikil óánægja er á meðal hóps bænda í Skeiða- og Gnúpverjahreppi sem mótmæla harðlega uppsetningu vindmyllugarðs með tuttugu og fimm vindmyllum í landi Skáldabúða í nágrenni við jarðir þeirra. Forsvarsmaður þýsks orkufyrirtækis, sem hyggst reisa garðinn, segir hins vegar að íbúar hafa almennt tekið hugmyndinni mjög vel. 14.12.2023 21:03
Framleiðsla á rifostum slær öll met á Sauðárkróki Framleiðsla á rifostum hjá Mjólkursamsölunni á Sauðárkróki hefur slegið öll met í ár en framleiðslan verður tæplega tvö þúsund tonn þegar árið er liðið. Osturinn fer meira og minna ofan á pizzur landsmanna. 12.12.2023 20:30
Ellefu ára stelpa fer daglega út að hlaupa með hrútinn Ástaraldin Einstakt samband hefur skapast á milli hrútsins Ástaraldins og 11 ára stelpu á sveitabæ í Flóahreppi en þau fara á hverjum degi saman út að hlaupa. Eftir hlaupið kembir stelpan hrútnum og dekrar við hann enda er hann gæfur með eindæmum. 11.12.2023 20:30
Skyrgámur stal senunni á Sólheimum í Grímsnesi Skyrgámur stal heldur betur senunni á Sólheimum í Grímsnesi þegar hann mætti galvaskur í kirkjuna á staðnum til að stjórna á jólatónleikum Sólheimakórsins í gær. Hann lét það ekki duga, heldur settist hann líka við trommusettið og fór þar á kostum. 10.12.2023 21:04
Bók um blæðingar „líka fyrir okkur karlpungana til að lesa“ Bóksali á Suðurlandi er viss um að jólin verði góð jólabók en viðurkennir þó að lestur jólabóka hafi minnkað og þar kennir hann snjallsímunum um. Bóksalinn gefur út 30 bækur fyrir jólin, meðal annars bók um blæðingar kvenna, sem hefur nú þegar verið tilnefnd til verðlauna. 10.12.2023 13:15
Mikil ánægja með mælaborð Byggðastofnunar Í nýju mælaborði Byggðastofnunar verður hægt að skoða tekjur einstaklinga eftir sveitarfélögum og hvernig heildartekjur íbúa skiptast niður í launagreiðslur, lífeyrisgreiðslur og fjármagnstekjur. Þá kemur fram í íbúakönnun stofnunarinnar að íbúar í Vestmannaeyjum eru hamingjusamastir Íslendinga og íbúar á Snæfellsnesi fylgja þar strax á eftir. 9.12.2023 20:31
Kristrún leggur ekki áherslu á Evrópusambandið Formaður Samfylkingarinnar segir það skipta meira máli að komast til valda í málaflokkum, sem er 70 til 80 prósent sátt um frekar en að keyra á málaflokka, sem kljúfa þjóðina eins og að ganga í Evrópusambandið. 9.12.2023 14:31
Sinfóníuhljómsveit Suðurlands í Þykkvabæ Það verður líf og fjör í íþróttahúsinu í Þykkvabæ laugardaginn 9. desember klukkan 16:00 þegar Sinfóníuhljómsveit Suðurlands verður þar með stórtónleika undir stjórn Guðmundar Óla Gunnarssonar. 6.12.2023 20:15